Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 30

Franskir dagar - 01.07.2016, Blaðsíða 30
Franskir dagar Les jours français 30 Dagana 3.- 6. júlí 2015 var farin árleg fuglamerk- ingarferð í Skrúð. Leiðangursmenn að þessu sinni voru þeir Ólafur Á. Torfason leiðangursstjóri, Þorvaldur Björnsson merkingarmaður og Óskar Andri ljósmyndari og greinarhöfundur. Árið 2015 var merkilegt að því leyti að þetta var 20 ára afmælisferð en Ólafur Torfa hefur leitt merk- ingarleiðangra í Skrúð hvert ár frá 1995. Fyrstu ferðina fór Ólafur undir handleiðslu þeirra Sig- urðar Ingvarssonar og Páls Leifssonar. Síðan þá hafa verið merktir 22.942 fuglar í eynni. Helstu fuglarnir sem eru merktir eru súlur og langvíur en einnig er merkt nokkuð af ritu, stuttnefju, lunda, fýl og fleiri fuglum. Skrúður tilheyrir Vattarnesi og eftir að hafa frest- að leiðangrinum um sólarhring vegna veðurs, var haldið af stað þaðan á slöngubát kvöldið 3. júlí. Það var bjart og fallegt á meðan siglt var út en fljótlega faðmaði Austfjarðarþokan eyjuna og Þorgeir Starri Hermannsson, sem sigldi með okkur út, varð veðurtepptur í eyjunni til morguns. Ábúendum á Vattarnesi vil ég senda sérstakar þakkir fyrir siglinguna og að hafa fengið afnot af eyjunni. Í stórum hellisskúta er gamalt og vel veðrað gistiskýli sem við höfðum til afnota, kallað Hótel Skrúður, reist af lundaveiðimönnum. Allir dagarnir voru vel nýttir til að heimsækja helstu súlu- og langvíubyggðir. Ungar voru misjafnlega á sig komnir, til að mynda virtust margir langvíu- ungar tilbúnir að fara og sátu fullorðnar langvíur víða á sjónum að kalla á ungana. Eitthvað virtist súluvarpið hafa dreift sér yfir mjög langt tímabil. Í súlubyggðinni voru allt frá ungum að koma úr eggjum, í stóra, stálpaða unga sem voru búnir að missa allan dún. Hugsanlega hefur kuldakast eftir Fuglamerkingar í Skrúð Texti og myndir: Óskar Andri Súla - sjálf drottning Atlantshafsins. Fýll með hreiðurstæði umlukið skarfakáli.Langvía snöruð. að fyrstu fuglarnir urpu orðið til þess að seinka varpi hjá öðrum fuglum. Skrúður er ævintýralegur staður og algjör paradís fyrir fuglaáhugafólk, en að sama skapi er þessi staður erfiður yfirferðar og margar fuglabyggð- irnar eru brattar og leiðirnar þangað ógreinilegar. Eins og við bjuggumst við urðum við veðurtepptir nokkurn tíma. Reynt var að fara á slöngubát frá Vattarnesi að kvöldi 5. júlí en hann sneri við vegna veðurs. Veðrið lagaðist ekkert og þegar ljóst var að það myndi ekkert lagast næstu daga var Björgunarsveitin Geisli á Fáskrúðsfirði fengin til að koma og sækja okkur að kvöldi 6. júlí. Fær Geisli sérstakar þakkir fyrir aðstoðina, útbúnaður og fagmennska þeirra er Fáskrúðsfirðingum til fyrirmyndar. Þótt að Skrúður sé ekki slæmur staður til að vera veðurtepptur á, var ánægjulegt að komast í land. Ég vona að mér gefist færi á að koma þarna út aftur og leiðangurstjórinn fær bestu þakkir fyrir vel heppnaða ferð. Samtals voru fangaðir og handfjatlaðir 1192 fuglar í ferðinni. 1056 fuglar fengu ný merki, 136 fuglar höfðu áður verið merktir og af þeim voru 24 langvíur sem höfðu verið merkar sem fullorðnir fuglar í fyrsta leiðangrinum 1995 og eru því að minnsta kosti 24 ára gamlar.

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.