Fréttablaðið - 07.05.2018, Blaðsíða 16
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Mexíkóskt taco er
borið fram í mjúk-
um tortilla-kökum.
Enchiladas eru upprúllaðar tortilla-kökur sem eru hitaðar í ofni með osti yfir. Krökkum
finnst þetta mjög góður réttur. Þessi
uppskrift er með kjúklingi en það
má alveg breyta kjöttegundum eftir
smekk.
Enchiladas með
kjúklingi
Einfaldur réttur sem tekur ekki
langan tíma að útbúa og dugar
fyrir fjögurra manna fjölskyldu.
Kjúklinginn er hægt að kaupa
eldaðan og spara sér þannig mikinn
tíma.
1 grillaður kjúklingur
8 tortillur
200 g rifinn ostur
Salsasósa
1 laukur, smátt skorinn
2 hvítlauksrif, smátt skorin
2 msk. olía
1 dós brúnar mexíkóskar baunir
1 dós niðursoðnir tómatar, hakk
aðir
1 kjötkraftsteningur
3 dl vatn
2 tsk. cumin
½ tsk. fínt malað anískrydd
½ tsk. salt
¼ tsk. pipar
4 vorlaukar, skornir í sneiðar
4 msk. grófhakkað, ferskt kórí
ander
Hitið ofninn í 230°C. Búið til salsa-
sósu með því að steikja lauk og
hvítlauk í olíu. Bætið síðan baunum
saman við, tómötum, kjötkrafti og
vatni. Þá er krydd sett saman við
og allt látið sjóða upp og síðan smá
malla í nokkrum mínútur.
Takið skinnið af kjúklingnum og
rifið kjötið niður í bita. Blandið því
saman við tvo þriðju af sósunni.
Afgangurinn af sósunni er geymdur
þar til síðar.
Dreifið kjúklingnum á tortillurnar
og rúllið þeim upp. Leggið í eldfast
mót og setjið afganginn af sósunni
og ostinn yfir. Bakið í ofninum
í 10-15 mínútur eða þangað til
osturinn er gullinbrúnn.
Þegar rúllurnar eru teknar úr ofn-
inum og settar á diska er vorlauk
og kóríander dreift yfir þær. Gott er
að bera enchiladas fram með fersku
salati, sýrðum rjóma og límónu-
bátum.
Taco með rifnum
kjúklingi
Þetta er einfaldur og góður réttur
sem er ekki borinn fram í hörðum
taco-skeljum heldur mjúkum
tortilla-kökum. Veljið minni
kökurnar. Uppskriftin er fyrir fjóra.
750 g úrbeinuð kjúklingalæri
8 tortillakökur
BBQsósa
1 flaska BBQsósa (tilbúin)
2 tsk. rifinn límónubörkur
2 tsk. rifinn appelsínubörkur
1 smátt skorinn jalapenó
1 hvítlauksrif, smátt skorið
1 tsk. cumin
Safi úr einni límónu
Salt og pipar
Salsa
1 dós niðursoðnir tómatar í bitum
1 mangó, skorinn í bita
2 jalapenó, smátt skornir
2 vorlaukar, smátt skornir
2 niðursoðnar grillaðar paprikur,
smátt skornar
1 tsk. rifinn límónubörkur
1 tsk. rifinn appelsínubörkur
Ferskt kóríander
Safi úr ¼ límónu
½ tsk. salt
Gvakamóle
2 lárperur
Safi úr hálfri límónu
½ tsk. salt
2 msk. ferskt kóríander, smátt
skorið
Blandið saman öllu sem á að fara
í BBQ-sósuna. Setjið ¼ af sósunni
saman við kjúklinginn og látið
hann marínerast.
Setjið niðursoðnu tómatana í sigti
og látið vökvann renna frá þeim.
Blandið mangói, jalapenó, vorlauk,
grillaðri papriku, berki af límónu
og appelsínu ásamt kóríander í skál
og hrærið allt saman. Bætið síðan
tómötunum saman við. Bragðbætið
með límónusafa og salti. Ef þið
viljið hafa salsað sterkara má bæta
meiri jalapenó út í það.
Til að gera gvakamóle þarf að velja
þroskaðar lárperur (avókadó) og
stappa þær með gaffli. Bragðbætið
með límónusafa, salti og fersku
kóríander.
Grillið kjúklinginn á útigrilli.
Steikið hann á báðum hliðum í um
það bil 5 mínútur. Best er að grilla
hann „indirekte“ en þá er bara
kveikt á fyrsta og ysta brennara.
Slökkt er á þeim í miðið. Þetta er
bara hægt að gera á gasgrillum með
þremur brennurum. Lærin er einn-
ig hægt að elda í ofni í um það bil
15-20 mínútur á 180°C.
Þegar lærin eru gegnumsteikt eru
þau skorin í þunnar sneiðar og sett
aftur í BBQ-sósu sem eftir er en
skiljið aðeins eftir. Hitið tortilla-
kökur á grillinu á báðum hliðum.
Setjið salsa á tortilla, síðan gvaka-
móle og loks kjúkling. Gott er að
setja meiri BBQ-sósu yfir og ferskt
kóríander.
Það má líka breyta til og grilla gott
nautakjöt í staðinn fyrir kjúkling
og bæta síðan við fersku grænmeti
að vild.
Mexíkóupplifun alla daga
Sumum finnst að Mexíkó-réttir séu föstudagsmatur. Öðrum finnst þeir góðir alla daga.
Hvernig væri til dæmis að prófa þessa góðu rétti á mánudegi? Hér eru auðveldar uppskriftir.
Enchiladas er frábær fjölskylduréttur. NORDICPHOTOS/GETTY
Mjúkt taco með kjúklingi er í uppáhaldi hjá mörgum. NORDICPHOTOS/GETTY
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Laugardaginn 12. maí gefur Fréttablaðið út aukablaðið
SKÓLAR & NÁMSKEIÐ
Skólar & námskeið kemur út að jafnaði þrisvar sinnum á á hverju ári.
Að vanda er boðið upp fjölmargar fróðlegar greinar og viðtöl.
Allir sem eru velta fyrir sér námi í sumar eða haust
munu fá í blaðinu góða yfirsýn yfir það sem er í boði
Blaðið er mjög vinsæl valkostur ýmissa menntastofnanna og einkaskóla
sem nýta blaðið til auglýsa eða kynna nám sem hefst í sumar og í haust.
Nánari upplýsingar um auglýsingar og umfjallanir fyrir blaðið veitir;
Ólafur H. Hákonarson markaðsfulltrúi Fréttablaðsins.
Netfang olafurh@frettabl did.is – Beinn sími 512-5433
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . M A Í 2 0 1 8 M Á N U DAG U R
0
7
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:4
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
B
3
-2
0
E
0
1
F
B
3
-1
F
A
4
1
F
B
3
-1
E
6
8
1
F
B
3
-1
D
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
6
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K