Norðurslóð - 29.03.1990, Blaðsíða 2

Norðurslóð - 29.03.1990, Blaðsíða 2
2 - NORÐURSLÓÐ NORÐURSLÓÐ Útgefendur og ábyrgðarmenn: Hjörtur Þórarinsson, Tjörn, Svarfaðardal Jóhann Antonsson, Dalvík Umsjón, dreifing og innheimta: Sigríður Hafstað, Tjörn. Sími 96-61555 Prentun: Dagsprent hf. Akureyri Sveitastjómar kosningar Sveitarfélög eru mikilvægar einingar í stjórnkerfi landsins. Helsti veikleiki þeirra er hve mörg þeirra eru smá og um leið óburðug að takast á við verk- efni sem nútíminn gerir í raun kröfur til. Hins veg- ar hefur verið reynt að yfirvinna ágalla smæðar- innar með aukinni samvinnu þeirra í milli. Engu að síður kemur smæð sveitarfélaganna í veg fyrir að þeim verði falin aukin verkefni sem væri þó góð leið til aukinnar valddreifingar og að færa valdið nær fólkinu. Nálægðin við fólkið gerir starf í sveitarstjórn erfitt en um leið mjög heillandi. Sveitastjórnir eru í starfi sínu að fjalla um málefni umhverfisins næst fólkinu. Þar á meðal uppbyggingu þjónustu sem fólk þarf daglega á að halda. Þannig sést áþreifan- lega hvað verður úr skattpeningum borgaranna og um leið skapast mikið aðhald um hvernig þeim er ráðstafað. Nú styttist óðum í sveitastjórnarkosningar. Undirbúningur framboða er í fullum gangi. Brátt mun umræða um menn og málefni sem tengjast væntanlegum kosningum yfirskyggja aðra umræðu. Það er vel að fólkið fari yfir stöðu mála, hvernig til hefur tekist á liðnu kjörtímabili og hvernig halda megi á málum í nánustu framtíð. Mikilvægt er að slíkt mat sé gert fordómalaust, viðurkennt það sem vel er gert og bent á leiðir til að gera betur. Með því móti má nota aðdraganda kosninga til jákvæðrar uppbyggingar á hverjum stað. Möguleikar fólks til að hafa áhrif eru til muna meiri í sveitarstjórnum og í kosningum til þeirra en í landsstjórn og í Alþingiskosningum. Þennan möguleika og þennan rétt eiga sem flestir að nýta sér. Það er því mikilvægt að sem flestir láti sig undirbúning sveitarstjórnarkosninganna varða og taki þátt í umræðu og málatilbúningi fyrir þær. J.A. f Þökkum öllum nær og fjær sem veittu okkur styrk og samúö viö andlát og útför JÓRUNNAR ÁRNADÓTTUR KARLSSON, Blomstergatan 7 Kungshamn Svíþjóð. Guö blessi ykkur öll. Sture Karlsson, Jan Arne Karlsson, Björn Gunnar Karlsson, Bára Elíasdóttir, Árni Arngrímsson, Vígnir Árnason, Petra Árnason, Þorsteinn Máni Árnason, Áslaug Kristjánsdóttir, Elías Björn Árnason, Svandís Hannesdóttir, Friðrika Þórunn Árnadóttir, Sigurður Bjarnason. S Ur dagbók Jóhanns á Hvarfi Anno 1900 17. maí. Gisti Jón á Þorsteins- stöðum (og Sauðaneskoti) hér, sagði hann að dáinn væri Jón gamli Þorsteinsson á Svaðastöð- um, talinn sá peninga auðgasti og að öllu ríkastur maður á Norðurl- andi og ef til vill á landi hér, var alla ævi á Svaðastöðum, líka dáinn Sigurður bóndi Gunnlaugs- son á Skriðulandi, háaldraðir báðir. Dóu í þessum mánuði. Inf- lúensa gekk í Skagafirði. 18. maí. Kom síld frá Akureyri það fyrsta í vetur og vor. 21. maí. . . . réru 9 för af dalnum, fengu á Árgerðisbát 36 í hlut hinir 10-20. 24. maí. Ær látnar liggja úti í nótt það fyrsta, en þó gróðurlaust og hættur. 25. maí. Fór Þóra héðan alfar- in til Jóns Hallgrímssonar í húsi Stefáns og Lilju. (Jón á Jarðbrú). Fylgdi Jóhann bróðir hennar inn- eftir. 