Skólavarðan - 01.10.2007, Blaðsíða 16

Skólavarðan - 01.10.2007, Blaðsíða 16
16 REIKNILÍKAN FRAMHALDSSKÓLA SKÓLAVARÐAN 7.TBL. 7. ÁRG. 2007 Aðalsteinn Eiríksson ritar grein í septemberblað Skólavörðunnar 2007 vegna vangaveltna og athugasemda minna í maíhefti blaðsins. Í grein sinni Reiknilíkan fyrir framhaldsskóla segir Aðalsteinn að sumt af því sem ég nefni orki tvímælis. Ekki ætla ég að þræta fyrir það. Það er nú einu sinni svo að á hverju máli eru oft margar hliðar og sjónarhornin mismunandi. Hitt tel ég skipta meginmáli að menn drepi ekki umræðunni á dreif í mikilvægum málum og eyði löngu máli í það sem kalla má aukaatriði. Þetta er því miður afar algengt í rökræðum og þá sérstaklega í mörgum ritdeilum. Ég held að Aðalsteinn hafi einmitt fallið í þá gryfju að fjalla mikið um það sem ekki er kjarni málsins. Ágreiningur, áhyggjur og allar umræður um reiknilíkan snúast um tiltekin atriði sem skipta öllu máli. Í mínum huga og fjölmargra eru þetta kjarnaatriðin: Reiknilíkanið er ekki og hefur ekki verið í aðgengilegu tölvuforriti eins og kveðið er á um í reglugerð menntamálaráðuneytisins nr. 335/1999. Á meðan þetta ástand varir er fjárveitingakerfið alls ekki uppi á borðinu. Hugmyndir um að skólamenn komi í ráðuneytið og leiti skýringa á fjárheimildum geta ekki komið í stað þessa ákvæðis reglugerðarinnar. Nefnd um endurskoðun reiknilíkans hefur ekki starfað í mörg ár. Ráðuneytis- menn og skólastjórnendur geta ekki orðið virkir samstarfsaðilar á meðan þetta ástand er látið viðgangast. Reiknilíkanið reiknar engan veginn raun- rekstrarkostnað skóla. Þetta ruglar ýmsa í ríminu, m.a. marga í fjárveitingakerfinu sem halda að reiknilíkanið innihaldi eðlilegt kostnaðarmat. Reiknilíkanið er tæki sem skiptir fyrir- fram ákveðnum fjárhæðum. Reikni líkanið er ekki byggt á viðtekinni og þekktri hugmyndafræði um að fyrst reikni menn út sanngjarnan og eðlilegan kostnað og geri síðan ráðstafanir um sparnað. sem innritast með slakan námsárangur kalla á mikla vinnu af hálfu skólans. Skóli með slíka nemendur fær ekki sann- gjarnar greiðslur fyrir þessa vinnu þar sem hluti nemenda fellur frá námi áður en að lokaprófum kemur. Hagstæðast er því fyrir alla framhaldsskóla að hafna nemendum sem ekki hefur gengið vel í námi enda hvetur reiknilíkanið til þess. Er það skólastefna sem við viljum reka? Er það faglegur metnaður til að byggja upp sterk ungmenni? Um hvað snýst þá Hvorki er rökrétt né sanngjarnt að leggja til grundvallar sama nýtingarhlutfall fyrir hópa með afar góðum nemendum annars vegar og slökum nemendum hins vegar. Þetta er ekki bara spurning um að reikna út einhverjar tölur sem eiga að sýna niðurstöður brotthvarfs. Sú vinna sem liggur að baki þjónustu við nemendur sem eru sterkir í bóklegu námi þegar þeir koma í skólann og hinna sem standa höllum fæti í námi er ekki sambærileg. Það kostar mun fleiri vinnustundir hjá stjórnendum, námsráðgjöfum, kennurum og fleirum að ná fram viðunandi árangri hjá nemanda með slakan námsárangur heldur en nemanda sem er sterkur í námi. Það virðist alltaf vera jafnerfitt að útskýra þetta fyrir mönnum sem ekki þekkja til. Á vorönn 2006 var brottfall í FG í STÆ-102,122 og 202 alls 7,4% en í STÆ-103 og 203 var það 0,0%. Einnig ber að hafa í huga að nemendur sem hætta snemma á önninni eru fleiri í hópi hinna slöku en hinna sem duglegir eru í bóknámi. Þetta segir sig sjálft. Þessir nemendur eru í erfiðleikum með námið og eru því líklegri til brottfalls á meðan þeir sem ná betri árangri festa sig í sessi í skólanum. Enn fremur er rétt að benda á að brotthvarf nemenda úr hægferðum eykst þegar þeir koma í efri áfanga. Af hverju er þetta ekki tekið út í heild sinni með óhlutdrægum hætti, t.d. tölfræðilegri úttekt þar sem allt er tekið með? Skólar með hægferðaráfanga fá af þessum sökum ekki fjármagn til að vinna samkvæmt löggjöf um að framhaldsskólinn sé fyrir alla. Samkvæmt reiknilíkaninu fær framhaldsskólinn aðeins fjárframlög fyrir þá sem skila sér til lokaprófs. Nemendur Það er fyrir löngu orðið tímabært að tala um kjarna málsins! Athugasemdir við reiknilíkansgrein Aðalsteins Eiríkssonar Samræða Aðalsteins Eiríkssonar og Þorsteins Þorsteinssona um reiknilíkanið heldur áfram og Þorsteinn bendir á hversu mikill munur er á framhaldsskólum sem einungis taka við sterkum námsmönnum og hinum sem hafa jafnt sterka sem slaka í sínum röðum. Það kostar mun fleiri vinnustundir hjá stjórnendum, námsráðgjöfum, kennurum og fleirum að ná fram viðunandi árangri hjá nemanda með slakan námsárangur heldur en nemanda sem er sterkur í námi. Það virðist alltaf vera jafnerfitt að útskýra þetta fyrir mönnum sem ekki þekkja til. Lj ó sm y n d f rá h ö fu n d i Launaumhverfi kennarastéttarinnar var bætt með gerð stofnanasamninga en hin lágu meðallaun í reiknilíkani eiga m.a. þátt í því að kennarar dragast nú stórlega aftur úr öðrum stéttum þjóðfélagsins í launum.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.