Skólavarðan - 01.10.2004, Blaðsíða 15

Skólavarðan - 01.10.2004, Blaðsíða 15
15 SKÓLAVARÐAN 8.TBL. 4. ÁRG. 2004 fallandi stundakennslu og sérgreinum, til dæmis á sviði lista og lífsleikni. Skólaskrif- stofa Snæfellsness á Hellissandi þjónar öllu Snæfellsnesi og þangað sækjum við þjónustu talmeinafræðings, námsráðgjöf og sálfræðiþjónustu.“ Virkjun og vatnshrútur Lýsuhólsskóli fékk grænfánann árið 2003 en hann var í hópi tólf skóla sem fyrstir tóku þátt í grænfánaverkefni Land- verndar 2001. Allt sorp er flokkað og papp- ír endunýttur. Skólaárið 2002-2003 stýrði Haukur Þórð- arson kennari verkefni sem fólst í því að virkja læk neðan við skólann. Nemendur reistu stíflu, mældu rennslið í læknum í þrjá mánuði og reiknuðu út frá því aflið sem hann bjó yfir. Í framhaldi af því settu þeir saman tæki sem kallað er vatnshrútur og með honum dældu þeir vatni upp á leikvöll skólans sem stendur hærra en virkj- unarsvæðið. Jafnframt gerðu nemendur heimildamynd um verkefnið en það fékk heitið Stubbalækjarvirkjun. Náttúrufræði og umhverfismennt Verkefnið tókst það vel að ákveðið var að sækja um þróunarstyrk og halda áfram með það. Helstu verkefni skyldu vera að búa til kálgarð og rækta lífrænt grænmeti, reisa gróðurhús, gera stíflu varanlegri og framleiða rafmagn til að lýsa upp gróðurhúsið og reka veðurstöð með sólarorku. Þessar framkvæmdir eru í gangi og þess gætt að nemendur komi að öllum verkþáttum. Verkefnið í heild á að stuðla að breytt- um og bættum kennsluháttum og færa kennslu í náttúrufræði og umhverfis- mennt í auknum mæli út í umhverfið. Verkefnið kemur inn á margar námsgrein- ar, svo sem stærðfræði, eðlis- og efna- fræði, upplýsingatækni og tölvuvinnslu, hönnun og handmennt auk náttúrufræði og umhverfismenntar. „Þetta verkefni skilar ótrúlega miklu,“ sagði Guðmundur, „krakkarnir læra að undirbúa og gera hlutina upp á eigin spýt- ur. Úr grænmetisgarðinum fáum við rófur, næpur og hreðkur og fleira sem hægt er að rækta úti. Á hverjum morgni fara tveir nemendur og sækja grænmeti til að hafa með morgunmatnum og í hádeginu eru sóttar kartöflur í soðið.“ Veðurstöðin er á skólalóðinni, hún veitir upplýsingar sem uppfærast sjálfkrafa beint inn á heima- síðu skólans þannig að á heimasíðu Lýsu- hólsskóla má fylgjast nákvæmlega með veðrinu á sunnanverðu Snæfellsnesi allan sólarhringinn. GG Í síðustu Skólavörðu var sagt frá því að nemendur í Smáraskóla hefðu tek- ið þátt í nýstárlegu verkefni, Hugsað um barn. Allir nemendur í 8. bekk fengu tölvustýrða dúkku með sér heim yfir helgi og hugsuðu um hana eins og foreldrar um ungbarn. Mark- miðið með verkefninu er kynfræðsla. Skólavarðan ákvað að kynna sér hvernig hefði gengið. Að sögn Valgerðar Snæland Jóns- dóttur skólastjóra gekk verkefnið von- um framar. Nemendur tóku það mjög alvarlega og sinntu dúkkubörnunum með miklum sóma. Sumir komu svefnvana og þreyttir í skólann vegna þess að „barnið“ hafði vaknað svo oft. „Þetta var mikil lífs- reynsla fyrir alla sem að málinu komu. Krakkarnir fengu nasasjón af hlutskipti smábarnaforeldra en kennarar og for- eldrar sáu krakkana sína í nýju ljósi. Þau komu til baka stærri í andanum,“ sagði Valgerður. „Fræðslan sem er hluti af verkefninu skilaði einnig mjög miklu. Nemendurnir ræddu um það að setja sér markmið í lífinu og hvað gæti hindr- að að þau markmið næðust. Það gætu verið þættir eins og sjúkdómar, þar með taldir kynsjúkdómar, og barneignir. Við ræddum líka um allar þær hættur sem steðja að ungu fólki nú til dags.“ Umræðugrundvöllur Auk dúkku fengu nemendur spurn- ingalista með sér heim til að leggja fyrir foreldra sína. Þar var spurt m.a. hvernig lífsreynsla það hefði verið fyrir foreldrana að ganga með barn og verða foreldrar. Markmiðið með þessum spurn- ingalistum var að skapa umræðugrund- völl heima, hjá krökkunum og foreldrum þeirra. Þegar Valgerður var spurð hvort nem- endur í 8. bekk væru á réttum aldri fyrir þessa fræðslu svaraði hún að bragði að svo væri. „Þau eru einmitt á besta aldrin- um fyrir góða kynfræðslu. Þetta er áður en þau byrja að stunda kynlíf og gefur þeim svigrúm til að undirbúa sig undir það.“ Verkefnið metið Eftir helgina var prentað út mats- blað sem hafði að geyma skráningu úr tölvuminni dúkkunnar og nemendur fengu afhent hjá hjúkrunarfræðingi. Þar var skráð allt sem unglingurinn hafði gert fyrir barnið og hversu langan tíma það tók. Ef dúkkan gaf frá sér hljóð höfðu krakkarnir tvær mínútur til að koma sér að verki. Ef hún hafði orðið fyrir einhverju hnaski skráðist það allt líka. Ef einhver hafði lent í því að fara óhönduglega að var viðkomandi mjög meðvitaður um það og var oftar en ekki fyrri til að greina frá því. „Útkoman var mjög góð,“ sagði Valgerður, "allir krakk- arnir fengu mjög góða einkunn. Einn nemandi náði meira að segja hundrað prósentum og það var strákur!“ GG Nemendur í Smáraskóla. Sumir komu svefnvana og þreyttir í skólann vegna þess að „barnið“ hafði vaknað svo oft. Einn nemandi náði hundrað prósentum og það var strákur! Hvernig gekk að hugsa um barn? SKÓLAHEIMSÓKN

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.