Iðjuþjálfinn - 01.05.2005, Blaðsíða 27

Iðjuþjálfinn - 01.05.2005, Blaðsíða 27
Norrænt samstarf um hönnun matstækis til að meta áhrif hjálpartækja The NAME Það er mikilvægt að geta metið áhrif hjálp-artækja til þess að öðlast þekkingu ágildi þeirra fyrir notendur og samfélagið. Hjólastólar og göngutæki eru oft notuð sem íhlutun til að gera einstaklingum mögulegt að komast um og taka þátt í félagslegum athöfn- um. Þó þessi hjálpartæki séu mikið notuð og þau talin hafa jákvæð áhrif, eins og að auka at- hafnamöguleika notenda, þá virðist þekking sem byggist á rannsóknum af skornum skammti. Ein ástæða þess gæti verið að ekki er til matstæki sem mælir tengsl þátttöku og notk- unar á hjálpartækjum í daglegu lífi. Niðurstöður úr heimildaleit sem gerð var í tengslum við þró- un matstækis á þessu sviði staðfesti að ekkert matstæki fannst sem mælir þessi tengsl hjálpar- tækja. Hugtakið „þátttaka“ er hér þýðing á enska orðinu „participation“ og hugtakið „að fara um“ er þýðing á orðinu „mobility“. Lykilorð: Hjálpartæki, matstæki, þátttaka, ICF, þróun matstækis. Þátttakendur og aðferð. Hluti af starfssemi Hjálartækjamiðstöðvar Tryggingastofnunar er þátttaka í norrænu sam- starfi á hjálpartækjasviði. Eitt af mögum sam- starfsverkefnum er að búa til matstæki sem metur áhrif flutningshjálpartækja á virkni og þátttöku notenda í daglegu lífi. Þátttakendur frá Norðurlöndunum voru ásamt undirritaðri; Åse Brandt verkefnisstjóri og Susanne Iwars- son frá Svíþjóð faglegur leiðbeinandi auk John Nilson og Kersti Samuelsson frá Svíðþjóð og Terje Sund frá Noregi, Tuula Hurnaasti og Anna-Liisa Salminen frá Finnlandi. Matstækið er kallað The Nordic Assisted Mobility Evalu- ation (NAME). Aðferðafræðin sem var valin byggist á að- ferð Benson og Clark (1982). Um er að ræða fjögurra þrepa ferli sem skiptist í áætlanagerð (planning), uppbyggingu (construction), próf- anir, megindlega mælingu (quantitative evalu- ation) og réttmæti (validation). Réttmætis- prófuninni tekst þó ekki að ljúka. Skipulagning - 1 stig Markhópur matstækisins eru notendur og væntanlegir notendur hjólastóla og göngu- hjálpartækja sem eru 18 ára og eldri og færir um að veita viðtal. Um er að ræða einstaklinga sem hafa takmarkaða göngugetu þar sem notuð er íhlutun með hjólstól eða gönguhjálpartæki til að bæta möguleika þeirra til að komast um. Matstækið á að mæla hvort virkni og þátttaka í daglegu lífi hafi aukist með tilkomu hjálpar- tækisins. Viðtal er tekið áður en hjálpartækið er afhent og síðan endurtekið eftir um þrjá mánuði. Um er að ræða notendur sem eru að fá hjálpartæki í fyrsta sinn eða eru að skipta um tæki t.d. frá göngutæki í hjólastól. Markmiðið er að nota matstækið til að mæla áhrif á hóp- um í tengslum við gæðaþróun og rannsóknir fremur en á einstaklinga. Ofangreind skilgreining var notuð við ítar- lega heimildarleit að rannsóknum (outcome studies) og matstækjum á hjálpartækjasviði. Þrátt fyrir að alls fyndust 18 matstæki var ekk- ert þeirra sambærilegt við NAME. Áhrif hjálp- artækja á þátttöku og virkni í daglegu lífi voru hvergi mæld. Breytur voru að mestu valdar út frá athöfnum og þátttöku samkvæmt lista International Classification of Functioning, Disability and Health(2001) og með viðtölum við notendur hjólastóla og göngutækja í Sví- þjóð. Sleppt var þeim atriðum sem ekki tengd- ust því að fara um. Samdar voru spurningar út frá athöfnum og kvarðarnir tengdir þátttöku, erfiðleikastigi og þörf fyrir aðstoð. Til að tryggja gæði og réttmæti matstækisins voru þessi atriði ásamt kvörðunum rædd af rýnihópum notenda í öllum löndunum. Umræðan veitti gott innlegg í þróunina, notendur voru ánægðir með áhersl- una í þátttöku í iðju og athöfnum. Hinsvegar var bent á að megin hindrunin varðandi það að komast um lægi oft í umhverfinu, húsnæði og samfélaginu almennt en ekki í hjálpartækinu sem slíku. Uppbygging - 2 stig Niðurstöður rýnihópanna voru notaðar til að þróa spurningalistann betur. Matstækið skiptist í þrjá hluta: lýðfræðilegan, almenna hreyfifærni og þátttöku í athöfnum. Listinn var þróaður á sænsku en síðan þýddur yfir á tungu- mál hinna landanna. Innihaldsréttmæti var metið með viðtölum við rýnihópa notenda (17) sem og viðtölum við IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2005 – 27 Inga Jónsdóttir iðjuþjálfi hjálpar- tækjamiðstöð TR

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.