Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Blaðsíða 28

Iðjuþjálfinn - 01.12.1997, Blaðsíða 28
KLÚBBURINN GEYSIR / Fountain House d Islandi Anna Guörún Arnardóttir Anna Valdemars- dóttir Þær Anna Guörún Arnardóttir og Anna Valdemarsdóttir, iöjuþjálfar tóku þátt í alþjóö- legri ráöstefnu um Fountain House sem haldin var í Gauta- borg síöast liöiö sumar. Alþjóðleg samtök Fountain House var upphaflega stofnað í New York fyrir um það bil 50 árum síðan. Fyrsti vísirinn að samtök- unum varð til um 1940 þegar sjúkling- ar, sem höfðu verið á geðdeild í N.Y. tóku sig saman og hjálpuðu hvorum öðrum að finna atvinnu, húsnæði og leiðir til þess að uppfylla félagslegar þarfir og gerast þannig virkir þáttak- endur í samfélaginu. Hópurinn kall- aði sig WANA (We Are Not Alone). Árið 1948 urðu þáttaskil þegar hópur- inn festi kaup á húsi þar sem allir hjálpuðust að við að gera það sem þurfti. I bakgarðinum var gosbrunnur og þannig varð nafnið „Fountain Hou- se" til. Sagan hefur síðan endurtekið sig og í dag eru starfandi 340 klúbbar í 22 löndum, meðal annars á öllum Norðurlöndunum. Síðustu árin hafa verið stofnaðir um það bil 25 nýir klúbbar á ári. Allir þessir klúbbar eru hluti af alþjóðlegum samtökum og fylgja ákveðnum gæðastöðlum. Á nokkrum stöðum í heiminum eru þjálfunarstöðvar fyrir Fountain Hou- se. Þar eru haldin námskeið þar sem farið er yfir hugmyndafræðina og hvernig daglegt starf gengur fyrir sig. Þegar nýr klúbbur er stofnaður eru sendir fulltrúar starfsfólks og félaga í þriggja vikna þjálfun og einn úr styrktarfélaginu í eina viku. Þegar starfsemin er komin í gang eru full- trúar sendir af og til í þjálfun til að halda þessari sameiginlegu alþjóð- legu hugmyndafræði lifandi. Einnig eru starfandi ýmsar nefndir á veg- um alþjóðasamtakanna þar sem full- trúar eru frá öllum heimshornum. Þannig eru öflug tengsl á milli klúbba um allan heim. Ein þessara nefnda er gæðanefnd sem ferðast á milli klúbba og fer yfir starfsemina og gefur síðan út ítarlega skýrslu um hvað sé í góðu lagi og hvað megi bet- ur fara. Hver klúbbur þarf að upp- fylla ákveðnar gæðakröfur til þess að fá viðurkenningu frá alþjóðasamtök- unum ICCD (International Center for Clubhouse Development). Starfsemi Eitt af því erfiðasta í starfi okkar iðju- þjálfa á geðdeildinni er það þegar sjúklingar eru búnir að vera í þjálfun er oft ekkert sem tekur við. Skrefið út í samfélagið er fyrir marga óyfirstíg- anlegt þegar fólk er búið að vera lengi í vernduðu umhverfi og hefur lítið þurft að takast á við ábyrgð, skipu- lagningu og ákvarðanatöku. I Fountain House er unnið að því að brúa bilið milli stofnunar og samfé- lags. Þar er fólk ekki lengur sjúkling- ar heldur félagar og allir bera sam- eiginlega ábyrgð á daglegum rekstri. 28 IÐJUÞJÁLFINN 2/97

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.