Kvennalistinn á Akureyri - 01.05.1990, Blaðsíða 1

Kvennalistinn á Akureyri - 01.05.1990, Blaðsíða 1
 77^5^?______ á Akureyri 1. tbl. -1. árg. - Maí 1990 Magnea Matthíasdóttir: Vinnugleði það er tímafrekt verk að brjóta niður þykka veggi með berum höndum bera steinana svo í hrúgur og gera af þeim hús veljum því stundina af natni sitjum ögn og bíðum og látum tímann fljóta í gegnum okkur einsog gullinn straum þá er hægt að bretta upp ermar blístra við vinnu sína og brosa mót fyrstu geislum sólar gegnum hálfhruninn vegginn Valgerður Bjarnadóttir: Ávarp í upphafi aldarinnar sáu konur á íslandi þörf á að sækja fram á vettvangi stjórnmálanna á sérstökum kvennalistum. Þær höfðu þá nýlega öðlast þann rétt að mega kjósa eigið yfirvald og bjóða fram krafta sína í stjórnmálin. Að fá sæti á listum karlanna var þó ekki auðsótt og sáu þá konur sérstök kvennaframboð sem bestu leiðina til að ná til kjósenda. Auk þess gerðu þær sér fulla grein fyrir því að til að ná áhrifum i stjórnmálum, þar sem kariar höfðu verið einráðir um aldir, yrðu þær að finna sinn eigin grundvöll. Þær náðu árangri. Fjöldi kvenna og framfarasinnaðra karla batt nýja von við þetta nýja stjórnmálaafl — Kvennaframboðin. Þegar ljóst varð hvaða fylgi kvennaframboðin fengu og þegar karlarnir skynjuðu kraft kvennanna nýttu þeir sér gamalt bragð og buðu þeim inngöngu í eigin flokka. Konurnar slógu til, vildu auðvitað þá sem nú, ekkert frekar en góða samvinnu við karla,... en fljótlega voru áhrif þeirra engin og landsstjórn jafnt sem sveitarstjórnir urðu á ný kynhreinn vett- vangur karla, einangraður frá áhrifum kvenna. Það var á miðjum kvennaáratugi, árið 1981, að konur tóku aftur málin í sínar hendur, endurvöktu gamlan draum og buðu fram á ný — sérstaka kvennalista til sveitarstjórna 1982. Það tókst aftur. Þær — við — náðum til kjósenda og náðum svolitlum áhrifum á stjórn okkar sveita. Kvennalisti til Alþingis var næsta skref og þeir eru nú fáir sem ekki viður- kenna jákvæð áhrif þessa nýja stjórnmálaafls á þróun stjórnmála á íslandi. t kjölfar kvennaframboðanna fjölgaði konum til mikilla muna í stjórn lands og sveita. Á listum gömlu flokkanna og á listum nýrra stjórnmálaafla — ann- arra en kvennalistans — má nú jafnvel sjá konur í efstu sætum. Sumum þykir að þá sé markmiðinu náð. Og vissu- lega er það mikilvægur árangur. Það er mikilvægt og ánægjulegt að núna, átta árum eftir að kvennafram- boðin voru endurvakin, skuli vera konur í efstu sæt- um tveggja lista flokkanna hér í bæ. Konur sem kvennaframboðið átti mjög góða samvinnu við á sínum tíma í bæjarstjórn. En er það nóg? Hefur siarf stjórnmálaflokka á íslandi breyst verulega við að konur hafa þar mjakast upp á við? Hefur stjórn landsins og sveitarfélaganna breyst verulega við að konur sjáist nú oftar í þessum stjórnum en áður? Hafa líkur á gereyðingu lífs á jörðu minnkað við það að ein og ein kona fái nú inngöngu í karlaveldið á forsend- um karlveldisins? Rannsóknir á samskiptum kynjanna — stelpna og stráka — karla og kvenna — t.d. á námskeiðum, sýna að karlarnir hafa alltaf yfirráðin nema þeir séu í verulegum minnihluta, minna er 1/4, þá fara líkurnar að minnka. Staða þeirra er sérstaklega sterk á starfs- sviðum þar sem þeir eru vanir að ráða, s.s. í stjórn- málum, í iðn- og tæknigreinum, í skólum o.s.frv. Við getum velt því fyrir okkur — og eigum að velta því fyrir okkur konur — hvers vegna við látum þá ráða, en við þurfum fyrst og fremst að styrkja okkur sjálfar og hver aðra. Kvennalistinn ætti að vera, getur verið og hefur verið sterkur bakhjarl fyrir þær konur sem svo djarfar hafa valið að vinna innan karlveldis flokkanna og Framhald á bls. 2

x

Kvennalistinn á Akureyri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennalistinn á Akureyri
https://timarit.is/publication/1233

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.