Skólavarðan - 01.12.2002, Blaðsíða 15
unum, ekki síst ritun. Í skólanum er boðið upp á val í 10. bekk í að
tala dönsku og það er mjög vinsælt hjá nemendum.“
Erna segist tala eins mikla dönsku og nemendur endast til að
hlusta á í kennslustundum, „og eftir því sem nemendur verða betri
þeim mun meiri dönsku tala ég við þá. Ég tala til dæmis oftast á
dönsku um innihald texta sem við erum að vinna með, þá þjálfast
nemendur í að beita þeim orðaforða sem er grunnurinn í textanum
og um leið festist hann. Tal þarf að tengjast þeim orðaforða sem
unnið er með hverju sinni.“
Ekki erfitt að hafa kennsluna fjölbreytta
„Ég nota námsefni frá Námsgagnastofnun sem grunn,“ segir
Erna, „en leita einnig ítarefnis sem tengist því þema sem við vinn-
um með hverju sinni. Ég hef alltaf að leiðarljósi að gæða kennsluna
lífi og finna eitthvað sem eykur fjölbreytni. Það er mikið námsefni
til og á ekki að vera erfitt að hafa kennslu fjölbreytta.
Í málfræðinni fer ég alveg eftir námskrá, þar kemur mjög skýrt
fram hvaða þætti málfræðinnar á að taka fyrir í hvaða árgangi og
eftir því fer ég.“
Álftamýrarskóli er móðurskóli í erlendum málum og það hvetur
til nýbreytni að sögn Ernu. „Núna er ég alveg dottin í tilraunir
með að nota tölvur í dönskukennslunni. Ég er að þróa, í samvinnu
við tölvukennarann í skólanum, alls konar leiðir í tungumálanámi
sem tengjast tölvum. Hér eru mörg spennandi tækifæri. Nemendur
eru orðnir svo tölvuvæddir að við verðum að fylgjast með. Ég held
að að minnsta kosti 90 % nemenda í 9. og 10. bekk hér séu með
nettengingu heima svo að ótrúlegir möguleikar skapast við að
beintengjast Danmörku. Ég er með valhóp í 9. bekk í Danska í
tölvum, og þar tilraunakenni ég ýmis verkefni áður en ég set þau út
á netið. Núna er hægt að setja nemendum fyrir verkefni heima á
netinu. Svona verkefnum skila nemendur strax því að þeim finnst
þetta skemmtilegt, það er ótrúlegt hvað hægt er að fá nemendur til
að gera ef þeir fá að nota tölvur! Við erum með heimasíðu, þar sem
kynnt er dönsk menning, og þar setjum við inn ýmis verkefni, bæði
gagnvirk og önnur.“
Erna leggur áherslu á heimanám og lætur nemendur sína senda
verkefni í tölvupósti ef þeir hafa ekki náð að skila á réttum tíma.
„Ég set alltaf eitthvað fyrir heima í dönsku og þá eitthvað sem
hægt er að fylgjast með að hafi verið unnið. Í þessum skóla eru
kennarar, foreldrar og nemendur sammála um mikilvægi heima-
náms svo að það er eðlilegur þáttur.
Í Álftamýrarskóli ríkir agi sem skiptir miklu máli í því hversu vel
nemendum gengur í náminu. Allir kennarar vinna saman að því að
halda aga og nemendur og ekki síður foreldrar eru ánægðir með þá
stefnu. Viðhorf kennara til dönsku er jákvætt og þeir eru alltaf til-
búnir að hliðra til ef þess gerist þörf einhverra hluta vegna. Nýlega
voru teknar í notkun fagstofur svo að nú hef ég mína dönskustofu.
Þetta breytir námsumhverfinu og hefur örugglega jákvæð áhrif á
nemendur.
Foreldrar í hverfinu eru mjög jákvæðir gagnvart skólanum og
því starfi sem hér fer fram og kemur það greinilega fram í dönsku
eins og öðrum greinum. Viðhorf foreldra til dönsku er jákvætt og
eins allt viðmót samkennaranna.
Það heyrist aldrei hér að danska sé leiðinleg og að ekki sé ástæða
til að læra norræn tungumál,“ segir Erna að lokum.
keg
Tungumálakennsla
17