Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.2011, Blaðsíða 53
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 1. tbl. 87. árg. 2011 49
ÚTDRÁTTUR
Rannsóknir hafa sýnt margháttaðan ávinning sjúklingafræðslu en
lítið er vitað um gagnsemi fræðslu eða ánægju skurðsjúklinga á
Íslandi með veitta fræðslu. Megintilgangur þessarar rannsóknar
var að lýsa fræðslu sem skurðsjúklingar á Landspítala telja sig
fá á sjúkrahúsi og heima fjórum vikum síðar og meta hvað hefur
áhrif á ánægju þeirra með fræðsluna. Úrtakið var 733 innkallaðir
sjúklingar sem fóru í valaðgerð 15. janúar til 15. júlí 2007.
Svörun var 74%. Gagna var aflað með tveim spurningalistum, á
sjúkrahúsinu og heima fjórum vikum eftir heimkomu. Spurt var um
sjúklingafræðslu og ánægju með hana, kvíða og þunglyndi, verki
og önnur einkenni, aðdraganda sjúkrahúsvistar og sjúkrahúsdvöl,
heilsufar og árangur aðgerða, ánægju með umönnun og stuðning
og bakgrunn þátttakenda. Almennt voru sjúklingar ánægðir
með fræðsluna. Þeir voru þó ánægðari aðspurðir á spítalanum
heldur en heima. Atriði, sem sjúklingar óskuðu frekari fræðslu
um á sjúkrahúsinu, voru einkum fylgikvillar aðgerðar, hreyfing,
sjúkdómur og verkir en eftir heimkomu ýmislegt sem tengist
verkjum og afturbata.
Minni ánægja með fræðslu fyrir aðgerð tengdist meiri sársauka
á spítalanum, minni gagnsemi upplýsinga fyrir aðgerð, minni
stuðningi vina og ættingja á spítala og minni ánægju með umönnun
á spítalanum. Þættir, sem höfðu áhrif á minni ánægju með fræðslu
á spítala um ferlið eftir að heim var komið, tengdust meðal annars
kvíðaeinkennum á spítala og heima, þunglyndiseinkennum á
spítala og heima, sársauka á spítala og almennt einkennum fyrir
aðgerð og heima. Aðrir þættir, sem þessu tengdust, voru að
vilja fá betri upplýsingar, hafa ekki náð sér eftir aðgerð, minni
ánægja með stuðning vina og ættingja svo og minni ánægja með
umönnun. Þá voru yngri sjúklingar og konur óánægðari.
Fræðsluþarfir skurðsjúklinga eru umfangsmiklar og vara fram
yfir sjúkrahúsvistina. Bæta þarf einstaka þætti fræðslunnar og
skipuleggja sérstaklega mat, fræðslu og eftirfylgd sjúklinga sem
fyrirsjáanlega vegnar ver. Ávinningur gæti orðið aukin ánægja
sjúklinga og ódýrari heilbrigðisþjónusta vegna fækkunar einkenna,
fylgikvilla og endurinnlagna.
Lykilorð: Skurðsjúklingar, fræðsla, hjúkrunarfræðingar.
INNGANGUR
Lög um réttindi sjúklinga (1997) kveða á um rétt sjúklinga til að
fá upplýsingar um heilsufar, meðferð, ástand og batahorfur og
ýmis þýðingarmikil atriði er varða eftirmeðferð, svo sem lyfjagjöf,
mataræði, þjálfun og hreyfingu. Lögin hvíla á niðurstöðum fjölda
rannsókna sem hafa sýnt gildi þess að sjúklingar séu vel upplýstir.
Kröfur nútímasamfélags lúta auk þess að aukinni sjálfsábyrgð
einstaklingsins hvað heilsu varðar.
Katrín Blöndal, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og skurðlækningasviði Landspítala
Heiða Steinunn Ólafsdóttir, skurðlækningasviði Landspítala
Sesselja Jóhannesdóttir, skurðlækningasviði Landspítala
Herdís Sveinsdóttir, hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands og skurðlækningasviði Landspítala
FRÆÐSLA SKURÐSJÚKLINGA: INNTAK, ÁNÆGJA OG
ÁHRIFAÞÆTTIR
ENGLISH SUMMARY
Blondal, K., Olafsdottir, H.S., Johannesdottir, S., Sveinsdottir, H.
The Icelandic Journal of Nursing (2011), 87 (1), 4960
SURGERY RELATED INFORMATION: CONTENT,
SATISFACTION AND INFLUENTIAL FACTORS
Research has shown various benefits of patient education.
However little is known about its effectiveness and about
Icelandic surgical patients’ satisfaction with the education.
This study aims to describe the perceived information
surgical patients at Landspítali – University hospital receive
at the hospital and at home four weeks later and assess
what affects their satisfaction with received information.
The sample included 733 patients admitted for planned
surgery from January 15th to July 15th 2007. The
response rate was 74%. Information was collected with
two questionnaires, administered at the hospital and at
home four weeks later, addressing symptoms, patient
information, support, satisfaction, disease, surgery,
situation at home, and background. Generally the patients
were satisfied with the information received. At the hospital
the patients most often wanted more information about
complications of surgery, movement, disease, and pain.
At home they wanted more information about pain and the
period of recovery.
Less satisfaction with information was related to more pain
at the hospital, less beneficial information before surgery,
less support of friends and family at the hospital and less
satisfaction with the care they received at the hospital.
Less satisfaction with information they received at the
hospital about post-discharge recovery was for example
related to anxiety at the hospital and at home, depression
at the hospital and home and pain at the hospital. Less
satisfaction with information they received at the hospital
was also related to symptoms in general before surgery
and at home, wanting better information, not having
recovered after surgery and less satisfaction with the
support of friends and family. Women and younger patients
were more dissatisfied.
Surgical patients have extensive educational needs.
Special consideration must be given to the information
and follow-up of patients at risk for negative outcome and
those who are dissatisfied with care. The benefits could
be more satisfied patients and less health care related
expenses because of fewer symptoms, complications and
readmissions to hospital.
Keywords: Surgical patients, information, nurses.
Correspondance: katrinbl@landspitali.is.