Norðurslóð - 26.10.1979, Blaðsíða 1

Norðurslóð - 26.10.1979, Blaðsíða 1
NORÐURSLÓÐ SVARFDÆLSK BYGGÐ OG BÆR .........■ : ' ' ; ' - .:.:::.■'.■ ' - 3. árgangur Föstudagur 26. október 1979 8. tölublað Ólafsfjörður. Mynd: Dagur. Aukin samvinna Bréf frá Pétri Má Jónssyni, bœjarstjóra í Ólafsfirði Oft hafði mér verið hugsað til ágætis þess - jafnvel í ekki stærri bygðarlagi en Ólafsfirði að hafa fjölmiðil til upplýsinga og skoðanaskipta um helstu fram- fara- og menningarmál hvers byggðarlags. Ég hreifst því mjög af framtaki nokkurra Svarfdælinga og Dalvíkinga er þeir hófu útgáfu blaðsins Norð- urslóðar árið 1978. í framhaldi af hugleiðingum mínum um þessi mál ræddi ég síðan við einn af forsvarsmönn- um blaðsins um áhuga minn á þessu sviði - hvort vilji væri til þess að víkka nokkuð starfs- vettvang blaðsins með því að ljá ólafsfirskum málefnum þar rúm. Yrði slíkt væntanlega til þess að styrkja frekar grundvöll blaðsins ef vel tækist til. Það varð síðan úr að ég leiddist út í það að skrifa smágrein í blaðið sem fyrsta framlag Ólafsfirð- inga - í von um að margar fleiri mættu fylgja í kjölfarið. Mér finnst því viðeigandi að íjalla hér í nokkrum orðum um möguleika á auknu samstarfi milli byggðarlaganna við Eyja- fjörð - íbúum þeirra til hags- bóta. Ég mun aðallega fjalla um samstarf á vettvangi sveitar- stjórnarmála og þáeinkum milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur. Að sjálfsögðu hafa einnig einstak- lingar, fyrirtæki og félagasam- tök mikilsvert samstarf með sér. Möguleikar Ólafsfirðinga til gagnkvæmrar samvinnu við granna sína mótast af ótryggum samgöngum á landi. Mjög er brýnt að fljótlega verði tekin ákvörðun um framtíðarlausn vegamála Ólafsfirðinga. Þar er um tvennt að ræða - vegþekjur eða jarðgöng. Þegar fengin er slík lausn eru samstarfsmögu- leikar ótæmandi. Ég mun þó hér miða við það ástand sem nú ríkir í vegamálum okkar. í reynd hefur samstarf sveit- arfélaganna verið lítið - en þó gott það sem verið hefur. Að því er varðar Ólafsfjörð og Dalvík hefur slíkt aðallega verið fólgið í gagnkvæmu upplýsingastreymi milli starfsmanna sveitarfélag- anna. Raunveruleg samvinna um. lausn ákveðinna verkefna eða vandamála hefur verið mjög lítil. Fyrir um það bil 10 árum réðu kaupstaðirnir verkfræðing sameiginlega. Skyldi hann vinna að tæknimálum sveitarfé- laganna beggja. Virðist þessi tilraun ekki hafa tekist nógu vel og samstarfið leystst upp fljót- lega. Af verkefnum sem nú er staðið sameiginlega að má nefna, að heilbrigðisfulltrúinn á Akureyri hefur til skamms tíma einnig gegnt því starfi jj Dalvík og í Ólafsfírði. Nú er unnið að gerð nýrra laga um hollustu hætti og mun sveitarfélögunum lagðar þar á herðar auknar skyldur í heilbrigðismálum. Því er nauðsynlegt að áfram takist samvinna við Akureyringa um þessi mál, þar sem erfitt er fyrir litlu sveitarfélögin að bjóða upp á svo sérhæfða þjónustu ein. Væntanlega munu hrepparnir einnig koma inn á þessa mynd. Vandamál sérleyfishafa við fólksflutninga hafa verið leyst í samvinnu við sveitarfélögin við vestanverðan Eyjaíjörð. Þessa dagana er mjög rætt um ráðn- ingu garðræktarráðunauts fyrir sveitarfélögin. Hann myndi verða ráðgefandi bæði fyrir sveitarfélög og einstaklinga. Mikil þörf er á slíkri ráðgjöf. í náinni framtíð tel ég æski- legt að samvinna takist um eyðingu sorps, sem að minnsta kost í Ólafsfirði er verulegt vaandamál. Víðtækt samstarf um slökkviliðsmál þyrfti að komast á milli bæði þéttbýlis og sveita. Meðal annars þarf að samræma búnað slökkvilið- anna þannig að hægt sé að samnýta þann búnað sem til er, ef nauðsynlegt reynist að veita aðstoð vegna meiri háttaar bruna. Nefna má samvinnu á sviði sjúkraflutninga og al- mannavarna, einnig í æskulýðs- málum og í tómstundamálum aldraðra meðal annars með gagnkvæmum heimsóknum. Síðast en ekki síst er að geía samstarfs á sviði verklegra framkvæmda, sem gæti verið fólgið i samnýtingu og sameign ýmiss konar tækja. Þannig mætti lengi telja. Þá má hugsa sér stofnun sameiginlegs félags starfs- manna, sem annast myndi samninga um laun og kjör starfsmanna. í framhaldi af stofnun slíks félags er eflaust grundvöllur fyrir byggingu or- lofshúss starfsmanna. Þegar samstarf og samvinna eins og ég hef lauslega rakið hér að framan hefur náð að þróast vel tel ég kominn góðan grund- völl fyrir sameiningu sveitarfé- laganna í meðalstórt