Félagsbréf - 01.12.1962, Blaðsíða 55

Félagsbréf - 01.12.1962, Blaðsíða 55
BÆKUR Agnar ÞórZarson: Gauksklukkan. Leikrit í tveimur þáttum. Helgafell. Reykjavík, 1962. JMfsvandi smáborgarans virðist Agnari Þórðarsyni nákomnast viðfangsefni, vandi mannsins sem unir ekki hversdagshlutskipti sínu en brestur afl til að skapa sér eigið líf að hæfi, viljugur að rísa gegn rangs- leitni en brestur þrótt að berjast til sigurs eða falla. Söguhetjur hans bera ósigur sinn hið innra með sér; uppreisnarviðleitni þeirra gegn rangsnúnu og prettvfsu um- hverfi er fyrirfram dæmd vegna innri veik- leika sjálfra þeirra. Svo er um báða þá ungu menn sem frá segir í skáldsögum Agnars, Haninn galar tvisvar og Ef sverð þitt er stutt, og svo er enn um Stefán, tón- listarsinnaðan bankaritara í Gauksklukkunni. Þessum efnivið velur Agnar jafnan form raunsærrar samtímalýsingar (nema í fyrsta leikriti sínu, Þeir koma í haust); hann er glöggskyggn ó bresti og misfellur samtíma 6Íns og ádeilublandið háð er ríkur þáttur allra verka hans, ekki bara gamanleikanna. 1 rúlegt virðist að Agnar Þórðarson ætli Gauksklukkunni öllu meiri hlut en öðrum leikritum sínum. Þótt gamanleikir hans séu léttir í sniðum og fari allvel á sviði, skop þeirra oftast hittið, er skáldlegt gildi þeirra býsna lítilvægt. Einfaldar kunnuglegar mann- U’singar; ærslafenginn kunnuglegur söguþráð- ur; yfirborðsleg kunnugleg „ádeila“: dágott hlátursefni eina kvöldstund; en mann hefur stundum órað fyrir því að höfundur léti vinsældir þessa leikforms hérlendis villa sig af leið. Gauksklukkan stendur nær skáld- sögunum. Hún er á sama hátt og þær til- raun til raunsæilegs samtímaskáldskapar sem risti dýpra en spéleg yfirborðsmynd. Leik- form það sem Agnar ástundar er nánast e.k. alvarlegur gamanleikur; Gauksklukkan er enginn harmleikur, enda er Stefán ekki tragísk persóna frekar en aðrar söguhetjui höfundar. Engu að síður eru örlög hans tragísk: Stefán er dæmdur til að steyta á blindskerjum sjálfsblekkingar og draumóra; hann er ekki maður til að fylgja fram upp- reisnarviðleitni sinni gegn umhverfinu sem hann er fastbundinn í veikleik sínum, en hann er ekki heldur maður til að taka skipbrotinu, sætta sig við hversdagsumhverfi sitt og gera þess líf að sínu. Hann á í hvorugum staðnum heima og er þó bundinn báðum. Vandi Agnars Þórðarsonar er að túlka þetta harmgildi þannig að allt inntak þess komist til skila og án þess að raun- sæisbúning verksins sé hnikað; sambærileg- an vanda hefur honum tekizt misjafnlega að leysa í skáldsögum sínum, og í Gauks- klukkunni er hann lausn hans enn fjær en þar. Meginveikleiki Gauksklukkunnar virðist einmitt vera hversu óljósum skilningi höf- undur skilur þessa söguhetju sína, hversu lítil tök hann kann á að gera sálarklofning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.