Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.2016, Blaðsíða 46
Helgarblað 9.–12. desember 201642 Menning J ón Hjaltason sagnfræðingur er höfundur bókarinnar Bærinn brennur, en þar er sagt frá elds­ voðum, afdrifum húsa, þró­ un byggðar og mannlegum örlögum á Akureyri. Jón er fyrst spurður af hverju honum hafi þótt ástæða til að skrifa bók um bruna á Akureyri. Hann svarar: „Framan af 20. öld voru brunar afskaplega tíðir hér á Akureyri, já svo tíðir að því var almennt trúað að þeir hlytu að vera af mannavöldum. Og þótt held­ ur drægi úr þessum grunsemdum þegar á leið þá segir Bærinn brennur frá óhugnanlega mörgum brunum. Eldsvoðar hafa breytt miklu um ásýnd Akureyrar og skipulag bæjarins. Til dæmis má rekja fyrstu bæjar vatnsveituna beint til eld­ hræðslu okkar Akureyringa. Og hér er enn í bænum, ótrúlegt nokk, óbyggt, allstórt svæði sem áður var þakið byggingum sem eldurinn eyddi á sínum tíma. Merkar byggingar hafa líka horfið. Til dæmis brann elsta og fyrsta íbúðarhúsið á Akureyri. Hótel Oddeyri og Hótel Akureyri voru með glæsilegustu byggingum lands­ ins á sínum tíma, bæði hurfu í eldi. Raunar má segja að heilu hverfin hafi fuðrað upp í sumum þeirra elds­ voða sem hér hafa orðið.“ Áhrif á samfélagið Voru þetta mannskaðabrunar? „Já, því miður hefur fólk týnt lífi í eldsvoðum á Akureyri. Afskaplega sorglegur atburður varð 1968 þegar ung móðir fórst og tveir ungir synir hennar. Sem betur fer eru þessi tilvik þó ekki mörg.“ Hvaða áhrif höfðu þessir brunar á samfélagið? „Áhrifin voru mikil og nægir að nefna Vatnsveitu Akureyrar í því sambandi sem varð til í og með til að auðveldara yrði að slökkva elda í kaupstaðnum. En áhrifin hefðu orðið enn meiri, já, gríðarleg, ef sam­ félagið hefði ekki verið jafn fátækt og raun bar vitni. Brunarnir innleiddu nefnilega þá sannfæringu að timbur væri beinlínis hættulegt byggingar­ efni. Og hefðu menn átt einhverja peninga væri í dag ekki að finna eitt einasta gamalt timburhús á Akur­ eyri. Það eimdi lengi eftir af þessari trú. Við sjálft lá að jafnvel hin forn­ fræga bygging Menntaskólans á Akur eyri lyti í lægra haldi fyrir stein­ steypunni sem var hið eina sanna byggingarefni. Eldurinn hafði þá líka reynt að eyða þessu glæsilegasta skólahúsi landsins og munaði að­ eins hársbreidd – og lítilli tilviljun – að það breyttist í brunarúst.“ Hlutskipti slökkviliðsmannsins Jón er spurður hvernig hann hafi unnið bókina. „Ég lagði sérstaka áherslu á að finna frumgögn um stærstu eldsvoðana, 1901, 1906 og 1969 sem varð reyndar snúnara en ég átti von á,“ segir hann. „Dóma­ bókin fyrir árið 1901 er ekki finnan­ leg. Kannski hefur hún brunnið þegar Ástar­Brandur kveikti – eða kveikti ekki – í tukthúsinu 1938. Það var svo fyrir tilviljun að ég fann út­ skrift úr bókinni sem hafði verið þýdd á dönsku fyrir dönsk trygginga­ félög. Síðasti kaflinn í Bærinn brennur er um verksmiðjubrunann á Gleráreyrum 1969 og er að stórum hluta byggður á við­ tölum við karlana sem í tólf klukkustundir börðust við ægilegt eldhaf. Mér fannst líka spennandi að velta fyrir mér hlutskipti slökkviliðs­ mannsins. Hér áður var sá bestur í liðinu sem gat haldið lengst niðri í sér andanum, sagði mér gamall slökkvi­ liðsmaður. Með öðrum orðum, sá sem þoldi reyk og eimyrju best. Þannig var búið að þessum mönn­ um og gengur eiginlega kraftaverki næst, finnst mér, að enginn þeirra skuli hafa farið sér að voða. Stund­ um skall þó hurð nærri hælum. Annars er það slökkviliðsmað­ urinn Gunnlaugur Búi Sveinsson sem ber stærsta ábyrgð á að Bærinn brennur varð að bók. Á sínum tíma lagði hann mikla vinnu í að safna heimildum úr dag­ bókum slökkviliðsins og blöðum um bruna á Akur­ eyri. Síðan lögðust þeir á eitt, Gunnlaugur Búi og sonur hans Ólafur Búi, við að safna ljósmyndum sem þeir fengu lánaðar til eftirtöku, jafnt frá áhuga­ ljósmyndurum sem atvinnumönn­ um. Þetta mikla safn fékk ég lánað og þar með fæddist hugmyndin.“ Sannkölluð myndabók Fjöldi ljósmynda prýðir bókina. „Myndirnar eru sannarlega sérkafli út af fyrir sig og hafa fæstar komið á prent fyrr. Þær eru á fjórða hundrað og sýna þróun bæjarins í rúma hálfa öld eða fram til 1969. Þær elstu eru frá því fyrir aldamótin 1800/1900 en yngstu myndirnar tengjast verk­ smiðjubrunanum 1969,“ segir Jón. „Bærinn brennur er því sannkölluð myndabók, er mér óhætt að segja, enda allur frágangur hennar við það miðaður að ljósmyndir fái not­ ið sín. Og það verð ég að segja að prentsmiðjan Oddi, en þar var bók­ in prentuð, hefur skilað einstaklega góðu verki. Ég held hreinlega að ég hafi aldrei séð betra prentverk á myndum en í Bærinn brennur.“ n „Hér áður var sá bestur í liðinu sem gat haldið lengst niðri í sér and- anum, sagði mér gamall slökkviliðs- maður. Með öðrum orðum, sá sem þoldi reyk og eimyrju best. Maí 1967 Enn er eldur í Strandgötu 39, húsinu sem gat ekki brunnið. Mynd GunnlauGur TryGGvi BerGþórSSon Eldar og örlög á Akureyri n Jón Hjaltason sagnfræðingur er höfundur bókarinnar Bærinn brennur n Á fjórða hundrað mynda eru í bókinni Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Jón Hjaltason Höfundur bókar um bruna á Akureyri. Mynd Guðrún þórSdóTTir Allt á einum stað: Prentun, merkingar og frágangur. Inni- og útimerkingar. Segl- og límmiðaprentun. Ljósmynda-, striga- og segulprentun. Textaskraut, sandblástur, GSM hulstur og margt fleira...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.