Þjóðmál - 01.12.2010, Blaðsíða 16

Þjóðmál - 01.12.2010, Blaðsíða 16
14 Þjóðmál VETUR 2010 Ólöf Nordal Stjórnarskráin í ölduróti efnahagshruns Glundroði í landinu Þegar öldur falls bankanna risu sem hæst og stefnan verið sett á nýja ríkisstjórn í upphafi árs 2009 hófust háværar raddir um að breyta þyrfti stjórnarskrá landsins í grundvallaratriðum . Var því jafnvel haldið fram, að það hefði verið vegna ákvæða stjórn ar skrárinnar sem bankarnir hrundu og ís lenska þjóðin stæði frammi fyrir alvarlegri kreppu . Forsætisráðherra nýorðin, Jóhanna Sigurðardóttir, lagði til, strax og ríkis stjórn hennar tók við 1 . febrúar 2009, að þingið tæki til afgreiðslu breytingar á stjórnarskipunarlögum . Aldrei hafa fyrirhugaðar breytingar á stjórn ar skrá verið lagðar fram í jafn miklu snar hasti og þarna var gert . Má nánast segja, að forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar hafi hrist málið fram úr erminni . Jafnframt viku ríkis stjórn ar flokkarnir frá þeirri helgu venju, að breyt ingar á stjórnarskrá yrðu unn ar þann ig að samstaða næðist milli allra flokka á Alþingi . Var það að sönnu gagnrýni vert . Það hef- ur svo komið á daginn, að sú afstaða ríkis- stjórnarflokkanna að leita ekki breiðrar sam- stöðu var ekki einskorðað við þetta tilvik vorið 2009, heldur markaði upphaf þeirrar stefnu ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur að efna alltaf til ófriðar í málum, jafnvel þeim þar sem friður var í boði . Um það er hægt að nefna fjöldamörg dæmi, nú síðast þegar friður var rofinn eftir að sáttanefnd um sjávarútvegsmál lauk störfum og náði samstöðu um grundvöll tiltekinna breyt inga á fiskveiðistjórnunarkerfinu . Vart var blek ið þornað í því samkomulagi þegar frammá- menn ríkisstjórnarflokkanna vildu ekkert við samkomulagið kannast . Þarf þó ekki að fjölyrða um hversu mikilvægt það er að samstaða náist um grundvallaratvinnugrein þjóðarinnar . Og ekki er síður mikilvægt að slík samstaða náist þegar óróinn er jafnmikill og nú er, og brýnt að sæmileg ró sé um þessa mikilvægu grein svo að hún geti skilað þeim ábata í þjóðarbúið sem hún ávallt hefur gert . Í stað þess er alvarlegur ágreiningur uppi eftir að nefndin lauk störfum og sjávarútvegsráðherra er önnum kafinn við að koma hinni svokölluðu fyrningarleið á . Það er nefnilega svo, að þegar ríkisstjórn- in, sem nú situr, talar um samráð er svo komið að hún hefur ekki burði til að leiða mál til lykta á eigin spýtur . Þá sýnir hún sitt raunverulega andlit, minnihlutaríkisstjórn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.