Fréttablaðið - 10.11.2016, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 10.11.2016, Blaðsíða 50
Í dag 18.00 OHL Classic Golfstöðin 19.05 Grindavík - Njarðvík Sport Olís-deild karla 18.00 Haukar - ÍBV Schenkerh. 19.00 Akureyri - Stjarnan KA-hús 19.30 Selfoss - UMFA Selfoss 19.30 Fram - Grótta Framhús 19.30 Valur - FH Valshöllin Domino’s-deild karla 19.15 Tindastóll - Snæfell Síkið 19.15 Skallagrímur - Keflavík Fjósið 19.15 Grindavík - Njarðvík Röstin 19.15 KR - Þór Ak. DHL-höllin Nýjast Fótbolti Byrjunarlið íslenska fót- boltalandsliðsins hefur verið í föstum skorðun undanfarin ár og að flestra mati hefur stór ástæða fyrir velgengni íslenska liðsins verið að lítið er um breytingar og leikmenn liðsins þekkja hver annan og sitt hlutverk betur en flestir. Það hafa vissulega komið upp for- föll vegna meiðsla og leikbanna en þegar allir eru klárir er það á hreinu hverjir skipa byrjunarlið íslenska liðsins. Framherjastöðurnar eru þar engin undantekning en nú er komin upp óvissustaða fyrir leikinn á móti Króötum í Zagreb á laugardaginn. Liðið hefur samt verið heppið með meiðsli fram að þessari undan- keppni og stefna Lars sá til þess að strákarnir hættu að fá klaufaleg spjöld í undankeppni EM 2016. Leikbönnin voru því sjaldgæf í síð- ustu undankeppni. Hjörvar vill sjá Viðar Örn H j ö r va r H a f l i ð a s o n , k n att- spyrnuspekingur 365 miðla, fór yfir möguleika Heimis í kvöld- fréttum Stöðvar 2. Hans skoðun er að Viðar Örn Kjartansson eigi að koma inn í byrjunarliðið með Jóni Daða og Selfyssingar tveir eigi þar með að sjá um sóknina í þessum toppslag í riðlinum. En treystir Heimir Viðari fyrir slíku hlutverki? Viðar hefur verið í kringum lands- liðið í nokkur ár en hann hefur aldr- ei byrjað mótsleik, var ekki valinn í EM-hópinn og hefur aðeins spilað samanlagt rúman hálfleik í keppnis- leikjum. Það væri eðlislegast að Viðar kæmi inn í liðið en Heimir gæti einnig dustað rykið af lausnum liðsins fyrir nokkrum árum. Þegar Heimir var aðstoðarmaður Lars Lagerbäck í undankeppni HM 2014 var lausnin oft að færa Gylfa Þór Sigurðsson, Birki Bjarnason eða Jóhann Berg Guðmundsson af miðjunni og í framlínuna. Eftir frábæra innkomu Jóns Daða Böðvarssonar í fyrsta leik undan- keppni EM 2016 breyttist það útspil þeirra og í staðinn voru þeir Kolbeinn Sigþórsson og Jón Daði framherjapar númer eitt en Alfreð Finnbogason og Eiður Smári Guð- johnsen til vara. Eiður Smári Guðjohnsen kvaddi landsliðið á EM í Frakklandi í sumar og Kolbeinn Sigþórsson hefur ekk- ert verið með í þessari undankeppni vegna meiðsla. Fyrir vikið fékk Alfreð Finnbogason aftur alvöru tækifæri í framlínunni. Alfreð nýtti það tækifæri eins og sannur markaskorari og er búinn að skora í þremur fyrstu leikjum Íslands í undankeppni HM 2018. Kolbeinn er enn meiddur og nú hefur Alfreð bæst við á meiðsla- listann. Björn Bergmann Sigurðar- son var kominn aftur inn í liðið í haust en varð líka að draga sig út úr hópnum vegna meiðsla. Vantar 3467 mínútur Eins og sjá má í töflunni hér til hlið- ar vantar liðið nú framherja sem hafa spilað samtals 3.467 mínútur í 30 keppnisleikjum íslenska liðsins frá og með undankeppni HM 2014. Jón Daði Böðvarsson og Viðar Örn Kjartansson eru einu fram- herjarnir sem hafa spilað á þessum tíma og þeir eiga bara samanlagt 1.204 mín- útur í þessum 30 leikjum. Fram undan er lykilleikur fyrir landsliðið þegar topplið riðilsins mætast. Nýtt leikkerfi? Ísland hefur haldið fast í leikkerfið 4-4-2 undanfarin ár en nú þegar bestu framherjar íslenska liðsins eru forfallaðir þyrfti ekki að koma á óvart að Heimir fækkaði í fram- línunni og fjölgaði á miðjunni. Liðið er að spila á útivelli á móti gríðarlega sterku króatísku liði og framundan eru margar mínútur án bolta í þessum leik. Það væri vissulega gaman fyrir Viðar að fá sitt fyrsta alvöru tæki- færi en líklegra er að Jón Daði verði einn frammi á Maksimir-leik- vanginum í Zagreb á laugardaginn kemur.  