Fréttablaðið - 25.11.2017, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 25.11.2017, Blaðsíða 86
Í dag, 25. nóvember, er alþjóð-legur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum. Hann markar jafnframt upphaf sextán daga átaks til vitund-arvakningar um kynbundið ofbeldi. Ákvörðunin um þennan baráttudag var tekin á allsherjar- þingi Sameinuðu þjóðanna síðla árs 1999 og var dagsetningin valin með það fyrir augum að minnast Mira- bal-systranna fá Dóminíska lýðveld- inu. Þrjár þeirra voru einmitt myrtar á þessum degi árið 1960. Morðin á systrunum vöktu heimsathygli á sínum tíma, einkum þó í löndum Rómönsku-Ameríku. Hætt er þó við að nöfn þeirra séu flestum Evrópubúum gleymd í dag. Saga þeirra er þó merkileg og sam- tvinnuð dapurlegri stjórnmálasögu heimalands þeirra á tuttugustu öld. Dóminíska lýðveldið er ríki á austurhluta eyjunnar Hispanjólu í Karíbahafinu, en Haítí er á vestur- hlutanum. Eftir að evrópskum yfir- ráðum lauk var gerð skammvinn tilraun til sameiningar landanna tveggja á fyrri hluta nítjándu aldar. Sú tilraun fór út um þúfur og voru ýfingar milli ríkjanna tveggja um langt árabil, sem mótað hafa sögu svæðisins. Dóminíska lýðveldið hefur eins og önnur ríki í þessum heimshluta fallið undir skilgreint áhrifasvæði Bandaríkjastjórnar, sem hefur leynt og ljóst áskilið sér rétt til að hlutast til um málefni viðkomandi landa. Eftir að Bandaríkin tóku við greftri Panama-skurðarins árið 1904 og luku honum áratug síðar jókst áhugi þeirra á málefnum Hispan- jólu til mikilla muna. Bandaríkja- stjórn var mjög í mun að tryggja að evrópsk ríki kæmust ekki til áhrifa í Dóminíska lýðveldinu og á Haítí og gætu þannig ógnað umferð um skipaskurðinn. Svikull herforingi Fyrstu áratugir tuttugustu aldar einkenndust af miklum pólitískum óróa í Dóminíska lýðveldinu, með valdaránum, uppreisnartilraunum og pólitískum morðum. Bandarísk yfirvöld fylgdust grannt með og gripu reglulega inn í atburðarásina. Þannig hernámu Bandaríkjamenn landið vorið 1916 og réðu þar ríkjum næstu sex árin. Frjálsar for- setakosningar voru loks haldnar í Dóminíska lýðveldinu árið 1924 og við tók skammvinnt stöðugleika- tímabil. Árið 1930 hugðist forsetinn leita eftir endurkjöri, en andstæðingar hans höfðu annað í huga. Rafael Trujillo var metnaðarfullur her- foringi sem náð hafði æðstu met- orðum í hernum þrátt fyrir að vera rétt tæplega fertugur. Hann gerði leynilegt samkomulag við leiðtoga uppreisnarmanna sem höfðust við í sveitum landsins. Uppreisnar- liðið gerði árás á höfuðborgina Santo Domingo, en Trujillo fyrir- skipaði hernum að aðhafast ekkert. Forsetinn var hrakinn í útlegð en uppreisnarmenn launuðu Trujillo greiðann með því að styðja hann í forsetakosningunum í kjölfarið. Með hjálp uppreisnarmanna og hersins voru mögulegir mótfram- bjóðendur Trujillos hræddir frá því að taka þátt í kosningunum, sem urðu hreinn skrípaleikur. Trujillo var lýstur forseti með 99 prósentum atkvæða og hófst þar með langur og blóðugur valdaferill hans. Trujillo breytti Dóminíska lýð- veldinu í eins flokks ríki, þar sem aðrar stjórnmálahreyfingar voru bannaðar og nær útilokað að fá embætti eða ná árangri í þjóðfélag- inu nema með aðild að flokknum. Stjórnarfarið einkenndist af skefja- lausu ofbeldi gegn öllum þeim sem voguðu sér að efast um ágæti for- setans eða gagnrýna hann á nokk- urn hátt. Annað einkenni Truji l lo- stjórnarinnar var hömlulaus per- sónudýrkun á leiðtoganum. Nafni höfuðborgarinnar og hæsta fjalls landsins var breytt og hvort tveggja