Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.1996, Blaðsíða 29

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.05.1996, Blaðsíða 29
<%& eéta cOk&ccvpmi „Það er bara einn sjúklingur sem liefur sagt við rnig að honum finnist ekki við hœfi að eg sé að syngja ú böllum. Flestum fmnst gaman að heyra hverjir voru mœttir og hvernig var á ballinu. Reyndar hjálpar þetta mér við að mynda nánari tengsl við fólkið því ég er Reykvíkingur og ekki mjög kunnug hérna.“ Jóhanna og Idjómsveit í sjónvarpsþœttinum Þeytingi Þetta segir Jóhanna Harðardóttir stoðhjúkrunarfræðingur á Sjúkrahúsi Austur-Húnvetninga á Blönduósi þegar hún var spurð að því hvernig sjúklingar hennar tækju því að hún væri líka söngkona í hljómsveit. Þeir sem horfðu á sjónvarpsþáttinn ^eyting sem tekinn var upp á Blönduósi muna kannski eftir 'Ujúmsveitinni sem þar kom fram og flutti fallegt, frumsamið og þá einkum og sér í lagi dökkliærðu söngkonunni. Söngkonan er einmitt Jóhanna. Timaril hjúkrunarfrœðinga mtlar aó leitast við að sýna „hina hliðina" á hjúkrunarfræðingum', þ.e.a.s. frá hinum margbrotnu hæfdeikum sem leynast innan hjúkrunarstéttarinnar og úlændingar eru vel þegnar -en snúum okkur að Jóhönnu: Byrjaði á Þorrablóti ó Hvammstanga »Ég er fædd í París og alin upp í Bandaríkjunum. Ég kom ekki U| fslands fyrr en ég er orðinn unglingur og kunni þá ekki íslensku. Það tók mig þvf langan tíma að læra málið og bara að komast inn f lffið hérna. Kannski er það þess vegna sem ég kyrjaði svona seint að elta nn'na drauma,“ bætir hún við eftir smá þögn. „Það byrjaði á því að ég var dregin upp Þorrablóts- skemmtun á Hvammstanga. Þetta leiddi til þess að ég fór að syngja með sveitaballahljómsveit þorpsins, Lexi'u, og söng með kmini í tvö ár. Hljómsveitin leystist svo upp og við tvö sem eftir Vorurn sfofnuðum síðan hljómsveit á Blönduósi sem heitir ^únst. Reyndar er hann núna maðurinn minn og lieitir Jón Sverrisson. Jón hefur verið í tónlistinni sfðan hann var unglingur og e oi’ samið heilmörg lög. Ég er aftur á móti algjör áhuga- Ulanneskja en hann fór svo að kenna mér þessi lög og ég hef samið texta við nokkur þeirra. Það gefur okkur mjög mikið að Vlnna svona saman. Við stofnuðum svo dúettinn Jón og 0 anna og einnig sveitaballahljómsveitina Þrusk og liöfum rei|ð að koma fram á skemmtunum hér í bænum og víðar. Lagið sem við fluttum f Þeytingi er eftir Jón og heitir „Er það ég?“ Þar erum við að segja að fólk eigi að líta í eigin barm áður en það dæmir aðra. Yfirleitt reynum við að semja um eitthvað sem er að gerast í kringum okkur og erum nýbúin að taka upp lag sem heitir „Biðsalur dauðans“. Þar er vísað til myndarinnar um börnin í Kína en um leið erum við að fjalla um að það sé líka mannvonska hér í okkar vestræna heimi. Undirtónninn er að við eigum að elska lífið.“ Var svo mikið ömmubarn Jóhanna og Jón stefna að því að flytja til Reykjavíkur á árinu þvf þau langar til að komast áfram í tónlistarheiminum en tækifærin eru af skornum skammti úti á landi. „Starfið gefur mér jafn mikið og að syngja,“ segir Jóhanna. „En það er mikils virði að hafa eitthvað fyrir utan vinnuna; að geta gleymt aðeins hinu daglega amstri og verið skapandi um leið. Mig langar að taka það fram að ég hef notið mikils skilnings hjá samstarfskonum mínum því jrað að syngja með hljómsveit þýðir auðvitað næturvinnu um helgar, jafnvel til klukkan 4 eða 5, og ég á að vinna aðra hverja helgi. Þær hafa verið mjög liðlegar að skipta við mig enda höfum við allar okkar áhugamál og reynum að styðja liver aðra svo við getum ræktað þau. Hvað vinnuna varðar að öðru leyti þá hef ég sérstakan áhuga á öldrunarhjúkrun. Ég held það sé vegna þess að ég var svo mikið ömmubarn og þótti svo gott að vera hjá ömmu og afa. Mér hefur alltaf fundist gamalt fólk svo fallegt og gott og finnst það okkar ábyrgð að vel sé hugsað um það í ellinni." Jóhanna sagði að þau langi til að fá að koma fram á skemmtistöðum í borginni og vonandi eiga hjúkrunarfræðingar, og aðrir, sem ætla að bregða undir sig betri fætinum eftir að fá tækifæri til að kynnast betur „hinni hliðinni“ á Jóhönnu. B.K. TÍMAIilT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2 . tbl. 72. árg. 1996
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.