sveitafé- lag sem yrði færara að veita íbúum sínum þá þjónustu er þeir krefjast en hin litlu sveitar- félög okkar megna ekki að veita. Norðurslóð er sérstök ánægja að birta þessa athyglisverðu hugvekju bæjarstjórans í Ólafs- firði. Byggðir Ólafsfjarðar og Svarfdæla voru lengi eins og tveir aðskildir heimar þó stutt væri á milli. Síðan kom tækni nútímans og tók að tengja saman byggðalögin. Fyrst kom síminn um Grímubreickur. Þá vegurinn fyrir Múlann, sem sagt er að eigi beinan og óbeinan þátt í nokkrum ólfirsk-dalvísk- um hjónaböndum. Og nú síðast eru plássin að „raftengjast" sbr. grein hér í blaðinu um háspennu línuna yfir Dranga. Blaðið væntir þess áð áfram- hald verði á birtingu efnis úr Ólafsfirði á síðum þess og send- ir þangað bestu kveðjur. Blessuð rjúpan hvíta Upp er komin mikil deila um rétt til rjúpnaveiða sem heyra má í tilkynningum i Ríkisút- varpinu. Bændur á stórum svæðum vestanlands hafa bund ist samtökum um að banna rjúpnaskot í löndum sínum. Félag skotveiðimanna heldur því hins vegar fram, að bændur taki sér meira vald en þeir eigi að lögum, því allir menn eigi jafnan og frjálsan rétt til veiða á afréttum. í þessu sambandi er ekki út í hött að fara nokkrum orðum um rjúpnaveiði hér í Svarfaðar- dal. Eins og kunnugt er er talsvert um rjúpu hér í fjöllun- um, sumstaðar meira sumstað- ar minna eftir gróðurfari. Mikil ásókn skotmanna er í rjúpuna einkum á bestu veiðistöðunum. Aðallega eru það bæjarbúar, þ.e. Akureyringar og þó einkum Dalvíkingar, en landeigendur þ.e.a.s. bændurnir fara sárafáir til rjúpna. Til eru þeir menn á Dalvík og annarsstaðar, sem ekki telja ómaksins vert að spyrja land- eigendur um leyfi til að skjóta rjúpur. Komið hefur það fyrir að skotmaður hefur svarað til, ef fundið hefur verið að atferli hans, að bændum komi ekkert við þótt skotið sé í fjöllum fyrir ofan girðingar þeirra. Þetta er að sjálfsögðu hinn mesti þvætt- ingur. Allt fjalllendið í kringum Svarfaðardal er hluti af heima- landi bújarðanna í dalnum nema afrétt hreppsins í Skíða- dal. í lögum landsins er að finna ákvæði, sem heimila almenn- ingi frjálsa för og dvöl á óræktuðum og ógirtum eignar- löndum manna. Ennfremur er „heimilt að lesa ber, sem vaxa villt á óræktuðu landi, til neyslu á vettvangi". En hvergi er að finna lög, sem heimila almenn- ingi að skjóta fugla í eignar- löndum annarra. Enda snýst núverandi rjúpnadeila ekki um það, heldur um veiðirétt á landi í opinberri eign. Hér í sveit gæti það einvörðungu gilt um afrétt Svarfaðardalshrepps. Þó hlýtur einnig það að vera umdeilan- legt, því afréttin er að miklum hluta land, sem hreppurinn hefur keypt á þessari öld þ.e. jarðirnar Holprkot, Gljúfrár- kot, Sveinsstaðir og hluti Kross hóls. Almenningurinn og lík- lega Tungurnar líka voru hins- vegar frá fornu fari eign Valla- kirkju. Ekki er til þess vitað, að bændur hér í byggð hugsi sér að hafa samtök um rjúpnaveiði- bann og yfirleitt hafa þeir verið næsta örlátir á að gefa leyfi til veiða í löndum sínum. Hinsvegar er ekki úr vegi að minna á það einu sinni enn að það er bæði lagaskylda og góðir mannasiðir að fá leyfi við komandi landeiganda, áður en Framhald á bls. 3. Til lesenda Nú styttist til jóla og þá þarf að fara að hugsa fyrir jólablaðinu. Nú sem fyrr væri okkur þökk í því ef lesendursendu okkur efni, sem hentar í það blað, - frásagnir, Ijóð, hvaðeina. Já og svo er alltaf pláss fyrir auglýs- ingar. Norðurslóð þakkar les- endum öllum góð sam- skipti og óskar GÓÐS VETRAR. Sláturtíð er að ljúka Dilkar með endemum ryrir í ár Nú er sauðfjárslátrun senn lok- ið í sláturhúsi KEA á Dalvík. Samkvæmt síðustu upplýsing- um er fjöldi sláturdilka röskl. 14.500 eða um 400 fleiri en í fyrra. Þar á móti er fallþungi nú aðeins tæpl. 12.5 kg á móti 14.75 í fyrra. Er þetta enn eitt talandi dæmi þess hve síðastl. sumar var erfitt öllu ungu lífi. Þyngsti dilkur að þessu sinni var 25.9 kg, eign Konráðs bónda Gottliebssonar á Burst- arbrekku í Ólafsfirði. I samtali við sláturhússtjór- ann Kristin Guðlaugsson kom fram að nýi fláningsbekkurinn og tilheyrandi kerfi hefur reynst framúrskarandi vel og er allt starfslið hússins sérlega ánægt með vinnuaðstöðuna sem hann skapar. Nú er verið að slátra full- orðna fénu sem verður óvenju margt að þessu sinni, líkl. á 3. þúsundinu. Árni á Ingvörum með þann mórauða.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.