Fréttablaðið - 14.02.2017, Blaðsíða 21
365.is Sími 1817
Í KVÖLD KL. 19:20
©
2016 H
om
e B
ox O
ffice, Inc. A
ll rights reserved. H
BO
® and all related program
s are the property of H
om
e B
ox O
ffice, Inc.
Í OPINNIDAGSKRÁ
Á
NÝJUM
TÍMA
Körfubolti Bikarmeistaratitill
inn var svo sannarlega ekki að fara í
fyrsta sinn til Keflavíkur um helgina
en allir leikmenn liðsins voru aftur á
móti að vinna hann í fyrsta sinn sem
leikmenn Keflavíkurliðsins. Það hafði
ekki gerst í næstum því þrjá áratugi en
á þessum þremur ótrúlegu áratugum
hefur Keflavík unnið 29 stóra titla í
kvennaflokki, fimmtán Íslandsmeist
aratitla og fjórtán bikarmeistaratitla.
Öll tólf bikarmeistaralið Keflavíkur
frá 1989 til 2013 höfðu innanborðs
þrjá eða fleiri leikmenn sem höfðu
áður orðið bikarmeistarar með Kefla
víkurliðinu.
Hröð endurnýjun á liðinu
Eftir ótrúlega hraða endurnýjun á
Keflavíkurliðinu síðustu tvö ár var
staðan hins vegar sú að liðið skipuðu
tólf leikmenn sem aldrei höfðu unnið
stóran titil með Keflavíkurliðinu.
Sigureðlið virðist vera í blóðinu hjá
Keflavíkurstúlkum sem eru orðnar
bikarmeistarar á tímapunkti þegar
flest önnur félög væru enn í sárum
eftir að hafa misst nær alla reynsluna
út úr sínu liði.
Kvennalið Keflavík hafði aðeins
einu sinni beðið lengur eftir bikartitli
síðan sá fyrsti vannst en fjögur ár voru
síðan sá síðasti kom í hús árið 2013.
Þegar Keflavík beið í sjö ár eftir bikar
meistaratitlinum frá 2004 til 2011
voru samt í liðinu þrír leikmenn sem
höfðu áður fengið bikarmeistaragull
um hálsinn sem leikmenn Keflavíkur
liðsins. Hið unga lið naut þó góðs af
því að þjálfarinn Sverrir Þór Sverris
son var búinn að vinna bikarinn oft
áður, bæði sem leikmaður og þjálfari.
Tveir leikmenn Keflavíkur, Erna
Hákonardóttir og Salbjörg Ragna
Sævarsdóttir, unnu einnig bikarinn
með Njarðvík fyrir fimm árum og
Erna var líka í leikmannahópi Snæ
fells þegar liðið vann bikarinn í fyrra.
Aðrir leikmenn liðsins voru á eftir
sínum fyrsta stóra titli á ferlinum.
Sextán til átján ára stelpur
Þegar Keflavík vann bikarinn í fyrsta
sinn 1988 voru í liðinu kornungar
stelpur eins og í ár. Stelpur á aldr
inum 16 til 18 ára og flestar í mjög
stórum hlutverkum en búnar að
vinna titla í yngri flokkum árin á
undan. Í liðinu í ár eru tvær átján ára
stelpur í byrjunarliðinu og tvær sem
komu saman með sextán stig inn af
bekknum eiga það sameiginlegt að
vera yngri en átján ára.
Björg Hafsteinsdóttir var sú eina
sem tók þátt í að landa átta fyrstu
bikarmeistaratitlum Keflavíkurliðs
ins frá 1988 til 1997. Hún vann sinn
fyrsta titil nítján ára gömul en nú var
einmitt dóttir hennar, Thelma Dís
Ágústsdóttir, að verða bikarmeistari
í fyrsta sinn átján ára gömul. Thelma
Dís var í byrjunarliðinu og var með 8
fráköst og 3 stoðsendingar í úrslita
leiknum. Björg skoraði 25 stig í
úrslitaleiknum fyrir 29 árum.
Á sama aldri og mamma sín
Elínborg Herbertsdóttir, önnur úr
fyrsta bikarmeistaraliði Keflavíkur,
var aðeins nýorðin sextán ára gömul
þegar hún varð bikarmeistari í
fyrsta sinn árið 1988 eða jafngömul
og dóttir hennar, Birna Valgerður
Benónýsdóttir, sem verður ekki
sautján ára fyrr en í september.
Birna skoraði 11 stig, tók 7 fráköst
og varði 3 skot í sínum fyrsta bikar
úrslitaleik í meistaraflokki.
Anna María Sveinsdóttir missti
aðeins af einum af fyrstu ellefu
bikar meistaratitlunum (barneign
arfrí) og er sú sem hefur unnið þá
flesta á ferlinum. Það hefur nefni
lega ekkert eitt annað félag unnið
fleiri bikarmeistaratitla til samans
en KR er með tíu bikarmeistaratitla
eins og Anna María.
Nýtt gullaldarlið?
Hvort Keflavík er búið að eignast
nýtt gullaldarlið verður að koma í
ljós en þær sem unnu bikarinn 1988
áttu eftir að vinna alla titla í boði
næstu þrjú tímabil og við tók mikil
sigurganga sem lengist nú enn.
ooj@frettabladid.is
Spegilmynd
af þeim fyrsta
Kvennalið Keflavíkur varð bikarmeistari í körfu-
bolta í fjórtánda sinn á tæpum þremur áratugum
um helgina. Liðið í ár var í svipuðum sporum og
fyrstu bikarmeistarar Keflavíkur fyrir 29 árum.
Bikarmeistararnir 2017. Keflavíkurstelpur á pallinum. FréttaBlaðið/aNdri MariNó
Meistarakoss. Birna Valgerður Ben-
ónýsdóttir og Salbjörg ragna Sævars-
dóttir. FréttaBlaðið/aNdri MariNó
s p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð 13Þ r i ð J u D A G u r 1 4 . f e b r ú A r 2 0 1 7
1
4
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
2
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
A
-D
B
1
4
1
C
3
A
-D
9
D
8
1
C
3
A
-D
8
9
C
1
C
3
A
-D
7
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
3
2
s
_
1
3
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K