Kjördagurinn - 30.01.1938, Blaðsíða 1

Kjördagurinn - 30.01.1938, Blaðsíða 1
Hverja á að kjósa? Hvar sem maður er staddur, hvort heldur er úti á götu, eða inni ( húsi, heyrir maður varla um ann- að talaðen bæjarstjórnarkosningarn- ar, sem fram eiga að fara í dag. Það er heldur engin furða þó menn taii mikiö um kosningar þessar, því framtíö bæjarins veltur á því næstu fjögur árin, og sjálfsagt hefir afleiö- ing þessara kosningaáhrif á afkomu bæjarins í lengri tíma. Hf bænum verður vel stjórnað, og reynt að rétta hann við úr því öngþveyti sem búið er að setja hann í, og ef það gæti tekist að einhverju leyti, þá getur það orðið undirstaða til vel- megunar bæjarins, eins og það verð- ur þveröfugt ef skuldabjásnið verö- ur aukið, og sú leið haldin áfram er farin hefir verið hingað til. Nú um 20 ár hefir sami flokkur- inn haft hér meirihluta í bæjarstjórn og nú um mörg ár hafa sömu menn- irnir veriö þar fulltrúar þess flokks, hafa þeir því ráðið yfir málum bæj- arins. Og hveríg hafa þeir svo gjört þaö? Hvað hafa þeir gjört til að útrega atvinnu í bæinn, svo menn gætu unnið fyrir lífi sínu? Eg held aö þaö sé fremur lítið. — Það er reyndar satt, að fjórir mótorbátar hafa verið keyptir, fyrir tilstylli þeirra að miklu leyti, hefir þaö auö- vitað gefið nokkrum mönnuui at* vinnu, en lítiö hefir þaö gefiö í aðra hönd fyrir bæjarfélagið í heild, Þegar atvinnurekendum hér var gert svo erfitt með aö reka hér at- vinnu, eð flestir urðu að hætta, þá þóttust nú fyrirliöar Jafnaöarmanna ætla að gjöra mikiö og taka stjórn atvirmuveganna í sínar hendur, átti nú að sýna hvað þeir gætu. Eg veit ekki hvað þeir hafa gjört í þessum efnum, annaö en þaö, að þeir hrifsuðu kolasöluna úr hönd- um þeirra manna er höfðu hanaog þóttust ætla að selja mönnum ódýr- ari kol en menn fengju þau hjá „prívat" kaupmönnum. Vissulega voru Iíka kolin ódýrari þegar bær- inn byrjaði að verzla með þau, en það var bara rétt á meðan að ver- ið var að eyðileggja „prívat" kaup- mennina. Nú eru kolin orðin mikl- um mun dýrari en hjá kaupmönnum annarstaðar á landinu. Þetta var nú sú hjálp og umhugsun fyrir fátæk- Iingunum sem þeir sýndu í það skift iö. Kolasalan er lítil atvinnubót, ef hún ætti að vera einasta vinnan er bæjarbúarhefðu. Til þess að útvega mönnum aðra og meiri atvinnu hef- ir nú undanfarin ár verið unnin svokölluö atvinnubótavinna, og vita allir á hvaö heilbrygöum grundvelli sú vinna er bygö. Þaö hefir veriö byrjaö á ýmsu í þessari vinnu, og er sumt af því hálf gjört verk, svo sem Eyrarvegurinn, barnaleikvöllur- inn og svo þessi nýi vegur, sem byrjað hefur verið á í vetur, (ogsem líldega á að líggja upp í Botnaeða upp á Strandartind). — Hefði nú ekki verið nær að ljúka viö barna- leikvöllinn fyrst, svo ekki þurfi að láta börnin ætíð vera ágötunum aö leika sér, og er inerkilegt, að ekki skuli fyrir löngu hafa hlotist þar af slys. Þaö eru flestar mæöur, sem ekki geta fylgt börnunum eftir, hafa ekki efni á því að kaupa sér hjálp til að gæta þeirra, og ekki annar staður fyrir þau úti en gatan. Eg hygg.aö margirforeldrar heföu veriö bæjarfulltrúunum þakklátir fyrir aö láta ljúka viö þetta verk. Þá held eg að heföi verið næst að nota eitt- hvaö af atvinnubótaféinu til að halda áfram með Eyrarveginn, þvl fyrat að byrjað var á honum, hlýtur að eiga að klára hann, og þá bezt aö gjöra það áður en byrjað er á ný- um vegi, sem engin þörf er á, og sem eg tel aö sé bænum til skamm- ar, ekki af því aö eg álíti aö hann sé illa gerður, heldur afþví, aðmér finnst það lítil hugsun, að henda D-listinn, er listi Sjálfstæðisflokksins! . Míoseci'

x

Kjördagurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjördagurinn
https://timarit.is/publication/1197

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.