Norðurslóð - 23.09.1992, Blaðsíða 5

Norðurslóð - 23.09.1992, Blaðsíða 5
NORÐURSLOÐ —5 Tónlistarskólinn hefur aldrei verið fjölmennari. Skólastarfið að hefjast - Allir kennarar að Húsabakka réttindafólk Að vanda voru skóiar settir í byrjun september. Skólastarf á Dalvík og í Svarfaðardal er nieð miklum blóma og verður æ stærri þáttur í bæjarlífinu. Veldur þar ekki minnstu vöxt- ur Sjávarútvegsdeildar Dalvík- urskóla sem hefur aldrei verið fjölmennari en í ár. í grunnskólanum verður 251 nemandi í ár sem er með færra móti. Það ástand ntun þó ekki vara lengi því tjöimennari árgangareru á leiðinni. Alls starfa 36 manns við grunnskólann undir stjórn Þórunn- ar Bergsdóttur skólastjóra. Tölu- verðar breytingar liafa orðið í kennaraliði og má þar helst til nefna að Sveinbjörn Markús Njálsson yfirkennari er farinn til náms í Danmörku og að Þóra Rósa Geirsdóttir flutti sig fram að Húsabakka þar sem hún kennir í vetur. Svanfríður Jónasdóttir tók við starfi aðstoðarskólastjóra. Grunnskóiinn býr við góðan húsakost því í fyrra var annar áfangi nýbyggingar skólans tekinn í notkun. Nú er verið að skipta um jarðveg á lóðinni vestan við Nýja skóla en þar verða sett upp leik- tæki fyrir yngstu börnin. Þá er verið að undirbúa malbikun lóðar- innar milli Gamla skóla og Víkur- rastar. 66 nemar í sjávarútvegsdeild Sjávarútvegsdeild Dalvíkurskóla var sett 3. september á Ráðhúsloft- inu en þar fer kennsla stýrimanns- efna fram. í vetur verða 13 nem- endurá 1. stigi stýrimannanáms o’g 12 á 2. stigi. I Fiskvinnsludeildinni verða 24 nemendur á fyrsta ári. 6 á öðru ári. 7 á þriðja ári en 4 óstað- settir. Alls eru nemendur í Sjávar- útvegsdeildinni því 66 talsins og hefur ljölgað stöðugt frá upphafi. Kennsla fer fram á Ráðhúsloftinu og 3. hæð Kaupfélagsins þar sem bókleg fög fiskvinnsludeildar eru kennd. en verklega hliðin er kennd í frystihúsinu. Nýr deildarstjóri Sjávarútvegs- deildar er Hulda Arnsteinsdóttir en umsjónarmenn stýrimannanáms- ins eru Júlíus Kristjánsson (1. stig) og Björn Björnsson (2. stig). Eitt fyrsta verk nemenda deildarinnar var að sækja námskeið í Slysa- varnaskóla sjómanna en skólaskip- ið Sæbjörg lá við bryggju á Dalvík í tvær vikur. Tónlisfarskóli Dalvíkur hefur heldur aldrei verið fjölmennari en í vetur því þar verða um 150 nem- endur. Kennt verður á þremur stöðum: íGamla skóla á Dalvík, að Húsabakka og í Arskógi. Einnig er samstarf við Tónlistarskólann í Olafsfirði um rekstur lúðrasveitar sem Eiríkur Stephensen stjórnaren hann er nýr í starfi. Skólastjóri er Hlín Torfadóttir en kennarar eru níu. Fjölgar um einn að Húsabakka Húsabakkaskóli var settur 17. september. Þar verða í vetur 46 nemendur. einum fleiri en í fyrra. Ein breyting varð á kennaraliðinu. Þóra Rósa Geirsdóttir kom í stað Aðalsteins Hjartarsonar leiðbein- anda. Eru þá allir fjórir fastir kenn- arar skólans með fuli réttindi og er nokkuð um liðið síðan svo var. Auk þeirraeru þrír stundakennarar við skólann. Skólastjóri er sent fyrr Helga Hauksdóttir. Daginn fyrir skólasetningu var lokið við að malbika bílastæði skólans en það hafði tafist sökum rigninga. Þá voru í sumar gerðar ýmsar lagfæringar og endurbætur á húsakostinum, ma. settar bruna- varnarhurðir fyrir öll herbergi á heimavist í eldra húsinu. -PH SlöUuFV ■f'ltej jullan Kug á að Kctjct Kjá mér lífinn artngasamcm Kóp í ve+ut* í I-ctugasfeini/ ineð það aó mai'kmiði að sfunda léf+gi1 reji nggi' Kyggóar á •HafKa-yoga keejinu. Xíininn vai'ii* í 1 '/< fíma ineð % fíina slökun. <£i r\rvig fek ég aó mér ein sfakl inga í 45 mín- ú+na slökun og Ken+a Káóie fíinamii' vel l^eiin/ sem et'u