Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2014, Blaðsíða 63
Ritrýnd grein
Timarit um menntarannsóknir /
Journal of Educational Research (lceland) 11, 2014, 61-82
Kenning um hinn góða háskólakennara:
Hvaða eiginleika og færni þurfa
góðir háskólakennarar að hafa?
Sigríður Halldórsdóttir
Háskólanum á Akureyri
Eitt af höfuðmarkmiðum háskóla er að háskólanemar fái hágæðakennslu. Það er erf-
itt að skilgreina gæði því það er margslungið og flókið hugtak. Gæðum í háskólum
hefur stundum verið skipt í gæði sem umbreytingu (e. quality as transformation),
ferli sem felst í því að umbreyta einstaklingum, og gæðaeflingu (e. quality as en-
hancement), ferli sem snýst um að breyta háskólum til betri vegar. Flestir eru sam-
mála um að háskólum sé ætlað að breyta háskólanemum, t.d. með því að efla með
þeim gagnrýna og skapandi hugsun. Áhrif kennara á nema og nám þeirra hafa
lengi verið rædd. Með kenningunni sem hér er sett fram er því viðhorfi ögrað sem
virðist landlægt í almennri umræðu um gæði í háskólum að góðir háskólakenn-
arar skipti þar litlu máli. Rannsóknir benda til þess að munur á árangri kennara
geti verið mikill og því er mikilvægt að koma auga á þá kennara sem ná betri ár-
angri en aðrir og jafnframt að finna þá þætti sem valda því. Markmiðið er að setja
fram kenningu um góða háskólakennara sem lykilpersónur í gæðum. Spurningin
sem leitast er við að svara er: Hvaða persónulega eiginleika og færni þurfa góðir há-
skólakennarar að hafa til að verafærir um að efla háskólanema og taka þátt t umbreytingu
þeirra? Aðferðin sem notuð var við kenningarsmíðina er kenningarsamþætting (e.
theory synthesis) þar sem dregnar eru saman niðurstöður fjölmargra rannsókna og
fræðilegra skrifa. Samkvæmt kenningunni hafa góðir háskólakennarar færni á sjö
sviðum: samskiptafæmi, kennslufærni, umhyggjufærni, tilvistarfærni, siðferðilega
færni, fæmi í að efla háskólanema og færni í ígrundun og sjálfsrækt. Samkvæmt
kenningunni em góðir háskólakennarar þroskaðir einstaklingar, bæði persónulega
og faglega; háskólanemar finna að þeim er annt um þá og nám þeirra; samskiptin
em styrkjandi og eflandi; og háskólakennararnir hafa jákvæð og eflandi tengsl við
nema sem beinast að námi þeirra og jákvæðri umbreytingu þeirra. Kenningin hefur
gildi fyrir háskólakennara í viðleitni þeirra til að stunda ígrundandi sjálfsskoðun og
sjálfsrækt sem kennarar. Hún er jafnframt innlegg í umræðu um gæði í háskólum.
Lykilorð: gæöi sem umbreyting; háskólakennarar; háskólanemar; kennsla; nám.
61