Norðurslóð - 23.09.1992, Blaðsíða 1

Norðurslóð - 23.09.1992, Blaðsíða 1
Svarfdælsk byggð & bær 16. árj>an}>ur Miövikii(la”iir 23. september 1992 7. tiiluhlað ✓ Afram veginn: Bundið slitlag til Ólafsfjarðar Á næstu viktim ntun Vegagerð- in bjóða út vegaframkvænulir á ntilli Olafsfjarðar og Dalvík- ur. Er þar unt að ræða ca. 7,5 km. kafla slitlags enda á ntilli frá Hóli langleiðina út að giing- unt. Fvrirhugað er að verkið geti liafist í byrjun næsta sunt- ars og að því verði lokið fvrir haustið. Að sögn Guðmundar Svavars- sonar umdæmisstjóra verður veg- arstæðið hið sama og áður að lang- mestu leyti en vegurinn hinsvegar styrktur og hættur og slitlag sett á hann. Eins og greint var frá í blaö- inu í vor hefur stóraukin þungaum- ferð um Múlaveginn eftir að göng- in opnuðust og aukin samvinna bæjarfélaganna sitthvoru megin hans kallað á skjótar endurbætur vegarins og eru þær nú sem sagt í sjónmáli. Framkvæmdir við vegarkaflann milli Holts og Húsabakka hafa nú tafist um rúman mánuð frá upphaf- legri áætlun og eru flestir Joeir sem um veginn fara orðnir ærið lang- þreyttir á hristingnum og torfæru- akstrinum um hann. Veðráttan að undanförnu hefur að sínu leyti ekki flýtt fyrir verklokum en að sögn Guðmundar er þessu nú alveg að Ijúka. Eftir er dálítill frágangur á ræsum og köntum en eins og menn liafa tekið eftir voru nýir vega- skurðir grafnir og gert ráð fyrir réiðgötum milli skurðs og vegar. Þegar verktakinn hefur skilað af sér verkinu mun vegagerðin sjálf sjá um að aka fínum ofaníburði á veginn og leggja slitlagið þar ofan á gefist þess nokkur kostur. Til þess þarf þurrk og 5-10 gráðu hita í tvo til þrjá daga. Hj.H j. Anægðir nvir eigendur á opnunardaginn. Mvnd: Hj.Hj. Nýtt bakarí á gömlum grunni Miðvikudaginn 16. september sl. hóf nýtt bakari starfsemi sína að Hafnarbraut 5 á Dalvík. Nýstofnað fyrirtæki, A\ið h/f, keypti aðstöðuna sem áður var í eigu Víkurbakarís. Kristjáns- bakarí á Akureyri hafði áður aðstöðuna á leigu og rak þar verslun, aðallega með brauð. Nú er sum sé byrjað að baka þarna aftur og eru vafalaust flestir ánægðir með að bakarí skuli hafa tekið til starfa að nýju. Axið h/f. er í eigu þeirra Einars Hólm Stefánssonar, Stefáns Gunnarssonar og Elvu Matthíasdóttur, en auk þeirra tekur Sogn sf. þátt í kaupum húsnæðisins við Hafnarbraut. Þeir Einar og Stefán hafa unnið í Víkurbakaríi en Elva er ný í þessu fagi. Heildarsölu- verð eigna Vfkurbakarís var rúmar 18 milljónir króna og skiptast þær þannig að 70% tilheyra bakarfinu en hluti Sogns sf. er um Tíðarfar og jarðargróði sumarið 1992 Hauststemmning i Svarfaðardal. M>nd: Hj.iij. Fyrir því er 15 ára hefð hér á vettvangi Norðurslóðar að gera ofurlitla úttekt á liðnu sumri helst í septemberblaði ár hvert. Úttektin á að taka nokk- urnveginn til þess hluta ársins, þegar blaðið liggur í sumar- dvala, andstætt því sem gerist hjá bjarndýrum og blómum, sem leggjast í vetrard\ala. Það er hætt við að sumarið 1992 fái heldur slakleg eftirmæli víðast hvar á Islandi. mjög slæm á Suður- og Vesturlandi og tæplega í með- allagi hér um slóðir. Framan af júnímánuði var blíðskapartíð og komst hiti í 20 stig í kringum 10. Þá tók að kólna og blotna og gerði að lokum margra daga hvassviðri í kringum þann 20. Svo magnaður var stormurinn, að hann sleit blöð af greinum trjáa, einkum stóru langleggjuðu lautblöðin af öspinni, og það í þeim mæli. að hún „bar ekki sitt barr" í allt sumar. Það versta var þó eftir. Þann 22. gerði norðanhrakviðri með regni og síðan snjókomu og jók í úrkom- una þann 23. Að morgni þess 24. vöknuðu menn við . að jörð var al- hvít niður að á og út að sjó. Var kynlegt að sjá algræn lauftré og lerki standa upp úr hvítum snjón- um. Minnti [tessi sýn menn á 17. júní hretið 1959. Áð þessu sinni urðu þó ekki fjárskaðar hér í Svarf- aðardal. Júlí var í heild þurr mánuður að þessu sinni, alls 12,6 mm. þótt al- þurrir dagar væru ekki nenta 10 samkvæmt úrkomumælinunt á Tjörn. Heyskapur hafði víðast haf- ist fyrir mánaðarmótin og gekk hann vel frameftir öllum júlí. enda sökktu þá margir upp í stóru aus- unni og heyjuðu grimmt. Vikuna 11.