Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2006, Blaðsíða 4

Freyr - 01.09.2006, Blaðsíða 4
Aðlögun finnsks landbúnaðar að Evrópusambandinu innganga Finnlands í Evrópusam- bandið (ESB) árið 1995 hafði í för með sér hraðari breytingu frá mark- aðsvernd og opinberri verðlagningu í landbúnaði til opins markaðskerfis en dæmi voru um í Evrópu áður. Finnskir bændur stóðu frammi fyrir stærri breytingum á verði afurða, hlutfallslegu verði vörutegunda og beinum stuðningi en nokkurt annað land sem gengið hefur í Evrópusam- bandið. Aðlögun að sameiginlegri landbúnaðarstefnu Evrópusam- bandsins (Common Agricultural Pol- icy - CAP) leiddi til 40-50% lækkunar á afurðaverði til bænda strax árið 1995, en lækkanir á verði aðfanga komu einungis að mjög litlu leyti á móti. Verð á korni féll um 50-60% árið 1995 og hefur lækkað enn meira síðan. Lækkanir voru jafn- framt verulegar á búfjárafurðum, frá 28% lækkun á mjólkurverði til 65% lækkunar á verði eggja. Það hefði reynst finnskum bændum illger- legt að halda áfram rekstri við þessar nýju aðstæður ef ekki hefði verið samið um umfangsmiklar stuðningsaðgerðir til mót- vægis. Mótvægisaðgerðirnar hafa stuðlað að því að finnskum landbúnaði tókst að takast á við samkeppni við erlenda búvöru- framleiðslu frá öðrum Evrópusambandsríkj- um og tryggja velgengni finnskra vara á mörkuðum Evrópusambandsins. Árið 2005 námu þessar stuðningsaðgerðir 1,8 millj- örðum evra (um 162 milljörðum íslenskra króna), sem eru um 46% af veltu finnsks landbúnaðar (3,93 milljarðar evra). Mark- mið finnskrar landbúnaðarstefnu hefur verið að jafna erfiða samkeppnisaðstöðu finnsks landbúnaðar, vegna hnattrænnar legu landsins og veðurfarslegra skilyrða, á innri markaði Evrópusambandsins með við- varandi stuðningi. Þrátt fyrir aukna styrki hafa tekjur finnskra bænda dregist saman síðan 1995. Tekjur í landbúnaði lækkuðu um 35% frá 1994 til 2005, mælt á föstu verðlagi. Hlutur land- búnaðar I finnska hagkerfinu féll frá 2,9% til 1,2% milli 1994og 2004, en landbúnað- ur lagði 1,5 milljarða evra til hagkerfisins árið 2004. ÁHRIF Á VERÐ TIL NEYTENDA OG SKIPTING ÞESS Sú mikla lækkun sem varð á verði til fram- leiðenda skilaði sér að einhverju leyti í lægra vöruverði til neytenda. Meðalverð matvæla féll um 11 % eftir inngönguna árið 1995. Á tíu ára tímabili frá 1995 til 2005 hækkaði verð matvæla um 11 % meðan almennt verðlag hækkaði um 13%. Þannig hefur matvælaverð á föstu verðlagi haldið áfram að falla síðastliðin tíu ár. Ástæður lækk- unar vöruverðs má rekja til lægra verðs til IEftir Jyrki Niemi, prófessor við Agrifood Research Finland framleiðenda en ekki aukinnar samkeppni f smásölu enda hefur hlutur verslunar í verð- myndun matvara í Finnlandi aukist verulega á undanförnum árum. Því má segja að sam- keppni finnskrar framleiðsiu við innflutta bitni fyrst og fremst á bændum. BREYTINGAR Á FINNSKRI LANDBÚNAÐARFRAMLEIÐSLU Innganga Finnlands í Evrópusambandið hefur, þrátt fyrir allt, ekki valdið veruleg- um breytingum á heildarframleiðslumagni finnsks landbúnaðar. Nokkuð dró úr mjólkurframleiðslu f upphafi en hún jókst síðan aftur milli 1997 og 2001. Innlögð mjólk nam 2.293 milljónum Iftra árið 2005, sem er u.þ.b. sama magn og árið 1995. Meðalnyt hefur hækkað um heil 25% síð- an 1995. Þó heildarframleiðslumagn kjöts hafi ekki minnkað hafa orðið umtalsverðar breytingar á samsetningu framleiðslunnar. Samdráttur hefur orðið í framleiðslu nautakjöts um 9% en neyslan hefur einnig dregist saman um 5%. Bilið milli framleiðslu og neyslu hefur verið brúað með auknum innflutningi. Á hinn bóginn hefur svfnakjötsframleiðsla aukist um 20%, sem samsvarar 203 þús- und tonnum árið 2005. Innanlandsneysla á svínakjöti hefur fallið um 11 þúsund tonn en útflutningur hefur fimmfaldast og er nú meira en 40 þúsund tonn á ári. Mynd 1. Verð til framleiðenda á nokkrum vörum fyrir og eftir inngöngu Finnlands í Evrópusambandið. Nautakjöt Svinakjöt Kjúklingar Mynd 2. Heildarrekstrarniðurstaða finnskra búa fyrir og eftir inngöngu Finnlands í Evrópusambandið. Árið 2005 sýnir stöðuna samkvæmt nýjustu tölum. 4 FREYR 09 2006

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.