Skólavarðan - 01.04.2003, Blaðsíða 12

Skólavarðan - 01.04.2003, Blaðsíða 12
þennan vanda verði séð fyrir vissum úrræð- um, eða svokölluðum erfiðustu tilfellum sem falla undir áðurnefnda ICD-10 flokk- un. „Greining og kennsla er dýr eins og dæmin sanna hjá einkaaðilum,“ segir Rann- veig. „Það hefur ekki hver sem er efni á að kaupa slíkt fyrir barn sitt. Í huga mínum er þessi spurning áleitin: Eiga börn rétt á greiningu í skólanum eða á hún að vera markaðsvara og kostur fyrir vel stæða? Það má einnig velta því fyrir sér í hvaða stöðu einkaaðilinn er. Hann þarf að nota álíka tíma í greiningu hvort sem niðurstað- an er dyslexía eða ekki. Hann leitar að rót vandans. Að sjálfsögðu vill hann koma til móts við skjólstæðingana, foreldra sem leita svara og vilja úrræði til handa börnum sínum. Hvötin fyrir greiningaraðilann til að segja „já“ er því mjög sterk. Þetta getur valdið togstreitu milli skóla og foreldra því þegar foreldrar eru komnir með greiningu upp á vasann frá aðilum, sem starfa ekki í tengslum við skólana, býður það þeirri hættu heim að þeir gagnrýni skólakerfið fyrir að ,,gera ekkert fyrir þessi börn og hafna því sem sérfræðingarnir segja“.“ Rannveig bendir á að dyslexía sé flókinn vandi og fólk þurfi að hafa aðgang að fjöl- breyttum úrræðum, Lestrarmiðstöð hefði átt að vera eitt úrræði í hópi fleiri. „Er vit í því að skrúfa fyrir úrræði af því það sinnir ekki öllum og auka þannig vandann í stað þess að bæta við úrræðum?“ spyr Rannveig að lokum. keg Nemendur blómstra í góðu sambandi við kennara Tónstofa Valgerðar er eini tónlist- arskólinn á landinu þar sem fatlaðir nemendur njóta forgangs. Tónlist- arnámið er hefðbundið en notaðar eru einstaklingsmiðaðar kennslu- aðferðir og lögð áhersla á að hver og einn læri á sínum forsendum og fái að njóta sín í náminu. Skólastjórinn, Valgerður Jónsdóttir, er jafnframt eini starfsmaður skólans og sinnir öllu sem sinna þarf. Skólavarðan hitti Val- gerði að máli og áhuginn á starfinu leynir sér ekki. Valgerður er mikil hugsjónakona en róðurinn hefur stundum verið þungur og skilningur mismikill á mikilvægi starfs- ins. Hún segir þó að skilningur og áhugi tónlistarkennara og skólastjóra á að sinna nemendum með sérþarfir sé að aukast og vonast til að nám í sérkennslu tónlistar verði frekar fyrr en síðar í boði hérlendis, enda sé þörfin brýn. Nemendur eru fyrst og fremst einstaklingar Valgerður kennir nemendum sem glíma við margs konar vandamál og þekkir þann vanda sem nemendur með dyslexíu þurfa að takast á við í tónlistarnámi. „Ég hef ekki kennt mörgum nemendum með dyslexíu- greiningu, en mjög margir nemenda minna kljást við sambærilegan vanda tengdan skynúrvinnslu,“ segir Valgerður. Þessi vandi tengist þá gjarnan fötlun af líkamleg- um, geðrænum eða vitsmunalegum toga. Ég legg mikla áherslu á að greining vand- ans veiti engar „patent“ lausnir, nemendur mínir eru einstaklingar fyrst og fremst. Þegar þeim er mætt á þeirra eigin forsend- um, þá kemur undantekningalaust í ljós að nemendurnir hafa ákveðið tónnæmi og í tónlistarnáminu finna þeir oft áður óþekkt- an styrk sinn.“ Valgerður segir að mjög mikilvægt sé að nemandinn „eigi“ kennarann, þ.e. að trún- aðarsamband myndist á milli þessara tveggja einstaklinga og að nemandinn finni fyrir væntumþykju kennarans í sinn garð og geti þar af leiðandi borið traust til hans. „Í tónlistarnámi eru einmitt kjöraðstæður fyrir þetta sérstaka samband af því að ein- staklingskennsla er ríkjandi. Kennarinn þarf að leita allra leiða til þess að nemand- inn blómstri.