Morgunblaðið - 25.09.2015, Side 18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2015
ÁRBORG
Á FERÐ UM
ÍSLAND
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Ég ætlaði nú bara að vinna við þetta
í eitt sumar, en líkaði starfið vel og
sætti mig því við það. Auðvitað kom
maður að ýmsum málum, en heilt yf-
ir var þetta skemmtilegt,“ segir
Heiðar Bjarndal Jónsson frá Neðri-
Dal í Biskupstungum og vísar í máli
sínu til þess tíma er hann starfaði
sem lögreglumaður í Árnessýslu.
Feril sinn þar hóf hann hinn 1. maí
árið 1975 og lét Heiðar Bjarndal af
störfum 38 árum síðar, árið 2013, og
þá sem lögregluvarðstjóri.
Nú þegar búningurinn hefur
verið lagður á hilluna segist Heiðar
Bjarndal meðal annars hafa tíma til
þess að sinna húsverkum, viðhaldi
ýmiss konar og áhugamálum sínum.
„Að megninu til er ég nú bara
heimavinnandi og sé meðal annars um
að skúra gólfið. Við erum búin að
skipta þessu niður – konan vinnur úti
og ég heima,“ segir hann og hlær, en
helsta áhugamál hans er útivist og er
Heiðar Bjarndal afar iðinn við að
ganga á fjöll. „Ég hef mjög gaman af
því að príla upp á fjöll og geri það
meðal annars til þess að halda heils-
unni,“ segir hann og bætir við: „Og þá
er Ingólfsfjallið minn heimavöllur
enda næst mér. Þangað reyni ég að
fara sem oftast og nýt þess mjög.
Þegar upp er komið er mjög
skemmtilegt að ganga inn á fjallið og
njóta útsýnisins. Það er oft og tíðum
stórbrotið og ég á til að gleyma mér
yfir því.“
Sólin er í Biskupstungum
Heiðar Bjarndal er einnig mikið
fyrir það að skella sér í lengri göngu-
ferðir með góðum vinum og gekk
hann til að mynda á Hvannadals-
hnjúk í maí árið 2010.
„Þegar kemur að styttri ferðum
fer ég nú samt yfirleitt einn. Þá þarf
ekkert að vera að spá í það hvort
maður sé að stinga göngufélagana af
eða þeir mig. Svo er líka oft gott að
vera bara einn á göngu með sjálfum
sér og sínum hugsunum.“
Spurður hvort hann eigi sér eitt-
hvert uppáhaldsfjall til þess að sækja
heim kveður Heiðar Bjarndal já við.
„Bjarnarfell í Biskupstungum er
náttúrlega í miklu uppáhaldi hjá mér.
Þar við er ég alinn upp og þrátt fyrir
að hafa búið á Selfossi í öll þessi ár lít
ég fyrst og fremst á mig sem Bisk-
upstungnamann. Þar er best að vera
enda alltaf sól og blíða – að minnsta
kosti í minningunni.“
Árin í lögreglunni eru honum
enn ofarlega í huga, enda starfið
krefjandi og tími hans þar langur.
Einn vinnudagur líður honum seint
úr minni, hinn 19. nóvember 1977.
„Þennan dag féll snjóflóð við
Sogn í Ölfusi og undir því grófst fimm
ára gamall drengur. Við fórum að
sjálfsögðu á staðinn og eftir nokkurn
tíma fundum við drenginn á lífi,“ seg-
ir hann og heldur áfram: „Það vildi
svo til að þetta gerðist á afmælisdegi
mínum og hefði ég ekki getað hugsað
mér betri gjöf en þá að heimta barnið
úr flóðinu.“
„Mér kólnaði mjög fljótt“
Greint var frá atburði þessum á
sínum tíma í Morgunblaðinu og þar
Ljósmynd/Guðmundur Karl Sigurdórsson
Mannbjörg „Eftir nokkurn tíma fundum við drenginn á lífi,“ segir Heiðar Bjarndal, sem bjargaði dreng úr snjóflóði.
Endurheimt drengsins
besta afmælisgjöfin
Heiðar Bjarndal leikur sér nú að því að hlaupa upp fjöll
Áætlað er að
uppbygging á
nýjum miðbæ á
Selfossi kosti
þrjá milljarða
króna og að hann
verði fullbyggður
árið 2017. Í heild
verða hátt í þrjá-
tíu hús á svæð-
inu, sem nær yfir
tvo hektara. Leó Árnason fer fyrir
hópi áhugamanna um uppbygg-
inguna.