29. maí. Kom Gísli á Hvarfi með Skálholti aftur með spítur í brú á Þverá í Skíðadal og Skallá í Svarfaðardal. 30. maí. Manntalsþing. Þing- gjöld afar há, bættust við sýslu- sjóðsgjöld, sem áður hafa verið greidd af hreppsnefnd og borguð í útsvörum, mitt kr. 10,40. Nú er lokið niáli Björns Snorrasonar, með því að hann aftur kallar sín ósönnu orð er hann hefur borið á mig og mitt heimilisfólk, og biður forláts. 4. júní. Kom Jói heim, fengu engan hval. Norðmenn hættir að flytja sundfæri hingað. Þeir fá ekki hval nú fyrir vestan Langa- nes. 6. júní. Jón og Þóra fóru með Rauðhyrnu og flutning á tveim hestum. Kom Stefán í Fagraskógi að mæla jarðabætur. 7. júní. Kom Jói heim, réri á Hrafnsstaðabát. Tryggvi réri sinn fyrsta róður, varð ekki illt, þó heita megi að hann hafi ekki fyrr komið á sjó. 13. júní. Anna kom með mánudagshlut Tryggva. Afli tal- sverður. 14. júní. Hreppaskil. Stefán í Fagraskógi lagði fram jarðabóta- mælingu sína í skýrslu þeirri er senda skal landshöfðingja fyrir. 1. júlí. Hann lýsti skoðun sinni á helstu landsmálum, mun honum í hug að bjóða sig fram til þing- manns við kosningu í haust. 17. júní. í dag byrjar embættis- gjörð á Völlum kl. 10 f.m. hátíð- leg, 9 hundruð ára minning þess er kristni var lögtekin hér á landi. Fyrirmælt í biskupsbréfi til presta landsins, að þennan dag skuli þess minnst. Var lesið bréf er til- kynnir að biskup sé vænt anlegur að' vísitera kirkjur í júlí næst- komandi. 18. júní. Kom Addi (Arngrím- ur Ólafsson, dóttursonur Hvarfs- hjóna, síðar prentari í Reykjavík) úr Ysta-Bæ eftir að hafá verið hjá pabba sínum í viku og þeir bræð- ur báðir. Kom með egg í kassa. 19. júní. Fékk Gísla, létum brúnás í dyrastafagólf hlöðunnar og reftum það, gerðum við dyra- ganginn og báðar hornstoðir í suðurenda að kvöldi. 20. júni. Rekið geldfé, og af næstu bæjum, Alla, eg, Gísli. Jói og Jón. Varð eftir hér Flekkur og Móri. Gróið allvel, stórfenni í giljum. 21. júní. Rekið saman, rekið inn. Gelti lömb. Þvegin ull í dag. 25. júní. Gert við læki. Kom Tryggvi heim með hrossin. Réru báðir bræður hjá Sigurjóni á Böggvisstöðum út hjá Hvanndöl- um, 30 í hlut. Tryggvi gat ekki fengið að róa aftur í nótt fyrir mannfjölda og beituleysi. 26. júní. Rúöuni ær, skoðaði eg geldinga og markaði þá sem ekki voru bólgnir. (Markið stýft hægra sneitt framan vinstra.) Hlaðið ofan á stekkjarveggi. Fannst greni utaní Böggvisstaða- fjalli. 29. júní. Fært frá í gær. Fór Tryggvi með ærnar í dag. Eg og litlu stúlkurnar vakta lömbin. Fór Aðalbjörg með ánum að kvöldi. 30. júní. Var Addi hjá ám, eg og Veiga hjá lömbum. Fór Guð- rún á Hálsi í Syðra-Hvarf með skilvindu að fá undirvísun að setja saman skilvindu hina nýju er kom nýlega að Hálsi. Kom Lauga frá Böggvisstöðum, gistir hér þennan mánuð. I. júlí. Fór Lauga í l5orsteins- staði. (Fæddist Kristinn sem flutti austur.) Kom Jóhann Páll frá Hólum, bað hann fyrir Sokka til tamningar til Jóhannesar á Skriðulandi. Kom Skálholt hér að Sandi með vörur frá Laxdal til reikningsmanna hér. Rósa Sig- urðardóttir fór með Skálholti til Holdsveikraspítalans í Laugar- nesi. Rekin Iömb. 5. júlí. Fór fólk hér út á bæjum, inn á Hjalteyri til versl- unarerinda. Aðalvertíð lokið, er hún ein hin besta. Eg hef lítinn fisk fengið, hafði hvergi skipsrúm fyrir drengi. fékkst ekki að róa fyrir mannfjölda. 