Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.1997, Blaðsíða 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.1997, Blaðsíða 25
EFTIR GUDRUN SIMONSEN - BJÖRG EINARSDÓTTIR ÍSLENSKAÐI — ytv&r var kiinV 10. Kafli MILLIHEIMS OG HELJU „Svartahafi, 5. maí 1855. Kœru foreldrar! Vesalings gamla Flo er nú á siglingu um Bosporus- sund og yfir Svartahafið með fjórum hjúkrunarkon- um, tveimur matsveinum og einum piltunga, í átt að Krímskaganum til að skoða með eigin augum hersjúkrahúsið þar. Hún er um horð í „Robert Low“ í samfloti með rúmlega fjögur hundruð af sjúkling- um sínum sem nú eru á leið aftur til baka til her- deilda sinna reiðubúnir að lúta skjóta á sig á nýjan leik. I dag er núkvœmlega hálft árfrá því ég kom til Skutari til að takast á við verkefnið sem Guð œtlaði mér. Sorgir og vonbrigði, sem hafa verið hlutskipti mitt þessa mánuði, eru ólýsanleg. En ég lief liaft það af! Eg er lifandi!“ Piltunginn, sem Florence nefnir svo, er tólf ára gamall trommuslagari í hljómsveit hersins sem lagt hefur tónlistiua á hilluna, eins og hann sjálfur segir, til að þjóna ungfrú Nightingale! Verst hvað hann er lágur í loftinu og getur því ekki haldið regnhlíf yfir lienni þegar rignir. Já, Florence var á lífi. En veturinn í Skutari hafði tekið mjiig á hana. A nokkrum mánuðum hafði hún unnið verk sem jafnaðist á við heila starfsævi og sult- ur og kuldi eytt kröftum hennar eins og hinna sem þreyðu þennan vetur í Skutari. En hún hafði ákveðið að strax og aðstæður á spítalanum í Skutari leyfðu ætlaði hún að fara til Krím til að athuga hvað nauðsynlega þyrfti að gera fyrir sjúkraskýlin þar, og með eigin augum vildi hún sjá vígvellina. Fyrsta heimsóknin að víglínunni féll henni aldrei úr minni. Eg sá skotgrajirnar. Hér höfðu hermennirnir hafst við sólarhringum saman, já, vikum saman, legið endilangir í forinni eða setið í keng tvo sólarhringa samfieytt án þess að geta sig hrœrt og ekki haft annað til matar en hrátt, saltfiesk. Þrátt fyrir þetta liöfðu þeir hvorki misst kjark né þolin- mœði. Eða herbúðirnar! Ekki var að undra að her- mennirnir skyldu hafa þjúðst jafnmikið og raun bar vitni; undraverðara var að yfirleitt skyldi nokkuð vera eftir af hernum. Þegar „Robert Low“ varpaði akkerum í höfninni í Balaklava flaug fregnin urn herbúðirnar. Um borð í skipinu var hefðardama! Engin önnur en Florence Nightingale! Engillinn frá Skutari! Konan, sem öllu stjórnaði í Skutari, var komin til Krím! Hermennirnir þustu út úr tjöldum og skálum. Allir sem vettlingi gátu valdið, gangandi eða skríð- andi, fóru af stað. Móttökurnar voru stórhrotnar. Ekki síst ])egar Soyer, sem aldrei dró af sér í hrifn- ingarvímu, lyfti Flo af hestbaki og setti hana hátt upp á fallbyssu svo allir gætu séð hana. „Herrar mínir! Hér sjáið þið hugrökkustu dóttur Englands, her- mannanna einlægasta vin!“ Við dynjandi fagnaðar- læti fossaði yfir hana haf af liljum og orkideum sem stóðu í fullum blóma umhverfis herbúðirnar. Það var mikils virði að finna hlýhuginn frá her- mönnunum því brátt áitti ég annað í vœndum. Yfirmaður herliðsins, Raglan lávarður, hafði alltaf verið Florence velviljaður og sýnt starfi hennar mikinn áhuga en liann var ekki viðlátinn þegar hún kom. Það var hins vegar Ilall læknir sem har ábyrgð á heilbrigðismálunum hæði á Krím og í Skutari og hafði verið henni andvígur frá upphafi. Hann var afbrýðisamur vegna stuðnings ríkisstjórnarinnar við Florence og reiður og sár vegna þeirrar gagnrýni sem hann hafði orðið fyrir og taldi hennar sök. Fyrir hon- um var því stund hefndarinnar upprunnin. Hann vildi sýna livers valdið ótvírœtt vœri og fékk á sitt band liðsforingjana sem voru undirokaðir og skriðu fyrir honum. Auðmýking hans á Florence reyndist úthugsuð: Það hafði verið glompa í pappírunum sem hún fékk frá stjórninni þegar haldið var til starfa austur á bóginn og margsinnis óskað eftir leiðréttingu þar á. í skipunarbréfinu stóð að Florence ætti að hafa yfir- umsjón með hjúkrun hermanna í Skutari í Tyrk- TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 4.TBL. 7B.ÁRG. 1997 217
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.