Iðjuþjálfinn - 01.05.2005, Blaðsíða 5

Iðjuþjálfinn - 01.05.2005, Blaðsíða 5
Starfsemi hjálpartækjamið-stöðvar Tryggingastofnunar(HTM) hefur verið í stöðugri þróun frá upphafi. Vöxt hennar má rekja til þarfa fyrir hjálpartæki svo og örra breytinga í heilbrigðisþjón- ustu, tækninýjunga og vaxandi áherslu á búsetu fatlaðra og aldraðra í heimahúsum. HTM hefur verið und- ir forystu iðjuþjálfa frá upphafi. Lykilorð: hjálpartækjamiðstöð TR, iðjuþjálfar, hjálpartæki, þróun Iðjuþjálfi hefur starfað hjá Trygg- ingastofnun ríkisins (TR) frá upphafi starfsemi hjálpartækjamiðstöðvar TR (HTM). TR leitaði á sínum tíma til iðjuþjálfa til að byggja upp starfsemi HTM og bauð undirritaðri starfið frá og með apríl 1986. Áhersla var lögð á að hafa til hliðsjónar starfsemi hjálpartækjamála- flokksins annars staðar á Norðurlöndum en taka mið af íslenskum aðstæðum, lögum og reglum. Þetta var spennandi og ögrandi starf að takast á við og jafnframt einstakt tækifæri þar sem þurfti frumkvæði og áræðni. Með góðu starfsliði, skilningi og hvatningu ráðamanna hefur tekist að ná góðum árangri með starfsemi miðstöðvarinnar, sambærilegum við það besta sem gerist annars staðar á Norðurlöndum. Hér vísa ég meðal annars til niðurstöðu skýrslu Rík- isendurskoðunar um stjórnsýsluendurskoðun hjálpartækjamiðstöðvarinnar frá október 2001. Hjálpartækjamiðstöð TR var stofnuð form- lega 1. janúar 1988 með fastráðningu forstöðu- manns og tveggja starfsmanna í kjölfarið, en starfsemin hafði áður verið sem tilraunaverk- efni frá 1986. Meginástæða þess að HTM var komið á fót var ört vaxandi kostnaður TR vegna hjálpartækja. Fyrirmynd af starfseminni var sótt til sambærilegra stöðva annars staðar á Norðurlöndunum, sérstaklega í Danmörku og Svíþjóð en starfsemin í Noregi var í mikilli upp- byggingu og breytingum á þessum fyrstu árum. Frá 1990 hefur HTM aðallega sótt fyrirmyndir til þessara þriggja landa. Meginmarkmið hjálp- artækjamiðstöðvar í byrjun var að efla þjón- ustu varðandi tæknileg hjálpartæki sérstaklega hvað varðar ráðgjöf og viðgerðarþjónustu svo og að stuðla að lækkun kostnaðar með endurnýtingu hjálpartækja. HTM hefur vaxið frá því að vera að sinna eingöngu tæknilegum hjálp- artækjum yfir í að sjá um allan hjálpartækjamálaflokk TR sem nær til einnota hjálpartækja, stoð- og meðferðarhjálpartækja auk tæknilegra hjálpartækja. Helstu markmið HTM eru að: ■ ákvarða og greiða rétt hjálpar- tæki á réttum tíma til þeirra sem eiga rétt á þeim samkvæmt lögum og reglugerðum ■ gæta fyllstu hagkvæmni við meðferð þeirra opinberu fjármuna sem miðstöðinni er falið að ráðstafa Starfsemi HTM tekur til hjálpartækja sam- kvæmt lögum um almannatryggingar og reglu- gerðum þar að lútandi, reksturs HTM og ann- arra verkefna sem styðja meginstarfsemi HTM. Verkefni hjálpartækjamiðstöðvar: ■ stefnumótun og mótun starfsreglna ■ fræðsla og upplýsingamiðlun ■ innlent og erlent samstarf, m.a. þróunar- vinna ■ ráðgjöf ■ afgreiðsla umsókna, úthlutun og afhending hjálpartækja svo og greiðsla reikninga vegna hjálpartækja ■ endurnýting hjálpartækja ■ viðhaldsþjónusta, séraðlögun og sérsmíði ■ útboð, samningar, verðeftirlit og verðkann- anir ■ úttekt á bifreiðum vegna niðurfellingar á vörugjaldi Frá upphafi hefur vöxtur HTM verið mikill og starfsemin orðið viðameiri ár frá ári. Fjár- magn til málaflokksins hefur jafnframt aukist verulega. Í dag eru starfsmenn HTM 28 í um 25 IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2005 – 5 Björk Pálsdóttir iðjuþjálfi, forstöðumaður hjálpartækjamið- stöðvar TR Starfsemi og þróun hjálpar- tækjamiðstöðvar TR Gildi færni og einstaklingsmiðaðrar nálgunar þar sem tekið er tillit til heildaraðstæðna ein- staklingsins og umhverfis hans hefur verið og er ríkjandi í allri stefnumótun starfseminnar. Með góðu starfs- liði, skilningi og hvatningu ráða- manna hefur tekist að ná góðum ár- angri með starf- semi miðstöðvar- innar, sambærileg- um við það besta sem gerist annars staðar á Norður- löndum.

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.