Félagsbréf - 01.10.1962, Blaðsíða 42

Félagsbréf - 01.10.1962, Blaðsíða 42
Framtíð manns og heims TPorvitnin beinir auguni í allar áttir, en glöggt verður ekki séð nema til líð- andi stundar og fortíðar. Hulum framtíðarinnar hefur ekki tekizt að lyfta þrátt fyrir endurtekna viðleitni sagnfræðinga, heimspekinga og náttúrufræðinga. Margir telja, að einna skörpust sýn til framtíðarinnar hingað til komi fram í mjög svo stórbrotinni og alþýðlega fram settri bók, sem franskur vísinda- maður sendi frá sér fyrir skömmu, og nefndi Histoire de l’Avenir. Hlaut hann Nautilus-verðlaunin frönsku fyrir bókina, sem hefur vakið geysiathygli. Dr. Broddi Jóhannesson hefur nýlega lokið við að þýða þessa bók á íslenzku, og kemur hún innan skamms út hjá Almenna bókafélaginu sem bók mánaðarins fyrir október undir nafninu FramtíS manns og heims. Höfundurinn, dr. Pierre Rousseau ])rófessor, er 57 ára að aldri og heíur sent frá sér 16 bækur. Mun hann í hópi fremstu rithöfunda lieimsins, þeirra sem skrifa alþýðlegar bækur um vísindaleg efni, enda hefur hann hlotið margs konar viðurkenningu fyrir verk sín, m.a. tvisvar sinnum hjá frönsku akademí- unni. Það sem fyrst og fremst einkennir bókina Framtíð manns og heims er hin víða, skarpa sýn, hvort heldur hann lítur um öxl eða fram á leið. Undir- stöðulögmál hans er, að sömu orsakir hafi sömu afleiðingar, jafnt í framtíð sem fortíð. Hann byrjar því á að kanna fortíðina og leitar þar jöfnum hönd- um fyrir sér á sviði fornfræði, sögu, mannfræði, jarðfræði, stjarnfræði, líffræði og hvers kyns tækni og þróunar hennar. Frá fortíðinni fetar hann sig yfir í samtíð og frá samtíð til framtíðar. Fyrsti þáttur fjallar m.a. um vísindin fyi'r á tíð, sem döfnuðu við fögnuðinn af því að vita og skilja, en breyttu ekki ásýnd heimsins í neinu — og vísindi nútímans, sem höf. telur auðkennast af sigur- gleði, fögnuðinum af að sigra, leggja undir sig. Vísindamennirnir séu „nýtízku málalið“, jafnvel mansalslýður, sem höfðingjar heimsins kaupi til starfa. Og nu séu vísindin frumþáttur hinnar sögulegu framvindu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.