Jökull


Jökull - 01.12.1978, Blaðsíða 82

Jökull - 01.12.1978, Blaðsíða 82
Bárðarbunga Yfir þessu örnefni hvílir ró. Fyrir hugskot- sjónum stendur mikið, óhagganlegt jökulhvel, en fáar sögur fara af staðnum. Ef nánar er að gætt, má sjá, að ekki hefur alltaf verið jafn kyrrt við Bárðarbungu og nú virðist. Geysi- miklar hrannir jökulruðnings liggja alls staðar norðan með jökulröndinni, og í þeim sýnist miklu meira efni en jökullinn gæti nurlað saman úr undirlagi sínu á þeim 10.000 árum, sem liðin eru frá ísaldarlokum. Ætla verður, að eldgos í og við bunguna hafi lagt til efni í þessa miklu garða. Hvað sem rólegu yfirbragði viðvíkur, þá á Bárðarbunga og nágrenni traustan sess í forustu skjálftaframleiðenda hér á landi hin síðari ár, en skaparinn einn veit, hvað það kann að boða. Ljóst er af meðfylgjandi mynd, að Bárðar- bunga hefur ekki þær mjúku, ávölu línur, sem nafnið gefur til kynna, heldur er kollur hennar flatur og sléttur ef ekki íhvolfur. Býður því í grun, að undir ísnum leynist askja, sem raunar hefur verið bent á áður hér í blaðinu. Hefur þessi askja sitt op sem og aðrar öskjur og veit það til austurs. Þar sígur jökullinn fram enda sjást meiri sprungur þar en annars staðar á bungunni. Fjær á jöklinum blasa við skuggalegir Svía- hnúkar og nokkru norð-vestar eru tveir sig- katlar, afleiðing Skaftárhlaupa og farvegur suður úr þeim eystri. I fjarska teygir sig Hvannadalshnúkur upp úr skýjum, og úti á Breiðamerkurdjúpi blika sólargeislar. Til vinstri á myndinni eru tindar Suðursveitar- fjalla. Myndin er tekin 27. september 1977, kl. 10.50 úr áætlunarflugvél Flugleiða til Egils- staða. 80 JÖKULL 28. ÁR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.