Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 4

Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 4
4 Franskir dagar Les jours français Fyrir 80 árum síðan, þann 14. september 1936, héldu hjónin Páll Þorsteinsson (1863 -1959) og Elínborg Stefánsdóttir (1867 - 1951) veglega veislu í Tungu, Fáskrúðsfirði. Tilefnið var gull- brúðkaupsafmæli þeirra. Vilhjálmur Hjálmars- son segir svo frá: „Það var fagurt veður í Fljóts- dal sunnudaginn 14. september 1886, kyrrt og hlýtt. Séra Sigurður Gunnarsson á Valþjófsstað messaði heima þann dag, í Valþjófsstaðakirkju. Við guðþjónustuna voru gefin saman í hjónaband Páll Þorsteinsson frá Víðivallagerði og Elínborg Stef- ánsdóttir þá til heimilis á Eskifirði. Veisla var haldin í Víðivallagerði. Þegar kirkjufólkið reið inn yfir dal og vötn til veislunnar var lognið svo dátt að prestfrúin reið með skautfaldinn á höfði sér.“ Páll og Elínborg byrjuðu búskap í Víðilæk í Skriðdal, en fluttu eftir fjögur ár að Þingmúla þar sem þau bjuggu í sjö ár. Vorið 1898 fluttu þau hjónin svo að Tungu og bjuggu þar til vorsins 1925, að Gunnar sonur þeirra tók við búinu. Þegar Páll og Elínborg fluttu að Tungu var jörðin í mikilli niðurníðslu, hús voru öll í hinu versta ástandi og flest að falli komin. Þrjár torfbað- stofur voru á jörðinni, því þríbýli hafði verið þar áður, og þurfti að nota þær allar, enda var margt í heimili. Kom það sér vel að þau hjónin voru dugnaðarforkar og á örfáum árum var búið að byggja upp öll bæjarhús, slétta og girða túnið og leiða vatn um langan veg í bæ og fjós. Þau hjón voru rómuð fyrir framfarir bæði í menningar- málum og búskap. Páll var hreppstjóri í 27 ár og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum og Elínborg var annáluð fyrir tóvinnu. Elínborg og Páll eignuðust fjórtán börn en tvær dætur dóu í æsku. Til viðbótar við þennan barna- hóp tóku þau að sér fjögur systurbörn Páls. Þau voru hjúasæl og var oft margt vinnufólk hjá þeim. Það orð fór af þeim hjónum að þau væru bæði mjög gestrisin og er ekki að efa að þau hafi viljað fagna gullbrúðkaupinu með sem flestum ætt- ingjum og vinum. Árið 1936 voru börnin vaxin úr grasi og dreifð um landið, en þau lögðu mikla áherslu á að koma heim í Tungu af þessu tilefni. Sigsteinn Pálsson segir svo frá: „Þegar verið var að fala mig sem ráðsmann að Reykjum í Mosfellssveit setti ég það skilyrði að ég fengi frí hluta af september af því að foreldrar mínir ættu þá gullbrúðkaup en þau giftu sig 14. september 1886. Það var ekki algengt í þann tíð að fólk ætti 50 ára hjúskaparafmæli, það var jafnfátítt eins og að menn yrðu hundrað ára. Þó varð nú langafi minn, Jón Pálsson, hundrað ára, fæddur 1805 og dáinn 1905. Það var haldin vegleg veisla í Tungu. Við mættum þar öll systkinin og flestir af mágafólkinu og barnabörnunum, sem búsett voru á Austurlandi, ásamt fjölmörgu vinafólki. Sýslutjaldið var sett upp, þar var matarveislan. Ræðuhöld voru ein- hver en lítið um söng. Nóttina eftir veisluna gerði voðaveður um land allt. Þá nótt fórst „Pourquoi pas?“, franska rannsóknarskipið, vestur af Mýrum.“ (Úr viðtali sem Elínborg Stefáns- dóttir og Þórdís Þorvaldsdóttir tóku við Sigstein vorið 2003). Sýslutjald þetta sem Sigsteinn minnist á mun hafa verið keypt fyrir Alþingishátíðina 1930. Ekki eru margir á lífi sem mættu í þessa veglegu veislu. Elínborg Gunnars- dóttir bjó í Tungu á þessum tíma með foreldrum sínum, Gunnari Pálssyni og Önnu Vilhjálms- dóttur. Elínborg var þriðja í röð- inni af fimm systkinum. Hún var tæplega 9 ára þegar þetta gerðist, en man enn ýmislegt frá þessum viðburði: „Ég passaði Friðmar bróður minn þegar mamma var að undirbúa veisluna. (Friðmar fæddist í maí 1935 og var því rúmlega ársgamall). Ég var með gamla sálmabók og söng upp úr henni fyrir barnið. Þegar ég kunni ekki lagið við sálminn fór ég fram í eldhús og mamma söng lagið fyrir mig. Þannig lærði ég heilmarga sálma. Þegar fólkið var að koma heim í Tungu vorum við krakkarnir alveg undrandi á fjöldanum. Ég gleymi því aldrei að Sigsteinn frændi kom með orgel (harmoníum) sem hann gaf okkur systkinunum og þetta orgel var alltaf í Tungu. Veislan var matarveisla og Unnur (Pálsdóttir) var búin að Gullbrúðkaupið í Tungu 1936 Texti: Þórunn Guðmundsdóttir Myndir: Úr einkasafni Elínborg Stefánsdóttir (1867-1951). Páll Þorsteinsson (1863-1959). Uppdekkuð borð í sýslutjaldinu fyrir veisluna miklu. Gamla íbúðarhúsið í Tungu.

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.