Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Blaðsíða 28

Iðjuþjálfinn - 01.11.2009, Blaðsíða 28
 28 • IÐJUÞJÁLFINN 1 / 2009 Á Sogni í Ölfusi er rekin eina réttar­geðdeild landsins, á deildinni eru vistaðir ósakhæfir öryggisgæslu­ sjúklingar, og þar er pláss fyrir sjö. Á Sogni er veitt íhlutun sem stuðlar að aukinni færni skjólstæðinga til að takast á við daglegt líf fyrir utan stofn­ un. Haft er að leiðarljósi að veita fag­ lega og persónulega þjónustu sem tekur mið af andlegum og félagslegum þörfum sem og færni skjólstæðingsins. Lengi voru ósakhæfir einstaklingar hér á landi vistaðir í fangelsi og fengu ekki þá sérfræðilegu aðstoð sem þeir þurftu á að halda. Um tíma voru þeir sendir úr landi á viðeigandi stofnanir. Réttargeðdeildin að Sogni var stofn­ uð 4. október 1992 og hefur lengst af tilheyrt Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU). Síðan 1. apríl 2009 tilheyrir Réttar geðdeildin að Sogni geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúss (LSH), en þaðan koma geðlæknir, sálfræðingur og félagsráðgjafi einu sinni til tvisvar í viku. Auk þeirra starfa á deildinni fjórir hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfi í hluta starfi og nítján öryggisgæslumenn auk staðarhaldara og starfsfólks í eldhúsi. Í íhlutuninni er leitast við að koma á góðu dagskipulagi þar sem áhersla er lögð á jafnvægi milli vinnu, tómstunda og hvíldar. Mikil áhersla er lögð á virkni skjólstæðinganna og þátttöku þeirra í starfsemi deildarinnar, svo sem við þrif og viðhald hvers konar. Hefðbundinn dagur hefst eins og á öllum venjulegum heimilum á morg­ un verði og síðan er morgunfundur. Tilgangur morgunfundarins er marg­ víslegur, hann er meðal annars vett­ vangur til að taka upp hin ýmsu mál, koma á framfæri upplýsingum og bera fram óskir um hluti eins og bæjarferðir eða heimsóknir. Markmið morgunfundarins er að: • Byrja daginn sameiginlega • Kynna starfsemi dagsins og skipta niður verkefnum • Meta/auka færni skjólstæðinga til að tjá sig í hóp Iðjuþjálfun á réttargeðdeildinni Sogni ■ Fanney Björg Karlsdóttir iðjuþjálfi Réttargeðdeildin að Sogni

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.