kennt við leiðtogann mikla. Götur, bæir og opinberar byggingar voru nefnd upp á nýtt foringjanum eða ættmennum hans til heiðurs. Trujillo lét sér ekki nægja vegtyll- urnar, heldur stjórnaðist hann af gríðarlegri ágirnd. Hann dró sér óhemjuháar upphæðir úr sjóðum ríkisins og sífellt fleiri svið atvinnu- lífsins komust með tímanum undir stjórn hans og fjölskyldumeðlima. Á skömmum tíma komst Trujillo í hóp ríkustu manna veraldar. Ætla mætti að svo skefjalaus sjálf- taka forsetans hefði dugað til þess að snúa almenningi gegn stjórn hans. Efnahagslegar aðstæður voru hins vegar hagstæðar og hagvöxtur mikill í mörgum ríkjum Rómönsku- Ameríku. Trujillo-stjórnin gat því makað krókinn en á sama tíma staðið fyrir ýmsum uppbyggingar- verkefnum sem voru til vinsælda fallin. Órói og innanlandserjur ára- tuganna á undan urðu jafnframt til þess að ýmsir voru til í að styðja stjórn „sterks leiðtoga“ sem stýrði með járnhnefa. Þjóðarmorð Trujillo greip einnig til þess ráðs, sem reynst hefur einræðisherrum vel á öllum tímum, að spila inn á þjóðernishyggju og skapa sameigin- legan óvin. Þann óvin fann Trujillo í fátækum íbúum í landamærahéruð- unum, sem áttu uppruna sinn að rekja til Haítí. Árið 1937 rann upp viðbjóðslegasta tímabilið í sögu Trujillo-stjórnarinnar – og er þó af ýmsu að taka – þegar hernum var fyrirskipað að drepa landsmenn sem ættaðir væru frá Haítí, hvar sem til þeirra næðist. Við tók skelfileg sláturtíð þar sem hersveitir fóru um og drápu líklega á bilinu 20-30.000 manns á fáeinum dögum. Flestir voru stungnir með byssustingjum, því talið var að of auðvelt yrði að rekja drápin til hers- ins ef notast væri við byssukúlur. Atburðir þessir hafa gengið undir nafninu „steinselju-fjöldamorðin“ í Dóminíska lýðveldinu. Byggist það á lífseigri flökkusögn um að her- menn stjórnarinnar hafi stöðvað fólk af handahófi, sýnt þeim stein- seljublöð og beðið um að segja um hvers konar jurt væri að ræða. Átti framburðurinn á nafni plöntunnar að fletta ofan af því hvort viðkom- andi væri í raun Haítíbúi og því rétt- dræpur. Hin svívirðilegu þjóðarmorð Trujillo-stjórnarinnar ollu ráða- mönnum í Washington nokkru hugarangri, en þó mátu Banda- ríkjamenn það sem svo að hags- munum þeirra væri betur borgið með Trujillo við völd. Á sama hátt var Bandaríkjastjórn lítt skemmt yfir fregnum af óhófslífi Ramfis Trujillo, sonar einræðisherrans, í Hollywood á árunum upp úr 1950. Glaumgosinn Ramfis, sem gerður var að ofursta í dóminíska hernum aðeins fjórtán ára gamall, átti að taka við veldi föður síns, en kaus fremur að lifa ljúfa lífinu innan um kvikmyndastjörnur. Hann var í vin- fengi við sumar af frægustu leikkon- um sinnar tíðar og jós þær gjöfum: skartgripum, sportbílum og dýrum loðfeldum. Vakti eyðslusemin sér- staka gremju þeirra sem spurðu sig hvers vegna í ósköpunum Banda- ríkin væru að veita háar fjárhæðir í stuðning við Dóminíska lýðveldið á sama tíma og þessu færi fram. Heima fyrir sýndi Trujillo þó engin merki um að slaka á klónni. Flokkur hans fékk einatt 100 pró- sent atkvæða í kosningum, hvort sem Trujillo var sjálfur í framboði til forseta eða fól öðrum að sinna starfinu sem strengjabrúðum. Í kosningunum 1947 þóttist stjórnin þó ætla að heimila stjórnarandstöð- unni að bjóða sig fram og starfa, en hinn raunverulegi tilgangur var þó sá einn að draga andstæðinga hans fram í dagsljósið, svo unnt væri að fangelsa þá eða myrða einn af öðrum. Uppreisn fiðrildanna Á sjötta áratugnum færðist pólitísk andstaða við Trujillo-stjórnina í vöxt