Jón á Bægisá - 30.09.2004, Blaðsíða 77
Karin Graf
Bókmenntaframleiðsla í neytendasamfélagi
I Þýskalandi eru gefnar út milli 70.000 og 80.000 bækur á hverju ári. Þar
af eru um 15% þýðingar úr alls 57 tungumálum. Langstærsti hlutinn —
69% - eru þýðingar úr ensku. Skáldskapur og ljóðlist telja um 42,5% allra
þýddra bóka. Á sama tíma selja þýskir útgefendur þýðingarrétt á um 3000
titlum til um 50 landa, þar af 12,5% til enskumælandi landa. Hér eru
skáldskapur og ljóð einnig langsamlega fyrirferðarmest, eða með 37% allra
titla. Meðalverð á bók út úr búð er um 40 þýsk mörk.
Þetta virðast vera ábatasöm viðskipti fyrir útgefendur í Þýskalandi. Þótt
heildartekjur af bóksölu helstu útgefenda í Þýskalandi séu álitlegar verður
samt að skoða þær í stærra hagrænu samhengi: samanlögð velta allra
(vestur-)þýskra útgefenda er í grófum dráttum svipuð og velta velþekktrar
verslanakeðju (Karstadt/Aldi Sud).
Af meira en 2.000 útgefendum eða svo í Þýskalandi ná ekki einu sinni
10% að selja fyrir meira en 6,5 milljónir dala. 34% selja fyrir minna en
1 milljón marka, 27% ná sölu milli 1 og 2 milljóna marka. Um það bil helm-
ingur af veltu útgáfuiðnaðarins safnast saman hjá færri en 40 fyrirtækjum.
Það er engu að síður hinn mikli fjöldi meðalstórra útgefenda sem stend-
ur fyrir fjölbreytni bókmenntanna. Þetta eru fyrirtækin sem taka áhættu og
frumkvæði, eru tilbúin að hætta á nýjar uppgötvanir, bjóða nýjum höfund-
um vettvang og koma auga á ný viðfangsefni og nýjar stefnur.
Minni útgáfufyrirtækjum hefur tekist að bæta sér upp skort á markaðs-
valdi með hraða og sköpunarmætti. Baráttan um markaðshlutdeildina og
olnbogarými hefur ítrekað leitt af sér margbreytileika: Ný viðfangsefni,
nýjar útrásardeildir, nýja markhópa, nýja miðla. Afraksturinn birtist í því
að iðnaðurinn, þeir sem leiða skoðanamyndunina og viðskiptavinirnir láta
æ minna að stjórn. Fleiri og fleiri bækur geta af sér skammlífar afurðir með
æ styttra millibili. Flóðbylgja nýrra titla á hverju vori og hverju hausti kaf-
færir söluminni bækur vertíðarinnar á undan. Meginhluti titlanna hverfur
af markaðnum eftir hálft ár eða svo. Það krefst æ meira fjármagns að
tryggja velgengni hverrar bókar en á móti dregur úr sölu flestra bóka og
þannig eykst kostnaður á hverja bók. Til að lifa af verða útgáfufyrirtækin
á- riSayáá — Menninga(r)miðlun í ljóði og verki
75