-18. júlí var samfelldur þurrkur. í mánaðarlokin höfðu ntargir lok- ið fyrri slætti og áttu mikil og góð hey. Síðan bættu margir um betur og heyjuðu hána í rúllur. Aðrir urðu of seinir til og lentu með hluta heyskaparins í óþurrkum ágústmánaðar, svo dænti eru þess. að há sé enn að velkjast á blautum túnum. Ágústmánuður var sem sé bæði svalur og blautur og ákaflega sól- arlítill. einkum seinniparturinn. Um 25. gránaði í fjöll og hefur þann gráma ekki tekið enn, heldur bæst á hann ofan snjó á snjó, eins og segir í vísunni. Heildarúrkoma var 69.6 mm, þar af fellu 38,6 mm. dagana 26.-27. sumt sem regn, annað sem krepja. September er nú hálfnaður og vel það. þegar þetta er ritað. Þessi fyrri helntingur hefur verið frá- munalega leiðinlegur mestanparts, kalt og blautt. blautt og kalt. Þang- aö til í dag, 18. september. í gær- kveldi skein skarður máni í heiði og í morgun vöknuðu börn þessara hrjáðu stranda við glampandi sól í hverjum krók og kima himinhvels- ins. Hvílík dýrð og hvílíkir litir á jörðu, sjó og himni. Gróðurjarðar Hér hefur verið dregin upp frentur dapurleg mynd af sumrinu. En ekki má samt kveina eða kvarta. Margt gott er um árferðið að segja. Þrátt fyrir allt var gróður jarðar þroskamikill. Grasvöxtur var prýðilegur, ekki höntluðu maí-júní þurrkarnir. Héraf leiðir mikinn heyfeng bænda og hrossakónga. Berjaspretta varð feykimil, ekki mikið minni en á metárinu 1991. Blóm lyngsins hafaekki skemmst í júníhretinu, líklega komin yfir hættuskeiðið þá. Afturámóti hefur s.vali og sólarleysi orðið þess vald- andi. að þroski berjanna er seinn. Bót er í niáli, að næturfrost voru engin í ágúst og jafnvel nú, 18. sept., hefur enn ekki gert nætur- frost. Og nú í dag tíndi undirritað- ur greinarhöfundur líter af góðum bláberjunt í skyrið. Hér af leiðir, að kartöfluupp- skera verður eftir allt saman allt að því í meðallagi hér í sveit, sem reyndarengin kartöflusveit er. Þá er aðeins eftir að minnast á trjágróðurinn, sem æ meir setur nú svip á svarfdælska byggð, bæði sveit og kaupstað. Minnst var á júnístorminn, sent lék hart nýút- sprungið lauf trjánna. Áhrifin af þessum hrellingum sjást líklega á öllunt trjágróðri í því, að laufkrón- an hel'ur verið gisnari og rýrari, en af því leiðir aftur minni kolsýru- vinnslu, minni flutning næringar- efna til vaxtarsprotanna og þar með minni ársvöxt trésins, bæði ummáls- og lengdarvöxt. Og aftur skal sagt. að einkum á þetta allt við um öspina. Látum svo útrætt um trjágróðurinn og gleðjumst yfir öllum þeim aragrúa ungra trjá- plantna. sent árlega kemur í mold hér þessi árin, og á eftir að gleðja augu manna og bæta loftslagiö á okkar norðlægu breiddargráðum. Haust Þó að sólin skfni í heiði og öll nátt'- úran brosi blítt er ekki um að vill- ast. að það er koniið haust. Göngur eru afstaðnar og féð er komið heim af fjalli og setur nú búsældarlegan svip á heimalöndin. Víst er það fátt en gerir þó allan rnuninn frá ömurlegu sauðleysi niðurskurðar- áranna. Og eitthvað mun því fjölga enn. Á Tungurétt virtist bláedrúum blaðamanni ástand fjárins býsna gott, dilkarnir jafnir og markaðs- hæfilegir. svo notað sé heimatilbú- ið lýsingarorð, foráttuljótt. En það þarf svo sem ekki féð og haustlömbin til að minna á árstíð- ina. Gróðurinn er ekki síður til vitnis um, að „suntri hallar hausta fer", eins og Tunguréttarsöngvarar sungu af tárfellandi tilfinningu á réttardaginn. Haustið hefur sett mark sitt á úthaga og hlíðar fjalla. Litadýrðin er óviðjafnanleg: iðja- græn tún, sölnaðar hlíðar í hinum ótrúlegustu sjatteringum, gulum, brúnum, bleikunt. rauðum. Og hærra gnæfa fannhvít fjöllin í tígu- legri, ólympskri ró. En ofar öllu jarðnesku hvelfist dimmblár him- inninn og speglar sig í rjómaslétt- um lleti hafs og vatna. " /<S’,9. /992 - HEÞ

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.