Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Blaðsíða 40
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 87. árg. 201136
Ásta Kristín Gunnarsdóttir, astakg08@ru.is
GILDI LANDSPÍTALA OG STARF
DEILDARSTJÓRA
Algengt er nú að fyrirtæki og stofnanir ákveði hvaða gildi eiga að vera ráðandi
á vinnustaðnum. Landspítali hefur nýlega sett sér ný gildi en spurningin er
hvernig hægt er að framfylgja þeim í daglegu starfi. Miklu máli skiptir hvernig
deildarstjórar bregðast við gildunum því þeir gefa tóninn á sinni deild.
Í eftirfarandi grein er fjallað um hin
nýju gildi Landspítala (LSH) og hvernig
hjúkrunardeildarstjóri getur nýtt sér
þau í faglegri hjúkrun og daglegum
rekstri deildar sinnar. Umfjöllunin
byggist á athugunum mínum á starfi
hjúkrunardeildarstjóra og starfsfólks
á ákveðinni hjúkrunardeild á LSH þar
sem ég framkvæmdi svo kallaða SVÓT-
greiningu. SVÓT-greining var notuð til
að meta gildin út frá sterkum og veikum
hliðum, tækifærum og ógnum en slíkt
getur verið dýrmætt tæki stjórnanda til að
meta stöðu deildar. Hjúkrunardeildarstjóri
getur aukið öryggi sjúklinga og gæði
hjúkrunar á hjúkrunardeild með því að
útfæra gildin innan deildarinnar.
Ný gildi Landspítala
Í apríl 2010 var sett fram ný stefnumótun
fyrir Landspítalann (Landspítali, 2010b).
Að henni stóðu fjölmargir starfsmenn
spítalans sem unnu saman bæði í
stórum og litlum vinnuhópum. Fjölmargir
undirbúningsfundir voru haldnir og liggur
heilmikil vinna margra starfsmanna
að baki stefnumótuninni. Markmiðið
var að sem flestir starfsmenn og aðrir
hagsmunaaðilar fengju tækifæri til þess
að koma skoðunum sínum á framfæri
og að hlustað væri á gagnrýni þeirra.
Talið var að starfsmennirnir, sem inntu
verkin af hendi innan spítalans, væru
best til þess fallnir að gera tillögur til
úrbóta. Reynt var að tryggja aðgengi
starfsmanna að vefsíðu LSH þar sem
sjónarmið þeirra varðandi framtíðarsýn,
gildi og lykilþætti í stefnu LSH yrðu höfð
Ásta Kristín Gunnarsdóttir er
hjúkrunarfræðingur og kennari
með meistaragráðu í stjórnun og
lýðheilsu frá Háskólanum í Reykjavík.
Hún stundar nú meistaranám í
öldrunarfræðum við Háskóla Íslands
og starfar sem flugfreyja hjá Icelandair.