Orð og tunga - 01.06.2002, Blaðsíða 21

Orð og tunga - 01.06.2002, Blaðsíða 21
Guðrún Kvaran Jón Ófeigsson og „stór orð“ Lýsing orða, sem notuð eru á margbreytilegan hátt, hefur löngum verið orðabókar- mönnum höfuðverkur. Þá er einkum átt við sagnir, sem geta haft margvíslega merkingu, stýrt fleiri en einu falli, tekið með sér ýmis fylgiorð eða verið hluti af föstum orðasam- böndum og málsháttum, en einnig forsetningar og nokkur nafnorð. Ýmsar leiðir hafa verið famar til þess að lýsa þessum „stóru orðum“ og talsverð heilabrot hljóta að liggja að baki hverri ákvörðun. Einn þeirra sem þurfti að fást við lýsingu flókinna orða var Jón Ófeigsson, aðal- aðstoðarmaður Sigfúsar Blöndals við ritstjórn og útgáfu Islensk-danskrar orðabókar. Hvorki er unnt að sjá af formála bókarinnar né af þeim bréfum varðandi bókina, sem mér hafa verið tiltæk, að einhver sérstök erlend orðabók hafi verið fyrirmynd að Blön- dalsbók hvað ritstjórn og frágang varðar og engri íslenskri er til að dreifa. Að sjálfsögðu hafa einhverjar orðabækur kveikt hugmyndir, en eftir því sem best verður séð var bókin mótuð í höfðum ritstjóranna, þeirra Sigfúsar og Jóns. Björg Þorláksdóttir, fyrri kona Sigfúsar og einn þriggja aðalaðstoðarmanna hans, virðist lítið hafa komið beint að þessum þætti verksins þótt umsagna hennar hafi verið leitað. Hennar meginvinna lá í orðasöfnuninni og öflun fjár til útgáfunnar. Þriðji aðstoðarmaðurinn, Holger Wiehe, bar ábyrgð á dönsku þýðingunum. í handritadeild Landsbókasafns-Háskólabókasafns liggur böggull með bréfum ým- issa manna og kvenna til Sigfúsar, skráður Lbs. 3464 4to1. A meðal þeirra eru allmörg bréf frá Jóni Ófeigssyni og snýst efni þeirra að mestu um orðabókina sem forvitnilegt er að lesa. Talsvert er þar að finna um hugmyndir hans að hljóðritun og því kerfi sem notað er í orðabókinni, en einnig er í þremur bréfum hægt að lesa um „stóru orðin“. Bréf Sigfúsar til Jóns eru ekki varðveitt, svo vitað sé, og verður því að geta í eyðurnar um viðbrögð hans við hugmyndum Jóns. Elsta bréfið um þetta efni er dagsett 31. ágúst 1919. Ritstjóm var þá komin vel af stað enda kom fyrsti hluti verksins út 1920. Jón virðist áður hafa skrifað Sigfúsi um atriði varðandi ritstjórn, en það bréf tókst mér ekki að finna. í bréfinu frá 31. ágúst má lesa um hugmyndir Jóns og tekur hann dæmi um sögnina að gefa:2 1 Starfsfólki handritadeildar Landsbókasafns-Háskólabókasafns þakka ég góða aðstoð. 2Skáletrað er það sem í handriti er undirstrikað. 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Orð og tunga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.