Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Blaðsíða 24
Helgarblað 9.–12. desember 20162 Jólasveinninn - Kynningarblað
KRUMMA ehf., Gylfaflöt 7, 112 Reykjavík; krumma.is
V
andaðar vörulínur með tré-
leikföngum, heimsþekktar
plastperlur, handmálaðar
plastfígúrur, Go-Kart-bíl-
ar og pedalabílar, litir og
föndurvörur. Þessi dæmi eru aðeins
brot af því úrvali sem fyrirtækið
KRUMMA býður upp á í verslun
sinni að Gylfaflöt 7 og í vefverslun-
inni á krumma.is. Heimþekkt vöru-
merki koma við sögu, aðilar sem
hafa áratuga reynslu í hönnun og
framleiðslu þroskandi leikfanga fyr-
ir börn.
KRUMMA telst vera elsta starf-
andi leikfangaverslun landsins en
fyrirtækið var stofnað árið 1986 undir
heitinu Barnasmiðjan. Nafninu var
síðan breytt í KRUMMA ehf. árið
2011. Auk leikfanganna er KRUMMA
eina fyrirtækið á Íslandi sem sér-
hæfir sig í framleiðslu á leiktækjum.
Fyrir tækið hannar og framleiðir leik-
tæki fyrir leikskóla, grunnskóla, opin
leiksvæði og heimili. Mikil þekking
og reynsla liggur að baki framleiðslu
leiktækjanna sem eru víðar notuð en
á Íslandi, þau hafa t.d. verið seld til
Portúgals og Hollands.
Bæði hægt að sækja og fá
sendar vörur
Verslun KRUMMA er að Gylfaflöt 7,
112 Reykjavík. Símanúmer í versl-
uninni er 587-8700. Einnig er hægt
að kaupa allar vörur í vefverslun
KRUMMA á vefsvæðinu krumma.
is. Viðskiptavinir geta þá valið um
að sækja vörurnar í verslunina að
Gylfaflöt 7 eða fá þær sendar. Greið-
ir kaupandi þá sendingarkostnað
samkvæmt gildandi verðskrá hjá Ís-
landspósti. Pantanir eru afgreiddar
samdægurs eða næsta virka dag. n
Heimsþekktir
framleiðendur
Leikföngin sem KRUMMA selur eru hönnuð og
framleidd með þarfir viðkomandi aldurshóps
í huga en um er að ræða leikföng fyrir börn
á ýmsum aldri. Afar þekktir og viðurkenndir
framleiðendur koma við sögu en hér er yfirlit
yfir það helsta:
n BRIO eru vönduð tréleikföng frá Svíþjóð en
þetta er gamalt og þekkt vörumerki. Vörulínan
er fjölbreytt, til dæmis er í boði lestasett og
aukahlutir fyrir það, mekkanó, trékubbar og
ungbarnavörur, gönguvagnar sem eru mjög
vinsælir. Þá má nefna dúkkuvagna, eldavél,
matarstell og fleira.
n HAMA Nánast hvert einasta leikskólabarn
þekkir HAMA plastperlurnar frá Danmörku.
Þeim er raðað á perluspjöld og straujað yfir.
n PlusPlus kubbar frá Danmörku eru í
mörgum litum og eru afar vinsælir. Með
PlusPlus kubbunum er hægt að kubba
ótrúlegustu hluti en kubbarnir eru allir eins í
laginu.
n KAPLA trékubbar. Gamalt og klassískt
vörumerki frá Frakklandi. Kubbarnir eru allir
eins í laginu og börn og fullorðnir hafa gaman
af því að gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn
með þessum kubbum. Það er hægt að byggja
ótrúlegustu hluti úr KAPLA kubbunum og
margir hafa byggt þekktar byggingar eða önnur
kennileiti með þeim.
n Schleich í Þýskalandi framleiðir hágæða
handmálaðar plastfígúrur. Margar gerðir af
dýrum, húsdýr, villt dýr, sjávardýr, risaeðlur,
drekar, ævintýraverur, riddarar og strumpar.
n Hape trévörur eru einnig frá Þýskalandi. Hape
framleiðir breiða línu af tréleikföngum fyrir börn frá 0 ára og upp úr: Púsluspil,
bílar, hljóðfæri, dúkkuhús og margt fleira. Einnig flottar kúlubrautir með
glerkúlum sem henta fyrir 4 ára og upp í 99 ára!
n Tegu segulkubbar eru úr gegnheilu tré. Kubbarnir eru með góðum segli,
vandaðir og í fallegum litum. Tegu er bandarískt fyrirtæki en starfar í Hondúras.
Fyrirtækið skapar störf á fátæku svæði í Mið-Ameríku og styrkir börn á svæðinu
til náms.
n BERG er hollenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á Go-Kart-bílum/
pedalabílum og einstaklega vönduðum og flottum trampólínum. Í boði er allt frá
litlum Go-Kart-bílum fyrir 3 ára börn upp í stóra bíla fyrir fullorðna. Trampólínin
eru af einstökum gæðum með afbragðs fjöðrun. Hoppdúkurinn er örlítið stamur
þannig að sá sem hoppar rennur síður til.
n Morocolor/Primo er ítalskt fyrirtæki sem framleiðir málningu, vaxliti,
tréliti, túss, penna, pensla, lím og helstu hluti sem tengjast myndmennt og
föndurvinnu. Þetta eru drjúgir litir á góðu verði. Framleiðsla fyrirtækisins er knúin
með sólarrafhlöðum.
n LEGO education eru stærri einingar af LEGO kubbum, frá 0 ára–99 ára.
KRUMMA flytur LEGO education inn frá framleiðandanum, LEGO. KRUMMA
byrjaði með LEGO FLL-keppnina á Íslandi í samstarfi við LEGO.
Þroskandi, falleg og
fjölbreytt leikföng
í jólagjöf frá
heimsþekktum
framleiðendum