Víkurfréttir - 28.11.1991, Blaðsíða 21
Fréttir
Marga
daga
Nú á tímum hraða og spennu
þá getum við Islendingar vart
verið án bíls og allt er ó-
mögulegt ef „tíkin“ þarf að fara
á verkstæði í einn dag og hvað
þá lengur. Eigandi þessa bíls
hafði ekki miklar áhyggjur af
bílleysinu. Eftir að hafa ekið
útaf Hafnaveginum og yfir
stórgrýti svo bíllinn var kol-
fastur, lét bílstjórinn þar við
sitja og „húkkaði" far heim.
Lögreglan hafði að sjálf-
sögðu áhyggjur af bílnum og
því var haft samband við eig-
andann. Þá kom í Ijós að vika
var liðin frá þvi að bílnum var
ekið útaf og eigandinn ætlaði að
sækja Itann „einhvern næstu
daga“. Nú er búið að fjarlægja
bílinn, tæpum hálfum mánuði
eftir að óhappið átti sér stað og
þurfti til þess stórvirk tæki. Það
er sannarlega enginn asi á eig-
andanum. Ljósm.:hbb
• Það þarf mikla natni
við gerð aðventuskreyt-
inga.
Ljósm. epj.
________21
Víkurfréttir
28. nóv. 1991
• Bíllinn við Skátahusið er mikið skemmdur eins og sést ef myndin prentast vel.
Ljósmvndir: libb.
STAKK Á 38 HJÓLBARÐA
OG STÓRSKEMMDI BÍL
Lögreglan leitar nú aðila sem
kunna að tengjast fjölmörgum
skemmdarverkum á bifreiðum
í Njarðvík aðfaranótt sl. sunnu-
dags. Þá var stungið á a.m.k. 38
hjólbarða og stórtjón unnið á
lakki bifreiðar utan við fé-
lagsheimili Hjálparsveitar skáta
í Njarðvík.
„Við eigum ekki orð til að
lýsa þessum skemmdarverkum.
Þetta er furðulegur hugsun-
arháttur hjá þeim sem gerir
svona,“ sagði einn félagi í
Hjálparsveit skáta í samtali við
blaðið. Miklar skemmdir voru
unnar á bifreið eins félaga
HSN. Sjö göt voru stungin á
hvern hjólbarða og bíllinn allur
rispaður með eggjámi. Þá hafði
verið sparkað í hliðar bílsins
svo þær voru meira og minna
dældaðar. Bíllinn hafði staðið
fyrir utan skátahúsið urh nótt-
ina, þar sem skátarnir voru í
helgarferð í Skorradal.
Skammt frá skátahúsinu er
bifreiðaverkstæði. Þar urðu
sextán bifreiðar fyrir barðinu á
skemmdarvargnum. Stungið
var á hjólbarða og það rnörg göt
á hvert dekk. Víðar um Njarð-
vík voru skemmdir unnar á bíl-
um. Má þar m.a. nefna Þórustíg,
Grundarveg, Hólagötu og loks
Holtsgötu.
Bifreiðamar voru flestar á
Vallamúmerum, þ.e. með gul
númeraspjöld eða upp-
hafsstafina „JO“. Einnig urðu
bílar á íslenskum númerum
fyrir barðinu á skemmd-
arvargnum eða vörgunum.
Þórir Maronsson, yf-
irlögregluþjónn, sagði í samtali
við blaðið á þriðjudag að allt
verði gert til að hafa uppi á
þeim er skemmdirnar unnu.
Einstaklingsíbúð eða herbergi
í Keflavík eða Njarðvík. Uppl.
í síma 91-45319.
-Til leigu
Nýleg 2ja herbergja íbúð
laus strax. Uppl. í síma 14455.
2ja herberg,ja íbúð
laus strax. Uppl. í síma 12298.
° Til sölu
250 I. fiskabúr
með öllu. Uppl. í síma 16212
eftirkl. 18.00.
Ýmislegt
Atvinna óskast
Kona óskar eftir vinnu, margt
kemur til greina (vaktavinna)
hefur reynslu á tölvu. Uppl. í
síma 16212 eftir kl. 18.00.
Börnin og við
Mánaðarlegi rabbfundur fé-
lagsins verður haldin á Heilsu-
gæslustöðinni í Keflavík mánu-
daginn 2l.des. kl.21.00.
Umræðuefni „ Stíflur" Stjórn-
in.
Hvernig væri að lífga upp á
jólastemminguna?
Önnumst lifandi tónlistar-
llutning. Allar nánari upplýs-
ingar í síma 68632.
Tapað - Fundið
Mjallhvít læða
með bláa hálsól tapaðist frá
Túngötu 17 Keflavík laugar-
daginn 23 nóv. Finnandi vin-
samlegast láti vita í síma 13084
fundarlaun.
• Skrúfjárn voru sett í götin á dekkinu til að sýna fjölda
stungugatanna.
KÓSÝ:
Námskeið í gerð
jólaskreytinga
Blómabúðin Kósý býður fólki nú að sækja kvöldnámskeið
t gerð jólaskreytinga. Verða slík námskeið í gangi fram eftir
mánuðinum. Fer skráning fram í versluninni.
Myndirnar sem fylgja greininn voru teknar á fyrsta nám-
skeiðinu, sem fram fór á mánudagskvöld.
Sálin hans
]óns míns
á stórdansleik í Stapa
nk. laugardagskvöld.
Aldurstakmark 18 ára.
Húsið opnar kl. 23.
Körfuknattleiksráð
UMFN