Þjóðmál - 01.09.2011, Blaðsíða 58
56 Þjóðmál HAUST 2011
Breivik, fjölmenning – og mörk
umræðunnar
K lukkan 15 .26 (að norsk-um tíma) föstudaginn
22 . júlí 2011 sprakk öflug
sprengja í stjórnarráðshverf-
inu í mið borg Osló . Átta dóu,
margir særð ust og eignatjón varð mikið .
Rúmum 90 mínútum síðar hóf maður,
dulbúinn sem lögreglumaður, að skjóta á
ungmenni í sumarbúðum norska Verka-
manna flokksins í Úteyju um 40 km frá
Ósló . Þegar þetta er skráð er sagt að 69 hafi
fallið í eyjunni . Alls létust því 77 manns í
þessum ódæðisverkum .
Anders Behring Breivik, 32 ára Norð-
maður, hefur játað þessar árásir á saklausa
samborgara sína á hendur sér . Hann hafði
birt 1 .500 blaðsíðna stefnuyfirlýsingu á
neti nu undir yfirskriftinni: 2083 — A
European Declaration of Independence
(2083 — Sjálfstæðisyfirlýsing Evrópu) . Þar
lýsir Breivik pólitískum skoðunum sínum,
and stöðu gegn fjöl menningar stefnu,
menn ing arlegum marx isma og íslams væð-
ingu Vest ur landa . Hann sé krossfari gegn
þeim sem veiki varðstöðu um vestræn,
kristin gildi .
Norsk stjórnvöld og almenningur brugð-
ust við ódæðisverkunum af æðruleysi og
vöktu aðdáun um heim allan . Jens Stolt-
en berg forsætisráðherra flutti
hverja stór ræðuna eftir aðra
og hvatti þjóðina til dáða með
fyrirheiti um meira lýðræði,
meira frelsi, meiri mannúð,
meiri umræður og meiri fjölbreytni .
Fordæming á framgöngu Anders Behr -
ings Breiviks er afdráttarlaus og almenn .
Eng inn mælir verknaði hans bót . Enginn
mál staður réttlætir fjöldamorð og skemmd-
ar verk . Forherðing Breiviks og fyrirlitn ing á
þeim sem eru honum ósammála vekur rétt-
láta reiði .
En umræður í tilefni af blóðbaðinu taka
á sig ýmsar myndir — eins og rakið er í
þessari úttekt Þjóðmála þar sem litið er til
umræðna í Danmörku og hér á landi .
Fjölmenningarsamfélagið
Hugtakið fjölmenning (multicultural-ism) er notað til að lýsa því hvernig
fólk af af ólíkum kynþáttum, ólíkri menn-
ingu og trú býr saman í þjóðfélagi og virðir
sérkenni hvers og eins . Sé leitað undir
þessu orði á Google sést að leikskólar og
grunnskólar hér á landi leggja mikla áherslu
á fræða börn um fjölmenningu .
Á stjórnmálavettvangi í flestum Vestur-
ÞJÓÐMÁL
• ÚTTEKT •