Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.2009, Blaðsíða 26
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 85. árg. 200922
Útdráttur
Tilgangur þessarar greinar er að skýra þróun lífsgæðahugtaksins.
Bakgrunnur hugtaksins er kannaður, nálgun þess við
heilbrigðishugtakið og notkunargildi innan heilbrigðisvísinda.
Skoðuð er fræðileg umfjöllun um hugtakið og fjallað um
rannsóknir á lífsgæðum og að lokum er gerð grein fyrir hvernig
hugtakið tengist og gagnast hjúkrun.
Lífsgæði er hugtak sem mikið er vitnað til í rannsóknum sem
og í daglegu tali. Bætt lífsgæði er eitt af meginmarkmiðum
Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar og telst jafnmikilvægt og
önnur markmið heilbrigðisþjónustunnar. Aukinn fjöldi langveikra
hefur beint sjónum að því að það er ekki nóg að bæta árum
við lífið heldur þarf einnig að gæða árin lífi. Daglegt líf fólks
með langvinna sjúkdóma einkennist af vandamálum vegna
heilsubrests sem hefur áhrif á lífsgæði þess. Frá sjónarhorni
hjúkrunar er markmiðið að hver einstaklingur hafi tækifæri til
að lifa því lífi sem hann telur innihaldsríkt og ánægjulegt að
því marki sem er raunhæft. Hjúkrunarmeðferð beinist að því
að gera fólki það mögulegt með því að greina og meðhöndla
vandamál svo að einstaklingarnir séu færir um að viðhalda sem
mestu sjálfstæði og njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
Það krefst kunnáttu og skilnings á hvernig heilbrigðisvandamál
hafa áhrif á lífsgæði. Mótsagnir í hvernig fólk metur lífsgæði
er einnig ögrandi viðfangsefni hjúkrunar. Heilbrigði er ekki
alltaf uppspretta hamingju né vanheilsa alltaf orsök slæmra
lífsgæða.
Lykilorð: Lífsgæði, heilsutengd lífsgæði, lífsgæðarannsóknir,
hjúkrun
INNGANGUR
Lífsgæðahugtakið er mikið notað í heilbrigðisvísindum og
rannsóknir á lífsgæðum eru algengar. Þó eru lífsgæði ekki
bein mælanleg breyta heldur hugtak sem er fremur illa
skilgreint og á sér mörg sjónarhorn. Þessi grein er tilraun til
að útskýra og gefa fræðilegt yfirlit um umfjöllun um hugtakið.
Gerð var kerfisbundin leit í viðurkenndum gagnagrunnum með
lykilorðum greinarinnar. Valdar voru fræðilegar yfirlitsgreinar
og bókarkaflar og lögð áhersla á að þær endurspegluðu sem
fjölbreyttust sjónarhorn sem höfundar töldu upplýsandi fyrir
viðfangsefnið. Heimildir um viðfangsefnið skipta þúsundum en
flestar heimildir, sem notast var við, eru birtar eftir 1995.
Á mörgum sviðum heilbrigðisþjónustunnar hafa orðið miklar
framfarir við lækningar og meðferð sjúkdóma. Meðferðin
er oft ævilöng og með hækkuðum meðalaldri fjölgar
heilbrigðisvandamálum auk þess sem hreyfigeta minnkar og
líklegt er að margt aldrað fólk hafi einhverja langvinna sjúkdóma.
Fyrir þessa sjúklinga getur markmið heilbrigðisþjónustunnar
ekki orðið að lækna sjúkdóma heldur að hjálpa þeim að lifa eins
góðu lífi og mögulegt er þrátt fyrir sjúkdóma og minnkaða getu
(Sarvimäki og Stenbock-Hult, 2000). Aukinn fjöldi langveikra
hefur beint sjónum að því að ekki er nóg að bæta árum við lífið
heldur þarf einnig að gæða árin lífi.
Bætt lífsgæði eru eitt af meginmarkmiðum Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar (WHO) og það að bæta lífsgæði verður að
teljast jafnmikilvægt og önnur hlutverk heilbrigðisþjónustunnar,
s.s. lækningar, endurhæfing og heilsuvernd (Tómas Helgason
o.fl., 2000). Því er þörf á að afla þekkingar um afleiðingar
sjúkdóma, veikinda og meðferðar á lífsgæði fólks.
Lífsgæði er hugtak sem mikið er vitnað til í rannsóknum sem og
í daglegu tali. Gerður er greinarmunur á almennum lífsgæðum
og heilsutengdum lífsgæðum. Til almennra lífsgæða teljast
Kolbrún Albertsdóttir, Svæfingadeild Landspítala
Helga Jónsdóttir, Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og Landspítali
Björn Guðbjörnsson, Rannsóknarstofa í gigtarsjúkdómum, Landspítali og Læknadeild, Háskóla Íslands
LÍFSGÆÐI OG LÍFSGÆÐARANNSÓKNIR
ENGLISH SUMMARY
Albertsdottir, K., Jonsdottir, H., and Gudbjornsson, B.
The Icelandic Journal of Nursing (2009). 85 (4), 22–29
QUALITY OF LIFE AND QUALITY OF LIFE
MEASUREMENT
The purpose of this theoretical article is to describe the
development of the quality of life concept. The background of
the concept is explored, its relationship to the health concept
and its usefulness in health sciences. Further we address
quality of life research in health science, its purpose and
usefulness and the usefulness of the concept in nursing.
Quality of life is frequently a focus in research and daily life
alike. Improved quality of life is one of the main targets of the
World Health Organization and considered as important as
others health care factors. The increasing number of people
with chronic diseases has however shifted the focus from the
importance of adding years to one‘s life to also adding life to
years. Longevity increases the number of people with chronic
diseases. A cure for these diseases is seldom possible and
that shapes and influences the quality of life for people with
chronic diseases. From a nursing perspective the aim is that
each patient is capable of living as meaningful and joyful a
life as possible. Nursing actions aim at helping each patient
to preserve autonomy and quality of life. Understanding
how health problems affect quality of life requires skills and
knowledge. Contradictions in people‘s experience of quality
of life is also a challenge to nursing. Health does not always
constitute happiness nor does poor health always have to
diminish the quality of life.
Key words: Quality of life, health related quality of life, quality
of life measurement, nursing
Correspondance: kolbrun@simnet.is