undir* álagi eda vilja Kar*a sfyrkja sig andlega og líkainlega. Peii* sem Kaja verid áðui* si+ja jyt'ir*/ en nánari upplýsingai* jásf í síina 6 4 4 30 næsfu daga. Ste im-m+A "P. '}_'la|s+að Minning: Asgeir Pétur Sigurjónsson kennari, Dalvík Fæddur 30. desember 1905 - Dáinn 2. september 1992 Ásgeir P. Sigurjónsson fyrrum kennari á Dalvík lést 2. september síðastliðinn. Með honum er horf- inn af sjónarsviðinu maður sem sett hefur svip á mannlífið á Dalvfk undanfarna áratugi. Ásgeir kenndi við Dalvíkur- skóla allan sinn starfsaldur og eru þeir ófáir Dalvíkingarnir sem notið hafa uppfræðslu hans í námi og leik. Ásgeir var eljumaður mikill, kennari af lífi og sál og var óþreyt- andi við að sinna börnum. ekki bara á skólatíma, heldur einnig við ýmis tækifæri utan hans. Það var algeng sjón á Dalvík, á hátíðisdög- um á þessum árum, að sjá Ásgeir gangandi fyrir hópi barna á sumar- daginn fyrsta og 17. júní í skrúð- göngu, sem var oftast það eina sem gert var til hátíðarbrigða á þessum dögum, ólíkt því sem nú er. Ásgeirs verður lengi minnst sem yngribarnakennara af lífi og sál, sem alltaf hafði tíma til að kenna börnum leiki og fléttaði þá gjarnan fagmannlega inn í kennsl- una. Ásgeirs verður minnst sem glaðværs, geðgóðs manns scm var fágaður í allri framkomu og ein- kenndust vinnubrögð hans af ná- kvæmni. Ásgeir kenndi flestar greinar, bæði bóklegar. íþróttir o.fl. Nýj- ungum tók hann á með fullri var- færni, lét sannfærast um gildi þeirra áður en hann reyndi þær. Nemendur eiga hlýjar minningar um Ásgeir. því hann skipti sjaldan skapi og prúðmannleg framkoma hans og hlýja í garð þeirra var honum í blóð borin. Skemmtilegum sið kom Ásgeir á, siö sem er orðin ein af hefðum fyrir jólahátíðina á Dalvík, er nem- endur gerast jólasveinar og færa bæjarbúum jólapóstinn á aðfanga- dag með öllum þeim látum sem ís- lenskum jólasveinum eru eiginleg. Ásgeir var fæddur á Fornu- stekkum í Hornafirði, sonur Sigur- jóns Péturssonar og Ingibjargar Gísladóttur. Leið Ásgeirs lá í Menntaskólann á Akureyri þar sem hann lauk gagnfræðaprófi 1929 og settist síðan í Kennara- skólann í Reykjavík og lauk þaðan kennaraprófi 1932. Þá um haustið réðst hann til Dalvíkurog Svarfað- ardals sem kennari og kenndi á báðum stöðum til að byrja með. Skólinn var til húsa á þessum árum í Ási eða Grundargötu 2, en haustið 1934 vartilbúið nýtt skóla- hús sem í dag er eldri hluti gamla skóla eins og hann er kallaður. Ásgeir kenndi til ársins 1975 eða í 43 ár samtals, fyrst við Barnaskóla Dalvíkur óg seinna einnig við unglingaskólann, eða frá 1958. Ásgeir gegndi ýmsum störfum samhliða kennarastarfinu. Hann var í skattanefnd í mörg ár, í stjórn Sjúkrasamlags Svarfdæla og Byggingarfélags verkamanna á Dalvík og umboðsmaður skatt- stjóra. Þá vann hann ýmis störf á sumrum, m.a. við sflaarsöltun. Árið 1938 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni. Þórgunni Loftsdóttur frá Böggvisstöðum, og eru börn þeirra Ásgeir Pétur. hér- aðsdómari á Akureyri. og Ingi- björg, verslunarmaður á Dalvík. Vil ég fyrir hönd Dalvíkurskóla votta eiginkonu, börnum og fjöl- skyldum samúð okkar og biðja þeim guðs blessunar á sorgarstund. Þórunn Bergsdóttir skólastjóri U.K.E. Dalvík Slátursafa hófst miðvikudagmn 16. september v , v . w yy síðastliðinn. VV\V X /t/ Afgreitt verður eftir pöntunum sem þurfa að berast eigi síðar en deginum áður. Tilboð Vörur til sláturgerðar Tekið er á móti pöntunum í síma 61615 frá kl. 10*> til kl. 12 Afgreiðsla verður í húsi Stefáns Rögnvaldssonar hf. Sala á kjöti fer fram í Svarfdælabúð

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.