Norðurslóð - 20.11.1991, Blaðsíða 5

Norðurslóð - 20.11.1991, Blaðsíða 5
NORÐURSLÓÐ - 5 Svarfdætingamót í Bændahöltiimi 9. nóvember Hið árlega Svarfdælingamót var haldið í Búnaðarþingssal Hótels Sögu laugardagskvöldið 9. nóv- ember. Þar voru mættir um 70 Svarfdælingar til að sýna sig og sjá aðra sveitunga. Húsið var opnað upp úr sjö og gátu gestir þá glatt sig á fordrykk áður en sjálf veislan hæfist. Klukkan rúmlega átta setti formaður Svarfdælingasasmtakanna, Valdimar Óskarsson, samkom- una og fól Atla Kristinssyni veislustjórn. Ræðumaður kvöldsins var Kristján Júlíusson bæjarstjóri á Dalvík. Fór hann vítt og breitt í máli sínu og sagði m.a. frá ástandi mála á Dalvík, sýndist mönnum það harla gott. Að loknu máli Kristjáns risu úr sætum Soffía Halldórsdóttir söngkona frá Mclum og Kári Gestsson píanóleikari með meiru og fluttu þau í sameiningu nokk- ur sönglög íslensk og erlend af þokka og skörungskap og við góðar undirtektir áheyrenda. Þá Systurnar frá Ásbyrgi, kolbrún og Anna Kristín Arngrínisdætiir. Soffía frá Meliini syngur. Kári Gestsson spilar undir. var komið að „leyninúmeri kvöldsins" eins og það var kynnt. Það var Tjarnarkvartettinn sem fyrir tilviljun var staddur í höfuð- liorginni og flutti hann sveitung- um á höfuðborgarsvæðinu söng sinn og kveðjur að norðan. A meðan þessu fór fram voru þjónar hússins á þönum við að bera fram úr eldhúsi forrétti, aðalrétti og eftirrctti matreidda af Sveinbirni Dalvíkingi Frið- jónssyni. Þá las Atli veislustjóri bréf til samkomunnar í gamansömum tón frá ónefndum Dalvíkingi og einnig barst samkomunni með- fylgjandi Ijóð frá Birnu Friðriks- dóttur sem Atli las upp. Norður- slóð fékk góðfúslegt leyfi hjá Birnu til birtingar á Ijóðinu svo fleiri Svarfdælingar fengju notið þess. Nokkuð var dagskráin og borðhaldið klemmt af tíma vegna * Fra Sparisjooi Svarfdæla Til viðskiptavina sparisjóðsins sem eru eigendur tékkareikninga og eru á faraldsfæti. í Reykjavík eru tékkhefti okkar til sölu hjá: Sparisjóði Reykjavíkur, Skólavörðustíg og Sparisjóði Vélstjóra, Borgartúni. Á Akureyri: í Sparisjóði Glæsibæjarhrepps Brekkugötu. Sparisjóður Svarfdæla, Dalvík Nokkrir veislugestir. F.h. Þórunn Elíasdóttir, Freyja Antonsdóttir, Karla Jónsdóttir, Hörður Björnsson, Guðjón Jónsson, maður Körlu. Nýjabæjarfólk. Guúbjörg Ringsted, Kristján l’or .liilíusson, Friðbjörn Krist- jánsson, Laufey Olafsdóttir, Sigvaldi Júlíusson, Jóna Kristjánsdóttir og F.lísabet Þórisdóttir, kona Sigvalda. Ljósm. Hj.Hj. þess að upp úr tíu átti að hefjast í Súlnasal kabarettsýning Halla, Ladda og Bessa sem varpað var á tjald og sjónvarpsskjái í Búnað- arþingssalnum. Að mati blaðamanns hefði mátt sleppa þætti þeirra þre- menninga í Svarfdælingamót.inu enda nóg til af Svarfdælingum sem auðveldlega hefðu hrist fram úr erminni mun betra og upp- byggilegra skemmtiefni en þarna var fram borið. Að loknum kabarettinum gafst mönnum kostur á að spjalla við sveitunga yfir léttum veigum og taka lagið. Pá gátu menn stigiö dans í Súlnasalnum við undirleik hljómsveitar hússins til klukkan þrjú. Ekki var samt stiginn neinn mars í Súlnasalnum þó vissulega hefði mátt sýna fastagestum stað- arins hvernig dansað er á almennilegum böllunt í Svarfað- ardal. Hj.Hj. Á heimleið Hcim í fjördinn , heim í dalinn liugur leilar marga stund. Par var æskueldur falinn ævistarfið lagt í mund. Nú cr sól við hafsbrún hnigin liorfin yst við sjónarrönd. Við rökkurkomu roðna skýin. Rennum norður Arskógsströnd. Vcstur yfir Hálsinn höldum liljótt er kvöld og djúp er ró. Langt að jöluls Ijósu földum lyngið skrcytir hæð og mó. Standa háir klettakambar kirfilega um dalinn vörð fram að Múla nyrðstu nöfum norðan til við Eyjafjörð. Birtast fjöll í blárri móðu bæir standa i hlíðarrót. Hér sem garpar götur tróðu glaðir héldu störfum mót. Rcystu býli, ruddu vegi, ræktuðu móa og holtabörð. Bóndans hönd á björtum degi báti renndi út á fjörð. Færðu jafnan fisk að landi. Fæddu margan svangan þegn. Einatt viljinn óþrjótandi til orku færður stormum gegn. Gott ef augum entist skíma og eitthvað sást um vík og land því áhætta var oft að stíma inn á Böggvisstaðasand. Hvergi var þá Ijós að lýsa til lendingar í svartabyl. Hrakta mátti í húsum hýsa er höfðu litla birtu og yl. Ýmsir máttu þrautir þola og þrengingar að feigðarhyl. Ekki þýddi að þrefa og vola það var ekkcrt betra til. Oft var smalans erfið ganga upp um hlíð og fjalladal. Fótasár með föla vanga, fh'kur slitnar, léttan mal. Úr dýraríki matur mestur mönnum flcytti sérhvern dag. Var heimafenginn baggi bestur búendanna létti hag. Milli byggða löng var leiðin er lá um þessi fjallaskörð. Pá var Heljardalsins- heiðin mcð hcstalest að þjóðbraut gjörð. En víst munu þessir tröllatindar töfra sérhvern ferðalang meðan blása um veröld vindar og vor hcfur lengstan sólargang. Nú er annar aldarháttur allt hefur breyst með lífsins starf. Nú er ekki mannsins máttur það mesta sem á treysta þarf. Heldur vit og viljastyrkur vélaafl á tækniöld. Enginn sultur, ekkert myrkur. Allsnægt hefur tekið völd. Meðan á að ósi fellur. Alstirnt brosir himinhvel. Foss í klettagljúfri gellur geislar sól um laut og mel. - Vermdi sérhvert bændabýli og byggðina við sjávarströnd. Hér öllu lífi af ástúð skýli alvalds mikla föðurhönd. Birna Friðriksdóttir

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.