Þjóðmál - 01.06.2009, Blaðsíða 84
82 Þjóðmál SUmAR 2009
Bókadómar
_____________
Eilíf nótt
Elie Wiesel: Nótt, Bóka félagið Ugla,
Reykjavík 2009, 192 bls.
Eftir Stefán Mána
bókin Nótt eftir gyðinginn Elie Wiesel telst til klassískra helfararbókmennta .
Hér er á ferðinni sjálfsævisöguleg frásögn
af unglingi sem kemst lífs af úr saman söfn-
un ar búðum nasista en missir á sama tíma
systur sína, móður, föður og að
lokum trúna á guð; höfundurinn
er sumsé einn af eftirlifendum hel-
fararinnar, þeirrar áætlunar Hitl ers
að þurrka gyðinga, sígauna, sam-
kynhneigða og hina ýmsu minni-
hlutahópa af yfirborði jarðar .
bók in er alþjóðleg metsölubók
auk þess sem margvísleg verðlaun
og viðurkenn ingar hafa fallið höf-
undinum í skaut, og ber þar helst
að nefna friðarverðlaun nóbels árið 1986 .
Sagan hefst í ungverjalandi, í smábænum
Síget í transylvaníu, vorið 1944 . Þetta
er einn mesti galdur sögunnar . Í upphafi
hennar er seinni heimsstyrjöldin sama sem
búin – Rússar og bandamenn þrengja að
Þjóðverjum, og staðurinn, friðsælt sveita-
þorp í fjöllum ungverjalands, er svo fjarri
skelfingu vígvallarins að engum dettur í hug
að eitthvað hryllilegt muni eða hreinlega
geti gerst, hvorki persónum sög unn ar né
lesanda bókarinnar .
En hið illa vakir á meðan mennirnir
sofa …
til að gæta allrar sanngirni hefst sagan á
stuttum formála sem gerist árið 1942 en þá
lendir einn af þorpsbúunum, hinn geð þekki
Moishe meðhjálpari, í klóm nasist anna .
Hann er gyðingur af erlendum upp runa
og honum og fleirum af hans sauða húsi
er troðið í gripavagn af ungversku lögregl-
unni og sendir burtu . Eftir brottrekst-
urinn gengur sá orðrómur í þorpinu að
hinir brottreknu séu við störf í Galisíu og
líði bara vel . Meðhjálparinn snýr
aftur nokkrum mánuðum seinna
og hefur aðra sögu að segja . Hann
gengur hús úr húsi og segir öllum
sem heyra vilja, og hinum líka, að
allir í gripavagninum hafi verið
teknir af lífi í skógi í Póllandi . Að
hann einn hafi komist lífs af . En
það trúir honum enginn, hann er
sagður vitlaus . Sagan er einfald-
lega of fáránleg í ljótleika sínum,
of órökrétt, of ýkt …
Vorið 1944 . Í Nótt kynnist lesandinn
raun veruleika sem verður smám saman að
lygi legum óraunveruleika sem að lokum
reynist jafnraunverulegur og hann er helv-
ískur . lífið í Síget gengur sinn vanagang .
Það berast góðar fréttir af vígstöðvunum
í Rússlandi . Þýskaland mun bíða ósigur
hvað úr hverju . Það er bara spurning um
tíma, vikur eða mánuði . En tíminn líður
hægt og vondir hlutir gerast hratt . Fréttir
berast en óttinn og kvíðinn breytast