RM: Ritlist og myndlist - 01.03.1948, Blaðsíða 4
Skriftamál
Það þarf mikla bjartsýni til að stofna nýtt bókmenntatímarit
á íslandi. Reynslan er engan veginn á þann veg, að livetjandi
megi teljast. Flest slík rit hafa lifað skamma ævi, ýmist tekið
einhvers konar uppdráttarsýki og dáið úr henni, eða látið leiðast
inn á annarlegar brautir og horfið bókmenntuninn að mestu.
Ágæt tímarit, — Iðunn, Vaka, Helgafell — hafa risið hér upp
og dafnað skamma stund, en látizt fyrr en varði, án þess að
neinn vissi eiginlega hvert banameinið var.
Við, sem hófum útgáfu RM á öndverðu síðasta sumri, vorum
bjartsýnir. Ætlun okkar var sú, að gefa út fjögur hefti þegar á
því ári og síðan sex hefti árlega, — helzt í mörg ár. En við
rákum okkur brátt á það, að vegur íslenzkra tímarita er ekki
alltaf blómum stráður. Auk hins stöðuga vandamáls, að afla
frambærilegs efnis, urðu margir fleiri erfiðleikar á vegi. Fyrr
en varði þraut okkur bæði pappír og fjármuni. Við vorum hús-
næðislausir með afgreiðslu ritsins. Afleiðingin varð sú, að fyrsti
árgangurinn náði eigi nema helmingi þeirrar stærðar, sem áætluð
hafði verið, varð aðeins tvö hefti. Fram til áramóta mátti heita
allt í óvissu um framtíð ritsins. Okkur þótti súrt í broti, að
gefast upp við svo búið, einkum þar sem ritinu hafði verið
allvel tekið og ýmsir góðir menn hvöttu okkur til að leggja
ekki árar í bát.
Nú hefur þannig skipazt, að við hefjum útgáfuna á nýju án
af eigi minni bjartsýni en upphaflega. ísafoldarprentsmiðja h.f.
2