Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Blaðsíða 35

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1996, Blaðsíða 35
Látnir félagar I minningu Odds Péturssonar Þann 15. mars 1995 lést á Reykjalundi íyrrverandi félagi okkar, Oddur Pétursson, löggiltur endurskoðandi, eftir langvarandi veikindastríð. Oddur var fæddur árið 1944 og var því aðeins rúmlega fimmtugur þeg- ar hann féll frá. Eftir nám í Verzlunarskóla Islands starfaði hann um nokk- urra ára skeið við skrifstofustörf hjá Stálsmiðjunni, en árið 1969 hóf hann nám í endurskoðun hjá Guðjóni Eyjólfssyni, löggiltum endurskoðanda. Frá árinu 1973 starfaði hann á endurskoðunarskrifstofu okkar, sem þá hét Endurskoðunarskrifstofa N. Manscher sf, fyrstu árin sem nemi. Eftir að Oddur hafði öðlast löggildingu til endurskoðunarstarfa hélt hann til London ásamt eiginkonu sinni og dætrum til þess að öðlast nýja reynslu í faginu. I London starfaði hann um rúmlega eins árs skeið hjá endurskoðunarfirmanu Coopers & Lybrand við góðan orðstýr. Sá er þess- ar línur ritar núnnist ánægjulegrar helgardvalar á heimili þeirra hjóna frá þessu tímabili, þar sem Oddur á sinn gamansama hátt sagði ffá mönnum og málefnum sem hann hafði kynni af. Eftir heimkomuna hóf hann svo aftur störf á skrifstoíu okkar. Hann varð meðeigandi að skrifstofunni ífá janúar 1977. Þar starfaði hann svo til ársins 1983 er alvarleg veikindi gerðu honum ókleift að sinna störfum sín- um. Oddur ávann sér traust og virðingu viðskiptavina skrifstofunnar með vandvirknislegum vinnubrögðum og trúverðugri framkomu sinni. Við sem störfuðum með Oddi á þessum árum minnumst glaðværðar hans og gamansemi, og sterkum vilja hans til þess að láta hvarvetna gott af sér leiða, jafnt í starfi sem leik. Eiginkonu hans, dætrum og öðrum ástvinum sendum við hugheilar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Odds Péturs- sonar. f.h. Endurskoðunarmiðstöðvarinnar Coopers & Lybrand hf Valdimar Guðnason 33

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.