Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 8

Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 8
Franskir dagar Les jours français 8 Björgunarbáturinn Hafdís er íslensk nýsmíði bátasmiðjunnar Rafnar ehf. í Kópavogi. Það sem gerir þessa tegund báta einstaka er sérstakt skrokklag sem nefnist Ok hull og er uppfinn- ing eiganda fyrirtækisins Össurar Kristinssonar. Hefðbundinn hraðbátur notar vélaraflið til að lyfta sér upp úr sjónum og siglir eða fleytir kerl- ingar ofan á haffletinum á meðan bátar frá Rafnar eru svokallaðir særýmisbátar sem ryðja sjónum frá sér en lyfta sér ekki upp. Þetta gerir það að verkum að bátarnir eru einstaklega mjúkir í sjó og álagið á áhöfnina er mun minna en í hefð- bundnum bátum. Hafdísin er sérhannaður sjálfréttandi lokaður björgunarbátur og því er um algera byltingu fyrir björgunarsveitina Geisla að ræða. Félagar sveit- arinnar hafa tekið þátt í hönnunarferlinu og bát- urinn því sniðinn að þörfum sveitarinnar. Áhöfn Hafdísar hefur nú tækifæri til að flytja og annast sjúklinga í liggjandi stöðu inni í upphit- uðu húsi en hingað til hafa aðeins björgunarskip Landsbjargar og björgunarbáturinn Þór í Vest- mannaeyjum getað það. Þetta eykur notkunar- gildi bátsins mikið og getur stytt tímann sem tekur að flytja slasaða eða veika sjómenn undir læknishendur. Til þess að það megi verða þurfa þó þeir aðilar sem koma að björgunarmálum á sjó að hugsa þetta sem mögulegan kost í stöðunni því hingað til hafa menn treyst nánast alfarið á þyrlur Landhelgisgæslunnar til að sinna sjúkra- flutningum af sjó. Fram hefur komið í fjölmiðlum að flugtími á þyrlu Landhelgisgæslunnar kostar um það bil 700.000 kr. á meðan áætlanir björg- unarsveitarinnar gera ráð fyrir að siglingatími á Hafdísi kosti um það bil 40.000 kr. Nýja Hafdísin er vel tækjum búin til leitar og björgunarstarfa eins og sést á meðfylgjandi myndum innan úr stýrishúsinu. Báturinn er búinn öllum fullkomnustu siglingatækjum auk hita- myndavélar sem auðveldar leit í slæmu skyggni. Hann er einnig búinn Sidescan hátíðni dýptar- mæli sem teiknar ansi nákvæma mynd af botn- inum, sjálfstýringu sem getur stýrt bátnum sjálf- virkt í leitarferla, tveimur VHF talstöðvum, Tetra talstöð, 3G síma og mörgu fleiru. Einnig verður reynt að búa bátinn sem best með lausabúnaði og er til að mynda í honum dæla sem dælir 1200 lítrum á mínútu, sjúkrabúnaður og fleira. Gert er ráð fyrir að í áhöfn bátsins séu þrír eða fjórir björgunarmenn og er báturinn hannaður með það að leiðarljósi að uppstilling í stýrishús- inu geti verið mismunandi eftir því hvaða verk- efnum er verið að sinna. Öll sæti og bekkir eru því á hraðfestingum svo hægt sé, með auðveldum hætti, að færa þau til eftir því hvort um leitar- eða björgunarverkefni er að ræða eða sjúkraflutning. Björgunarsveitin þakkar þeim aðilum sem styrktu þetta stóra verkefni, það er ykkar framlag sem gerir það að verkum að við getum með miklu stolti sagt að á Fáskrúðsfirði sé einn best búni björgunarbátur í eigu björgunarsveitar á landinu. Björgunarbáturinn Hafdís Texti og myndir: Óskar Þór Guðmundsson Uppstilling í stýrishúsi fyrir hefðbundin leitar- og björgunarstörf. Hafdís í heimahöfn á Fáskrúðsfirði. Uppstilling í stýrishúsi fyrir sjúkraflutning.

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.