og voru Mirabal-systurnar hluti af þeirri hreyfingu. Þær voru fjórar talsins, úr bændafjölskyldu. Þrjár þeirra: Patria, Minerva og Maria Teresa, gengu menntaveginn, urðu pólitískt róttækar og giftust mönnum sem deildu stjórnmála- skoðunum með þeim. Systurnar gengu til liðs við hina leynilegu andspyrnuhreyfingu og stofnuðu sinn eigin hóp, sem þær kölluðu „Fiðrildin“ (sp. Las Maripo- sas). Næstu misserin létu þær til sín taka með ýmsum hætti: gáfu út dreifirit og héldu fundi, en við- uðu einnig að sér upplýsingum um sprengjugerð og vopnaburð. Þær voru handteknar, en sleppt aftur úr haldi og með tímanum urðu þær persónugervingar andófsins gegn Trujillo. Að kvöldi 25. nóvember 1960 stöðvuðu meðlimir öryggislögregl- unnar bifreið systranna þriggja. Þær voru dregnar út úr bílnum og barðar til bana. Líkunum var komið fyrir í bíl þeirra og reynt að láta líta út fyrir að um bílslys hefði verið að ræða. Öllum var þó ljóst hvernig í pott- inn væri búið og að aftökur þessar hefðu aldrei átt sér stað nema með samþykki einræðisherrans. Reiðibylgjan sem fylgdi í kjölfar morðsins á systrunum varð kröft- ugri en Trujillo og fantar hans höfðu látið sér til hugar koma. Dóminíska lýðveldið einangraðist í samfélagi ríkja Rómönsku-Ameríku og þegar Trujillo var fáeinum mánuðum síðar bendlaður við misheppnað morðtilræði við erkióvin sinn, for- seta Venesúela, var fokið í flest skjól. Bandaríkjastjórn komst að þeirri niðurstöðu að Trujillo væri orðinn skaðlegur bandamaður og valda- tími hans yrði senn á enda. Sum- arið 1961 var Trujillo veitt fyrirsát og hann skotinn til bana. Deilt er um hvort tilræðismennirnir hafi beinlínis notið aðstoðar bandarísku leyniþjónustunnar eða hvort hún hafi einungis veitt þegjandi sam- þykki sitt. Kvennabósinn Ramfis gerði skammlífa en vonlitla tilraun til að setjast í stól föður síns, en hrökklaðist fljótlega úr landi ásamt ættmennum sínum með það af þýf- inu sem þeim tókst að hafa með sér. Þótt andstæðingar Trujillos fögn- uðu dauða einræðisherrans reyndist sigurvíman skammvinn. Samstarfs- menn hins fallna forseta héldu áfram ýmsum þráðum valdsins í höndum sér. Við tók tímabil með valdaránum, ægivaldi hersins og blóðugum pólitískum hreyfingum. Sú niðurstaða hefði væntanlega valdið Mirabal-systrum miklum vonbrigðum, en enn í dag lifa þær sem táknmynd hetjulegrar póli- tískrar baráttu kvenna og fórnar- lamba ofbeldis. Dauði fiðrildanna Morðin á systrunum vöktu heimsathygli á sínum tíma, einkum þó í löndum Rómönsku-Ameríku. Hætt er þó við að nöfn þeirra séu gleymd Evrópubúum. Saga til næsta bæjar Stefán Pálsson skrifar um píslarvotta. SySturnar gengu til liðS við hina leynilegu andSPyrnuhreyfingu og Stofnuðu Sinn eigin hóP, Sem þær kölluðu „fiðrildin“ (SP. laS ma riPoSaS). næStu miSSer in létu þær til Sín taka með ýmSum hætti. ERTU LÖNGU HÆTT/UR AÐ REYKJA EN SITUR UPPI MEÐ SKEMMDIRNAR! Supreme Demantshúðslípun + Intraceuticals “Hollywood-meðferð” Fyrir Eftir Fyrir þá sem gera kröfur um gæði og árangur Jólagjöfin í ár Hlíðasmára 9 • Kópavogi • S. 893 0098 • snyrt@snyrt.is • www.snyrt.is Snyrtistofan Hafblik 2 5 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r38 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 2 5 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 1 1 2 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 5 3 -3 6 0 4 1 E 5 3 -3 4 C 8 1 E 5 3 -3 3 8 C 1 E 5 3 -3 2 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 1 2 s _ 2 4 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.