Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Blaðsíða 9

Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Blaðsíða 9
7 Ingibjörg Pétursdóttir Afmælisgrein Árið 1976 var merkisár í sögu iðju- þjálfunar á Islandi. Þá var Iðju- þjálfafélag Islands stofnað. Þá gerðist það einnig að undirrituð útskrifaðist sem iðju- þjálfi frá Háskólanum í Árósum. Ekki veit ég hvort það var ástæðan fyrir því að mér hlotnaðist sá heiður að mæla fyrir munn frumherjanna. Það er varla verðskuld- aður heiður þar sem ég kom heim til starfa 1980 og það höfðu þeir 7 iðjuþjálfar sem stóðu að stofnun Iðjuþjálfafélags íslands og þær sem komu næstar á eftir unnið geysi- mikið brautryðjendastarf. Til að koma að upphafinu verð ég að ger- ast persónuleg. Það var eiginlega tilviljun sem réði því að ég fór að læra iðjuþjálfun. Ég varð stúdent 1969 og tók mér 4 ára hvíld frá námi eftir það. Var búsett erlendis og ferðað- ist víða um lönd. Ég ætlaði nú samt alltaf að „verða eitthvað". Á þessum árum þótti gott fyrir ungar stúlkur að læra að verða hjúkr- unarkonur - eins og það hét þá - eða verða flugfreyjur því þá gæti maður komist til út- landa og keypt svo margt lekkert. Þetta fannst mér ekki henta mér. Sjúkraþjálfun eða félagsráðgjöf komu til greina en var einhvern veginn ekki það sem ég vildi. Loks varð iðjuþjálfun fyrir valinu. Mér er ómögulegt að muna af hverju. Ég hafði aldrei kynnst störfum iðjuþjálfa. En einhverjar upplýsingar hlýt ég að hafa feng- ið sem kveiktu í mér og ég tók ákvörðun. í Iðjuþjálfa- og sjúkraþjálfaraskólanum í Árósum fengu tveir íslendingar skólavist annað hvert ár, einn í iðjuþjálfun og einn í sjúkraþjálfun. Ég var svo heppin að komast að í fyrstu tilraun og hóf nám haustið 1973 í iðjuþjálfun í Institut ved Árhus Universitet for Terapiassistenter eins og það hét þá. Við vorum fjórir íslendingar í allt. Iðju- þjálfaneminn sem var á 3ja ári þegar ég hóf nám var Guðrún Pálmadóttir, en hún var fyrsti íslenski iðjuþjálfaneminn í Árósaskól- anum. Námið var mjög skemmtilegt og kom mér stöðugt á óvart. Ég sem aldrei hafði verið neitt fyrir handavinnu/föndur/handverk (viðkvæmt) lærði bara þó nokkuð og sumt mér til ánægju og gagns, en meira gagn hafði ég af bóklegum fögum. Þrátt fyrir miklar annir á ýmsum sviðum útskrifaðist
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.