Fréttatíminn - 13.08.2016, Blaðsíða 48
alla föstudaga
og laugardaga
Peter Andre flytur
Peter Andre hefur keypt fyrrum hús Hollywoodleikarans Tom Cruise í Sussex
á Englandi. Þar ætlar hann að búa með eiginkonu sinni og börnum þeirra, þar
með talið þeim sem hann á með fyrirsætunni Jordan.
Conor að fjárfesta
á Íslandi?
Lítið hefur frést af áformum
íþróttafélagsins Mjölnis um að
flytja í gömlu Keiluhöllina Öskju-
hlíð að undanförnu. Fréttatíminn
greindi frá hugmyndum þess efnis
síðasta haust og til stóð að allt
væri komið á fullt nú síðsumars.
Sú er ekki raunin og mun snúa að
fjármögnun þriðja aðila. Nú heyr-
ist að unnið sé að því að fá nýjan
fjárfesti til að taka þátt í þessu
verkefni og sá er enginn annar en
Conor McGregor, bardagakappi
og vinur og æfingafélagi Gunnars
Nelson.
Gummi messar á ný
Enski boltinn fer aftur af stað
í dag eftir sumarfrí. Stöð 2 Sport
er sem fyrr með sýningarréttinn
hér á landi og verður með öfluga
umfjöllun, þó hún sé reyndar
minni að umfangi en undanfarin
ár. Athygli vekur að Guðmundur
Benediktsson verður aftur um-
sjónarmaður Messunnar og tekur
þar með við keflinu af Hjörvari
Hafliðasyni. Frægðarsól Guð-
mundar er í hæstu hæðum eftir
lýsingar hans á EM í sumar og því
kom væntanlega ekki annað til
greina en að hann yrði aðalmað-
urinn. Hjörvar verður þó áfram
fastur álitsgjafi í þáttunum.
Þarftu skjóta afgreiðslu á ein-
blöðungum, bæklingum, vegg-
spjöldum, skýrslum, eða nafn-
spjöldum? Þá gæti stafræna
leiðin hentað þér. Sendu okkur
línu og fáðu verðtilboð.
STAFRÆNT