ooj@frettabladid.is Nýr heimur fyrir Heimi í Zagreb Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska fótboltalandsliðsins, stendur frammi fyrir stórri ákvörðun þegar hann velur byrjunarliðið á móti Króötum. Hver verður í framlínunni með Jóni Daða Böðvarssyni? Spilatími framherja Íslands undanfarin ár (Mínútur spilaðar Í mótsleikjum frá september 2012) Með á MóTi KRóTATÍU 1.204 mínútur Jón Daði Böðv- arsson 1.153 Viðar Örn Kjartans- son 51 eKKi Með á MóTi KRóATÍU 3.467 mínútur Kolbeinn Sigþórsson 1.839 Alfreð Finnbogason 1.007 eiður Smári Guðjohnsen 518 Björn Bergmann Sigurðarson 103 FJórir nýLiðAr Í Hópi ÍVArS Ívar Ásgrímsson valdi fjóra nýliða í fimmtán manna landsliðshóp sinn fyrir síðustu tvo leiki kvennalands- liðsins í undankeppni EM 2017. Liðið mætir Slóvakíu á útivelli og portúgal í Laugardalshöllinni. Margir reynsluboltar verða ekki með að þessi sinni og þar á meðal er fyrirliðinn Helena Sverrisdóttir sem er í barnsburðarleyfi. Þrír af fjórum nýliðum liðsins eru allar úr spútnikliðið Keflavíkur og allar 18 ára og yngri. Þetta eru Emelía ósk Gunnarsdóttir (18 ára), Thelma Dís Ágústsdóttir (18) og Birna Valgerður Benónýs dóttir (16). Fjórði nýliðinn er síðan ragn- heiður Benónísdóttir úr Skalla- grími. Í viðbót hafa þær Hallveig Jónsdóttir (3 leikir), Elín Sóley Hrafnkelsdóttir (2) OG Salbjörg ragna Sævarsdóttir (1) allar litla reynslu af landsliðnu. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir er reyndasti leikmaður hópsins með 42 landsleiki. Það má sjá allan hópinn inn á Vísi. Gylfi Þór Sigurðsson, Birkir Bjarna- son og Jóhann Berg Guðmunds- son byrjuðu allir í stöðu framherja í leikjum í undankeppni HM 2014. Alfreð Finnbogason er búinn að skora þrjú af sex mörkum íslenska liðsins í undankeppni HM 2018. Íslenska liðið hefur skorað í átta mótsleikjum í röð eða í öllum leikjum liðsins síðan íslensku strák- arnir töpuðu 1-0 í útileik á móti Tyrklandi í síðasta leik liðsins í undankeppni EM 2016. Viðar Örn Kjartansson hefur aldrei spilað meira en 25 mínútur í einum lands- leik í keppni. 1 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F i m m t U D A G U r38 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð sporT Landsliðsmiðherjarnir berjast um boltann í Ásgarði í gær Hélt upp á landsliðssætið með 11 stigum á 15 mínútum Hið unga lið Keflavíkur gefur ekkert eftir í toppbaráttu Domino’s deildar kvenna og vann Stjörnuna í Garðbænum í gær. Hér sjást miðherjarnir Ragna Margrét Brynjarsdóttir og Birna Valgerður Benónýsdóttir berjast um frákast en þær voru báðar valdar í landsliðshópinn í gær. Ragna Margrét er búin að vera fastamaður lengi en hin 16 ára Birna er þar í fyrsta sinn. FRéTTABLAðið/eyÞóR Domino’s-deild kvenna í körfu Haukar - Stjarnan 65-58 Stigahæstar: Michelle Nicole Mitchell 23/13 fráköst, Rósa Björk Pétursdóttir 13/6 frák./8 stoðs./6 stolnir, Sólrún Inga Gísla- dóttir 9 - Ashley Grimes 27/10 frák., Jeanne Lois Figueroa Sicat 8, María Ben Erlings- dóttir 8/4 frák. Stjarnan - Keflavík 57-72 Stigahæstar: Stjarnan: Danielle Rodriguez 21/14 frák./5 stoðs./9 stolnir/4 varin Ragna Margrét Brynjarsdóttir 10/6 frák., Bríet Sif Hinriksdóttir 10, - Dominique Hudson 20/9 frák., Erna Hákonardóttir 12, Birna Val- gerður Benónýsdóttir 11, Emelía Ósk Gunn- arsdóttir 9, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 9. Snæfell - Skallagrímur 72-57 Stigahæstar: Aaryn Ellenberg-Wiley 34/10 frák./7 stolnir, Berglind Gunnarsdóttir 18, Gunnhildur Gunnarsdóttir 11/8 stolnir - Tavelyn Tillman 24/7 fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 13/13 frák./5 stoðs., Kristrún Sigurjónsdóttir 8. Valur - Njarðvík 74-55 Stigahæstar: Mia Loyd 26/17 frák., Guð- björg Sverrisdóttir 14/8 frák., Dagbjört Samúelsdóttir 12/5 fráköst, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 10 - Björk Gunnarsdóttir 15, Soffía Rún Skúladóttir 11. efri Snæfell 12 Keflavík 12 Skallagrímur 10 Njarðvík 8 Neðri Stjarnan 8 Haukar 6 Valur 4 Grindavík 4 1 0 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :2 5 F B 0 8 0 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 3 E -0 5 6 4 1 B 3 E -0 4 2 8 1 B 3 E -0 2 E C 1 B 3 E -0 1 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 8 0 s _ 9 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.