Þjóðmál - 01.06.2014, Blaðsíða 43
42 Þjóðmál SUmAR 2014
Ein fyrirferðarmesta umræða ís lensks sam félags undanfarin ár hefur verið
um fýsileika aðildar Íslands að Evrópu-
sambandinu (ESB) . Stóra spurningin virðist
vera hvort Ísland eigi að lokast innan veggja
sam bandsins, eða ekki . Það þykir mér þröng
umræða . Hér verður gerð tilraun til að snúa
henni við og spyrja: Er ekki frekar þörf á að
minnka völd hins íslenska ríkisvalds en að
færa Íslendinga inn í enn stærri og öflugri
stjórneiningu?
Tvö öfl togast í sífellu á í samfélagi
manna . Annað er knúið áfram af þeim sem
vilja völd yfir samborgurum sínum . Hitt
er knúið áfram af vilja einstaklinga til að
ráða meira yfir eigin örlögum . Mætti segja
að hið fyrrnefnda standi að baki vinsælum
sameiningum sveitarfélaga á Íslandi, en
hið síðarnefnda endurspeglist í yfirleitt
neikvæðri afstöðu Íslendinga gagnvart ESB-
aðild . Er þjóðin klofin á geði?
ESB — í átt að aukinni miðstýringu
Hvað ESB varðar er vitaskuld hægt nefna góðar og slæmar hliðar á því .
Hið góða er meðal annars innri markaður
þess sem tryggir að tollamúrar rísi ekki á
milli aðildarríkjanna og að takmörk eru
sett fyrir því hversu mikið má takmarka
frjálsa fólksflutninga innan sambandsins .
Hið slæma er að tollamúrar umlykja sjálft
sambandið auk annarra viðskiptahindrana
sem settar eru á við umheiminn . Land-
búnaðarstefnan er hræðileg, skrifræðið er
gríðarlegt og spillingin þónokkur, svo dæmi
séu nefnd .
Ekki er þar með sagt að Íslendingar geri allt
betur í sinni landsstjórn en ESB myndi skikka
þá til að gera ef til aðildar kæmi, og margt
er í raunar slæmt á Íslandi í samanburði við
nágrannaríkin innan sambandsins . Það sem
kemur hins vegar í stað hinna örfáu kosta
aðildar er sveigjanleiki til að framkvæma
umbætur sem varla er hægt að ræða um
innan sambandsins . Mætti segja að sá
sveigjanleiki hafi ekki verið nýttur svo vægt
sé til orða tekið, en hér skal stungið upp á
einni aðgerð sem mætti hrinda í framkvæmd
nú þegar, sé á annað borð vilji til að bjóða
Íslendingum upp á aukin tækifæri til að leita
hamingjunnar á eigin vegum .
Geir Ágústsson
Í átt að smærri
stjórnunareiningum