„Við erum í viðræðum við stóra
hótelkeðju um aðkomu að hóteli í
miðbænum þar sem Hótel Ísland og
Hótel Akureyri verða endurbyggð,“
segir Leó.
Grunnflötur húsanna verður 180-
190 fermetrar að hámarki og stefnt
er að því að öll starfsemi verði opn-
uð í einu líkt og um verslunarmið-
stöð væri að ræða. Einnig verða
veitingastaðir, kaffihús, bakarí og
fleira á svæðinu. Þá er einnig stefnt
að því að framkvæmdin verði að
öllu leyti í höndum einkaaðila.
Deiliskipulagsbreytingar vegna
verkefnisins verða teknar fyrir á
næsta fundi byggingar- og skipu-
lagsnefndar Árborgar. vidar@mbl.is
Götumyndin Stefnt er að því að nýr miðbær verði tilbúinn árið 2017.
Þriggja milljarða króna uppbygging
Leó Árnason
Sveitir Flóans hafa fengið nýjan
svip á síðustu árum. Á fjölda jarða
hefur hefðbundinn búskapur lagst af,
þær verið seldar og kaupendur eru
gjarnan hestafólk sem byggir upp
góða aðstöðu og nýtir úthagann til
hrossabeitar. „Þetta er þróun sem
nær til fjölda jarða á svæðinu,“ segir
Hrafnkell Guðnason í Glóru, bæ sem
er skammt neðan við Selfoss.
„Á sumum bæjum hafa verið
byggðar reiðhallir sem eru stórhýsi.“
Hrafnkell, sem er fæddur og uppal-
inn á Selfossi, fluttist í Glóru, hvaðan
hann er ættaður, árið 1989, þá liðlega
tvítugur. „Reyndar ætlaði ég mér
stóra hluti við búskap hér í upphafi,
en svo hafa áherslur og aðstæður
breyst, eins og gengur. En möguleik-
arnir eru miklir. Hér eru víðfeðm og
vel gróin svæði sem henta vel til
hrossabeitar,“ segir Hrafnkell, sem
sækir vinnu út í frá og hið sama gerir
Guðný Ingvarsdóttir, kona hans.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bóndinn Hrafnkell hugar að hrossum sínum í gróðursælum úthaganum.
Hrossabúskapur víða á bæjum
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Fyrirtækið Arctic wings hóf starf-
semi í sumar og býður ferðamönn-
um útsýnisflug um Suðurland. Gert
er út frá Selfossflugvelli og að sögn
Kristjáns Bergsteinssonar, flug-
manns og eins hluthafa fyrirtæk-
isins, var áætlað að hefja starfsemi
næsta sumar, en eftir að tvö flug-
leyfi „duttu í hús“ var hins vegar
ákveðið að hefja starfsemi þetta
sumar.
„Ferðamennirnir eru aðeins
farnir að átta sig á þesum valmögu-
leika. Við höfum verið að vinna í
markaðssetningu núna en vitum að
það tekur um eitt ár að komast al-
mennilega inn á markaðinn. Við er-
um þegar búin að fá bókanir næsta
sumar,“ segir Kristján í samtali við
Morgunblaðið.
Áhugi að utan
Fyrirtækið er sem stendur með
tvær flugvélar til taks, en að sögn
Kristjáns er stefnt að því að vera
með fjórar til sex vélar tiltækar í
apríl á næsta ári. Er félagið meðal
annars að fá tveggja hreyfla Piper
Senica-flugvél frá Tékklandi í októ-
ber næstkomandi.
„Við verðum að binda vonir við
að þetta muni ganga og miðað við
áhuga erlendra aðila teljum við
fulla innistæðu fyrir því að vera
með allar þessar vélar tiltækar.
Margar þeirra leigjum við af að-
ilum tengdum félaginu,“ segir
Kristján sem hefur verið viðloðandi
flugið á Selfossi allt frá barnsaldri.
Er áhuginn því brennandi.
Ein klukkustund í útsýnisflugi
kostar 35 þúsund krónur í fjögurra
sæta flugvél, en í slíkum tækjum er
pláss fyrir þrjá farþega. Eins er
hægt að fara í dýrari ferðir upp á
hálendið, að Eyjafjallajökli og til
Vestmannaeyja. Á síðastnefnda
staðnum er hægt að stoppa til að
skoða aðstæður og kynna sér það
Innistæða er fyrir
fjórum flugvélum
Bjóða útsýnisflug um Suðurland
Ljósmynd/Sigurður Bogi
Flugmaður Kristján Bergsteinsson í loftinu. Þar kann hann best við sig.