“ Tónstofa Valgerðar hefur verið starfandi frá árinu 1987. Valgerður lauk píanókenn- aranámi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og lærði síðar músíkþerapíu og tónlistar- kennslu í Bandaríkjunum og Noregi. Í Tónstofunni fer fram tónlistarkennsla fyrir nemendur sem víkja svo frá eðilegu þroska- ferli að þeir fá ekki notið hefðbundinnar tónlistarkennslu. Auk þess sinnir Tónstof- an einstaklingum á öllum aldri sem að mati foreldra og annarra þarfnast þeirrar þjálf- unar sem felst í músíkþerapíu. Nemendur Valgerður eru um fjörutíu talsins á öllum skólastigum, frá ungum börnum og elsti nemandinn er 58 ára. Þrátt fyrir að skólinn auglýsi ekki starfsemi sína eru á fimmta tug einstaklinga á biðlista. Það er því ljóst að þörfin og áhuginn eru mikil, en reksturinn er erfiður enda situr skólinn enn sem kom- ið er ekki við sama borð og flestir aðrir tónlistarskólar hvað varðar rekstrarstyrki en tekur þó ekki hærri skólagjöld. Valgerð- ur segir Fræðslumiðstöð Reykjavíkur hafa sýnt mikinn skilning á mikilvægi starfsins og hún er bjartsýn á að úr rætist innan tíð- ar. En í hverju felst vandi nemenda við skynúrvinnslu? „Tónlistarnám byggist meðal annars á sjón og heyrn og úrvinnslu samþættra skynáreita,“ segir Valgerður, „því getur nemandi með lesblindu þurft að glíma við erfiðleika í tónlistarnámi sínu sem eru sam- bærilegir við þá sem mæta honum í bók- námi. Þessir nemendur rugla til að mynda gjarnan saman vinstri og hægri hendi. Þeir eiga í erfiðleikum með að ákvarða hvor höndin eigi að spila hverju sinni, eiga erfitt með að láta hendurnar krossast og að skipuleggja hreyfingu í tíma og rúmi. Þeir eru yfirleitt klunnalegir og meta illa fjarlægð og skert fjarlægðarskyn getur komið fram í líkamsstöðu barnsins við hljóðfærið. Barnið situr til dæmis of nálægt píanóinu eða of langt frá því. Það á líka erfitt með að halda réttri stöðu vegna ókyrrðar. Erfitt er að yfirfæra lóðrétt sam- hengi vinstri og hægri handar á lárétta stöðu nótnaborðsins eða hljóðfærisins og barnið getur skort skilning á hvað er upp og niður, hátt og lágt. Einnig geta þessir nemendur átt erfitt með að ná þeirri slökun sem nauðsynleg er Dyslex ía 14 Tónlistina og tónlistarnámið má einnig nýta til að takast beint á við námsvandann og afleidd vandamál hans, svo sem skerta einbeitingu, kvíða og lágt sjálfsmat. Engir tveir nemendur eru eins, jafnvel þótt báðir séu með dyslexíu. Það er bara ekki hægt að gefa einfaldar lausnir á vandamálunum og segja „þetta virkar vel fyrir alla lesblinda“, við þurf- um alltaf að hafa í huga kennslu sem tekur mið af styrk og veikleika nemandans. Öll börn ættu að fá að kynnast tónlist sem tjáningarformi Tónlist eða tónmál er tjáningarform sem öll börn ættu að fá tækifæri til að kynnast, líka þau sem glíma við ein- hverja erfiðleika tengda úrvinnslu sjón- og heyrnaráreita. Margir afburða tónlistarmenn hafa aldrei lært að lesa nótur og treysta eingöngu á heyrn og heyrnarminni í stað hins sjónræna. Svo eru aðrir sem hafa afburða hreyfiminni og gagnast það vel ásamt með tónnæmi í tónlistarnáminu.

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.