Þjóðmál - 01.06.2009, Blaðsíða 93
Þjóðmál SUmAR 2009 91
málið . breska eftirlitinu hafi verið „sýnt
fram á að þessir fjármagnsflutningar voru
hluti af eðlilegri fjármögnun Kaupþings en
ekki einhliða flutningur á fjármagni,“ segir
Ólafur í bók sinni og bætir við:
„Það sést best á því að þegar Hector Sants
ræddi við Hreiðar Má á miðvikudeginum
8 . október, eftir að S&F hafði verið knúið
í greiðslustöðvun, þakkaði hann Hreiðari
sérstaklega fyrir heilindi sem hann og
starfsfólk bankans hefði sýnt á þessum
erfiðu tímum . Það er fráleitt að æðsti yfir-
maður breska fjármálaeftirlitsins hefði hrós-
að Kaupþingsmönnum með þessum hætti
ef ekki hefði öllum grunsemdum þá þegar
verið eytt .“
Hér er aðeins lýst annarri hlið þessa máls,
það er Kaupþingshliðinni, og lesandinn
er þess vegna ekki viss um, að öll sagan
sé sögð . Hann hefur jafnvel ástæðu til að
draga í efa að svo sé, því að í þessu tilviki
eru öll kurl ekki komin til grafar og gera
líklega ekki, fyrr en rann sóknarnefnd
alþingis skilar skýrslu sinni .
Oft mætti ætla af frásögn Ólafs, að hann
gleymdi heildarmyndinni af því, sem í
raun gerðist, í leit sinni að „sökudólgi“ .
Við lýsingu á grundvallarþáttum at-
burðarás ar innar styðst hann við tvær
skýrsl ur, annars vegar eftir Ingimund
Frið riks son, þáv . seðlabankastjóra, frá 6 .
febrúar 2009 og hins vegar við skýrslu
hag fræð ing anna Gylfa Zoëga og jóns
Dan íels sonar frá 9 . febrúar 2009 . birtir
hann kafla úr þessum skýrsl um og bætir
við eigin athugasemdum .
bókin ber þess merki, að hún er rituð í
kappi við tímann og við atburðarás, sem
enn er að skýrast . Þess vegna hefur höfundi
ekki gefist tóm til að líta á málavöxtu úr
nægilega mikilli fjarlægð til að ná utan um
þá á skipulegan hátt . textinn er læsilegur
og frágangur góður að öðru leyti en því, að
engin nafnaskrá er í bókinni .
á tvennum vígstöðvum
börkur Gunnarsson: Hvernig ég hertók
höll Saddams, Sögur útgáfa, Reykjavík 2008,
160 bls .
Eftir Sigurgeir Orra Sigurgeirsson
börkur Gunnarsson er hermaður sem lætur sér ekki eina víglínu nægja
heldur berst á tvennum vígstöðvum; í Írak
og í ástum . Stríðin tvö leika hann grátt
og vart má á milli sjá hvort er honum
hættulegra . ástarsambandið er við það
að springa einn daginn og vinnustað ur
hans er við það að
springa hinn daginn .
Sálartetrið er á brún
hengiflugsins einn
daginn og allar
áætlanir um verkefn-
in fyrir nAtO eru í
upp námi hinn dag-
inn .
Að tvinna saman
tveimur stríðum er
snjallt hjá berki . Í fyrstu fannst mér að
vísu farið óþarflega náið í hlutina, „Spare
me the details!“ eins og stundum er sagt á
ensku málsvæði . En það jafnaði sig þegar
á leið og svo saknaði ég þess .
Það er áhugavert að fá innsýn í þennan
heim sem börkur dvelst í . Daglegt líf í
Írak við uppbygginguna . Hætturnar sem
leyn ast við hvert fótmál og Írakarnir sem
taka þátt í uppbyggingu lands síns týna
töl unni einn af öðrum (á hryllilegasta
hátt að því er virðist) .
Alþjóðastofnanir á borð við nAtÓ
eru ekki lausar við skriffinnskuna og
goggunar röðina . Vesalings börkur verður
fyrir barðinu á misvísandi ákvörðunum,
on/off heilkenninu . Ég er engu nær um
hvernig uppbyggingarstarfinu miðar í