Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.2005, Blaðsíða 13

Freyr - 01.11.2005, Blaðsíða 13
VÉLAR OG TÆKI VÉLBÚNAÐUR • 6,0 lítra Power Stroke, turbo dísilvél, 8 strokka, 325 hestöfl. • Dráttargeta: 5,4 tonn • Tog: 772 Nm v/ 2000 sn. • Eldsneytistankur: 110 Itr. DRIFLfNA • 4WD, 2WD, hátt og lágt drif. • Rafstýring á drifi. • 5 gíra sjálfskipting eða 6 gíra beinskipting möguleg. • Handvirkar/sjálfvirkar driflokur á framdrifi. HEMLAR OG FJÖÐRUN • ABS-bremsukerfi á öllum hjól- um. • Blaðafjaðrir að aftan en gormar að framan og gasdemparar. ÞYNGD • Eigin þyngd: 3,3 tonn • Hleðsluþyngd: 1.820 kg STÆRÐIR • Lengd: 6240 mm • Breidd: 2030 mm • Hæð: 2070 mm • Hjólhaf: 3960 mm • Lengd palls: 2050 mm • Breidd palls: 1600 mm STAÐALBÚNAÐUR M.A.: • Öryggispúðar • Litað gler • Halogen aðalljós • Aðfellanlegir speglar • 12 volta innstunga í mælaborði • Ljós í vélarrúmi • Rafstýrð framsæti • Hraðastillir • Veltistýri • Opnanleg afturrúða • Leðuráklæði á framsætum • Talnalás á bílstjórahurð • Málaðir stálstuðarar framan og aftan • Pallhleri með læsingu og losan- legur • Loftkæling Amerískur dreki með mikla dráttargetu Það þótti bylting til sveita þegar Ford Bronco kom fram á sjónarsviðið. Gömlu góðu Land Rover jepparnir urðu að víkja fyrir kraftmeiri bílum og með fjöðrun sem áður var nær óþekkt. Um tíma rénuðu vinsældir amerískra bíla á ís- landi en á seinni árum, og ekki síst þegar dollarinn er jafn hagstæður og nú, hefur þeim fjölgað mikið í bílaflota landsmanna. Þó að sú tilhneiging hafi orðið að neytendur kjósa sparneytnari bíla virðast amerísku drekarnir höfða vel til þess hóps sem gerir kröfu um mikla dráttargetu og aflmikla vél. Vinsældir Ford F-seríunnar eru miklar og bílarnir hafa selst vel. Frá því að Ford kynnti þé fyrst til sögunnar á fimmta áratugnum hafa verið seldir yfir 28 milljón bíl- ar um allan heim en í Ameríku einni er seldir tveir bílar á hverri mínútu. Ford pallbílarnir eru fáanlegir f ýmsum útfærslum, bæði dísel og bensín og með mismunandi vél- arstærðum og hurðafjölda. Bíll- inn, sem hér sést á myndum, er Ford F350 Lariat með 6,0 lítra og 8 strokka, 325 hestafla vél, með sjálfskiptingu. Óhætt er að segja að jeppinn sé engin smásmíði. Til þess að vera löglegur í umferð- inni á svona vagni þurfa öku- menn að hafa meirapróf eða hafa tekið hefðbundið bílpróf frá því fyrir árið 1993. Tilfinningin er enda ósvikin þegar sest er upp í Ford F350 - þetta er trukkur! Dráttargeta á krók er rúmlega 5,6 tonn og eigin þyngd 3,3 tonn og lengd er 6,24 metrar. Jeppinn ætti ekki að vera í vandræðum með að draga hestakerrur af stærstu gerð. Amerískir bílar eru þekktir fyrir alls kyns aukabúnað og þægindi. Við akstur F350 finnur maður fljótlega fyrir því - skynjarar væla úr öllum áttum ef bakkað er ógætilega, beltið ekki spennt eða hurðin ekki nógu vel lokuð. Á bíl- stjórahurð er talnalás, stillingar í sæti eru allar rafdrifnar, drifið er rafmagnsskipt og hægt er að stilla hvað pedalarnir í gólfinu þurfa mikið ástig. Þá er vert að minnast rýmis inni í bílnum, sem er verulegt, og pallurinn er sér- lega rúmgóður. Bíllinn á myndun- um er með 35" dekkjabreytingu. Sölu- og þjónustufyrirtæki Ford á (slandi er Brimborg í Reykjavík. NOKKUR ÁRTÖL í SÖGU FORD Ford Motor Co. stofnað og framleiðsla hefst á Ford A- model í leiguhúsnæði í Detroit. Hið fornfræga T-model kynnt til sögunnar. Fyrsta samsetningar- verksmiðja Ford sett á laggirnar á erlendri grundu í Manchester á Englandi. Heildarfjöldi Ford-bíla kominn í fimm milljónir. Fyrsti pallbíllinn fram- leiddur. mBB Framleiðslu á T-módeli hætt eftir 15 milljón framleidd eintök. 5 Átta strokka vél frá Ford kemur á markað. mm í seinni heimsstyrjöldinni framleiddi Ford mikið af herbíl- um fyrir bandaríska herinn. Bíla- framleiðsa fyrir almenning situr á hakanum þar til eftir stríð. Ford Thunderbird kynnt- ur til sögunnar. 50 milljón bílar fram- leiddir hjá Ford frá upphafi. Ford Bronco, árgerð 1966, kynntur í Bandaríkjunum. ( Evrópu kemur Ford Transit sendibíllinn fyrst fram á sjónar- sviðið. Ford Escort settur á markað og slær í gegn á heims- vísu. Ford Ranger kynntur. Ford Mondeo settur á markað. 250 milljón Ford-bílar framleiddir frá upphafi. 3 Ford Focus kom á mark- að og sló heimsmet í sölu. | Ford F-150 endur- hannaður. FREYR 11 2005 13

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.