Fréttablaðið - 14.02.2017, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 14.02.2017, Blaðsíða 21
365.is Sími 1817 Í KVÖLD KL. 19:20 © 2016 H om e B ox O ffice, Inc. A ll rights reserved. H BO ® and all related program s are the property of H om e B ox O ffice, Inc. Í OPINNIDAGSKRÁ Á NÝJUM TÍMA Körfubolti Bikarmeistaratitill­ inn var svo sannarlega ekki að fara í fyrsta sinn til Keflavíkur um helgina en allir leikmenn liðsins voru aftur á móti að vinna hann í fyrsta sinn sem leikmenn Keflavíkurliðsins. Það hafði ekki gerst í næstum því þrjá áratugi en á þessum þremur ótrúlegu áratugum hefur Keflavík unnið 29 stóra titla í kvennaflokki, fimmtán Íslandsmeist­ aratitla og fjórtán bikarmeistaratitla. Öll tólf bikarmeistaralið Keflavíkur frá 1989 til 2013 höfðu innanborðs þrjá eða fleiri leikmenn sem höfðu áður orðið bikarmeistarar með Kefla­ víkurliðinu. Hröð endurnýjun á liðinu Eftir ótrúlega hraða endurnýjun á Keflavíkurliðinu síðustu tvö ár var staðan hins vegar sú að liðið skipuðu tólf leikmenn sem aldrei höfðu unnið stóran titil með Keflavíkurliðinu. Sigureðlið virðist vera í blóðinu hjá Keflavíkurstúlkum sem eru orðnar bikarmeistarar á tímapunkti þegar flest önnur félög væru enn í sárum eftir að hafa misst nær alla reynsluna út úr sínu liði. Kvennalið Keflavík hafði aðeins einu sinni beðið lengur eftir bikartitli síðan sá fyrsti vannst en fjögur ár voru síðan sá síðasti kom í hús árið 2013. Þegar Keflavík beið í sjö ár eftir bikar­ meistaratitlinum frá 2004 til 2011 voru samt í liðinu þrír leikmenn sem höfðu áður fengið bikarmeistaragull um hálsinn sem leikmenn Keflavíkur­ liðsins. Hið unga lið naut þó góðs af því að þjálfarinn Sverrir Þór Sverris­ son var búinn að vinna bikarinn oft áður, bæði sem leikmaður og þjálfari. Tveir leikmenn Keflavíkur, Erna Hákonardóttir og Salbjörg Ragna Sævarsdóttir, unnu einnig bikarinn með Njarðvík fyrir fimm árum og Erna var líka í leikmannahópi Snæ­ fells þegar liðið vann bikarinn í fyrra. Aðrir leikmenn liðsins voru á eftir sínum fyrsta stóra titli á ferlinum. Sextán til átján ára stelpur Þegar Keflavík vann bikarinn í fyrsta sinn 1988 voru í liðinu kornungar stelpur eins og í ár. Stelpur á aldr­ inum 16 til 18 ára og flestar í mjög stórum hlutverkum en búnar að vinna titla í yngri flokkum árin á undan. Í liðinu í ár eru tvær átján ára stelpur í byrjunarliðinu og tvær sem komu saman með sextán stig inn af bekknum eiga það sameiginlegt að vera yngri en átján ára. Björg Hafsteinsdóttir var sú eina sem tók þátt í að landa átta fyrstu bikarmeistaratitlum Keflavíkurliðs­ ins frá 1988 til 1997. Hún vann sinn fyrsta titil nítján ára gömul en nú var einmitt dóttir hennar, Thelma Dís Ágústsdóttir, að verða bikarmeistari í fyrsta sinn átján ára gömul. Thelma Dís var í byrjunarliðinu og var með 8 fráköst og 3 stoðsendingar í úrslita­ leiknum. Björg skoraði 25 stig í úrslitaleiknum fyrir 29 árum. Á sama aldri og mamma sín Elínborg Herbertsdóttir, önnur úr fyrsta bikarmeistaraliði Keflavíkur, var aðeins nýorðin sextán ára gömul þegar hún varð bikarmeistari í fyrsta sinn árið 1988 eða jafngömul og dóttir hennar, Birna Valgerður Benónýsdóttir, sem verður ekki sautján ára fyrr en í september. Birna skoraði 11 stig, tók 7 fráköst og varði 3 skot í sínum fyrsta bikar­ úrslitaleik í meistaraflokki. Anna María Sveinsdóttir missti aðeins af einum af fyrstu ellefu bikar meistaratitlunum (barneign­ arfrí) og er sú sem hefur unnið þá flesta á ferlinum. Það hefur nefni­ lega ekkert eitt annað félag unnið fleiri bikarmeistaratitla til samans en KR er með tíu bikarmeistaratitla eins og Anna María. Nýtt gullaldarlið? Hvort Keflavík er búið að eignast nýtt gullaldarlið verður að koma í ljós en þær sem unnu bikarinn 1988 áttu eftir að vinna alla titla í boði næstu þrjú tímabil og við tók mikil sigurganga sem lengist nú enn. ooj@frettabladid.is Spegilmynd af þeim fyrsta Kvennalið Keflavíkur varð bikarmeistari í körfu- bolta í fjórtánda sinn á tæpum þremur áratugum um helgina. Liðið í ár var í svipuðum sporum og fyrstu bikarmeistarar Keflavíkur fyrir 29 árum. Bikarmeistararnir 2017. Keflavíkurstelpur á pallinum. FréttaBlaðið/aNdri MariNó Meistarakoss. Birna Valgerður Ben- ónýsdóttir og Salbjörg ragna Sævars- dóttir. FréttaBlaðið/aNdri MariNó s p o r t ∙ f r É t t A b l A ð i ð 13Þ r i ð J u D A G u r 1 4 . f e b r ú A r 2 0 1 7 1 4 -0 2 -2 0 1 7 0 4 :3 2 F B 0 3 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f F B 0 3 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 3 A -D B 1 4 1 C 3 A -D 9 D 8 1 C 3 A -D 8 9 C 1 C 3 A -D 7 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 3 2 s _ 1 3 _ 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.