10. júlí. Settum ull í poka og bundum pöntunarpoka. II. júlí. Fór ofan, flutti pönt- unarull, tekið á móti henni í gamla salthúsinu. Matsmaður Stefán í Tungu vigtaði mína ull. Fékk slóg og ýsubönd hjá Jóni Stefánssyni, réri hans bátur einn, var kúfsléttur. 23. júlí. Fór eg að Völlum til að vera við vísitasíu séra Hall- gríms biskups Sveinssonar, sem þar var til staðar ásamt skrifara sínum Ólafi Rósinkrans og Júlíusi Hallgrímssyni fylgdar- manni frá Munkaþverá. 24. júlí. Fór biskup að Urðum, svo að Tjörn í kvöld. 27. júlí. Byrjað að binda strax að morgni. Fyllt fjóshlaða í rafta 182 hestar og í fúlgu úti 46 hestar. 28. júlí. Gefin töðugjöld. 31. júlí. í þessum mánuði fór Brynjólfur á Minna Núpi hér um dal í fornfræðirannsókn. (Fræði- maður og skáld.) Fór Guðlaug í Syðra-Hvarf. Sveinbarn fæddist. (Jón á Hofi Gíslason). 8. ágúst. Sóiveig fór ofan með kembuull í tóvinnuvélar, kom með blautfisk á hestinum, fór með skyr. 19. ágúst. Fór eg og Jón í Syðra-Hvarfi í kaupstað lausríð- andi. Gistum hjá Flóv'ent vert. Hýstum hrossin. 20. ágúst. Gránufundur á Oddeyri, sat eg fundinn i tvo tíma. Gerðum í kaupstað það sem við þurftum, fórum kl. 8 e.m. 21. ágúst. Komum heim kl. 7 að morgni, fór eg að sofa. Komu Arnarneshjón og Jórunn kona Jóns Normann, á ferð vestur. fylgdi eg þeim fram fyrir neðan Göngustaðakot. Grátt í fjöll. 30. ágúst. Alhirt í dag og hætt heyskap. Stephensen fór hjá í skoðunarferð þjóðjarða. Hefur Páll verið hér kaupamaður yfir sláttinn 41 /2 dag og í dag að þekja fyrir hey til kl 2, þar eftir inni. Óveður vegna fjarska úrfell- is, snjór ofaní mið fjöll. Heyafli orðinn álitlegur, víða í besta máta. 1. sept. Gert við fjósdyr og brunnhús. Fór Jói í Böggvisstaði. þegar hann kom innanað í morgun. Gangnafundur, þar mætti Hjaltalín frá Möðruvöll- um, kom utanúr Ólafsfirði. Hélt hann tölu nokkra og lét í Ijós álit á þingmálum. Mun hann hafa all- nrikið fylgi á kjörfundi tii Alþing- is. 5. sept. Bjartur og suðaustan gola að morgni, kom utan hvass. Fór eg með Baldvin á bát inneft- ir. Vorum 10, fengum besta leiði. Vorum 4 tíma af Sandi á Odd- eyri. Jói fékk 60 silunga. 6. sept. Var eg á Akureyri í all- an dag. átti tál við ýmsa menn. Kom Skálholt í gærkvöldi seint á Akureyri vestan um land. Komu margir farþegar, og svo ýmsir hér úr sveit ríðandi að kvöldi, rúmir 30 til kjörfundar. 7. sept. Var kjörþing í garðin- um sunnan við gamla barnaskóla- húsið undir beru lofti. Fjöldi fólks viðstaddur. Buðu sig fram: Klemenz sýslumaöur, Jón A. Hjaltalín (skólameistari á Möðruvöllum), Stefán í Fagra- skógi, Sigurður á Bakka í Yxna- dal, Friðrik kaupmaðu r Krist- jánsson. Kosningu hlutu: Klemenz Jónsson og Stefán í Fagraskógi. Stóð Hjaltalín mjög nærri með atkvæði, og" rómaðist misjafnlega að Stefán hlaut en Hjaltalín hafnað sem stefnuföst- um og reyndum þingmanni. 8. sept. Fór eg um borð í Skál- holt kl. 9 að morgni ásamt fjölda farþega. Haldið út fjörð. lítill stans við Hjalteyri svo að Hrísey, þar stansað í 3 tíma. Komum kl. 4 á Böggvisstaðasand. Beið mín hross að heiman, kom heim kl. 6 e.m. Gengnar heiðar í dag. Júhann Jóhannsson og Guðlaug Baldvinsdóttir í Sogni.

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.