Fréttabréf - 01.12.1983, Blaðsíða 1

Fréttabréf - 01.12.1983, Blaðsíða 1
^6 ~ZJf FRETTABREF 1. tbl. 1. árg. 1983 Otzgefandi: Kvennalistinn Abyrgöarraaöur: Ina Gissurardóttir Ágætu Kvennalistakonur, Fréttabréf Kvennalistans hefur nú göngu sína. Þaö er einlæg von okkar, seni aö fréttabréfinu stöndum, að þaö megi veröa til þess aö auka samstööu okkar. Samstaðan er styrkur okkar og aö henni verðum viö aö hlúa. Tilgangur fréttabréfsins er aö segja fréttir af starfi Kvennalistans: Störfum þingkvenna, bakhópa, framkvæmdaráös, þingráðs og Kvennalistakvenna í opinberum nefndum. Einnig aö miöla fréttum utan af landi og út á land. Þær sem ekki komast á fundi eiga aö geta fylgst meö því helsta sem er aö gerast. Okkur vantar fréttir - ekki síst frá ykkur, konur utan höfuöborgarsvæöisins. Hvaö þið eruð að gera og ræöa. Fréttabréfinu er ætlað að bæta úr sambandsleysi milli landshluta. Sendið fréttir, fundarboö, hugleiöingar eða annað efni, helst bréflega. Stuttar fréttir má hringja. Fréttabréfiö á aö koma út mánaðarlega og efni þarf að berast meö góöum fyrirvara. Við bjóöum einnig smáauglýsingar á kr. 100.- (1-30 orö). Ina Gissurardóttir er starfsmaður Kvennalistans og hún er við á Hótel Vík, Vallarstræti 4, 101 Reykiavík, frá kl. 14-18 virka daga. Siminn er 13725. Fréttabréfið er ódýrara í pósti en venjulegt fundarboð og sjálfsagt aö nýta þennan kost til hins ýtrasta. Þetta fyrsta fréttabréf er tilraun. Viö erum aö þreifa fyrir okkur með tilhögun þess og útlit. Ef þiö hafið gagnlegar ábendingar um þaö sem betur mætti fara eru þær vel þegnar. I von um góða samvinnu sendum við ykkur kínverskt spak- mæli að leiðarljósi: Segöu mér, ég hlusta sýndu mér, ég man leyfðu mér aö taka þátt, ég skil. M.S.

x

Fréttabréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf
https://timarit.is/publication/1209

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.